Hvar lenda stolin listaverk?

Fyrir skömmu var stolið mjög verð­mætu lista­verki eftir Auguste Rodin, úr sýn­ing­ar­sal Ny Carlsberg Glyp­to­tek safns­ins í Kaup­manna­höfn. Þótt erfitt sé að selja stolin verk, eftir þekkta lista­menn, á almennum mark­aði er þó víða mikil eft­ir­spurn eftir þeim. Nýríkir kaup­endur spyrja sjaldn­ast hvort verkin séu vel eða illa fengin.

Verkinu, sem heitir „Nef­brotni mað­ur­inn“ var stolið úr einum af sölum Glyp­to­teks­ins um miðjan júlí en greint var frá þjófn­að­inum fyrir nokkrum dögum. Danskir fjöl­miðlar hafa fjallað ítar­lega um þetta mál og spurt hvernig á því standi að þjófar geti haft á brott með sér, í hand­tösku um hábjartan dag, lista­verk sem metið sé á hund­ruð millj­óna. Hverjir kaupa lista­verk sem fengin eru með þessum hætti? er líka spurt.

Styttan er mjög verðmæt


Styttan „Nef­brotni mað­ur­inn“ er lítil, aðeins 25,5 senti­metra há, „svona álíka og manns­höfuð“ sagði safn­stjór­inn í við­tali. Þótt verkið sé ekki meðal allra þekkt­ustu verka Rodins (1840 – 1917) er það eigi að síður mjög verð­mætt enda lét Rodin svo ummælt að hann teldi það í hópi sinna bestu verka. Frum­mynd­ina vann lista­mað­ur­inn árið 1863 og af verk­inu hafa verið gerðar um það bil 200 brons­af­steypur. Þær eru ekki allar nákvæm­lega eins en af þess­ari til­teknu útgáfu munu vera til tæp­lega 40. Þær afsteypur sem gerðar voru meðan lista­mað­ur­inn var á lífi eru verð­mætastar og stolna styttan er ein þeirra en Glyp­to­t­ekið keypti hana árið 1919.

[caption id="attachment_37228" align="alignnone" width="800"] Glyp­to­t­eket í Kaup­manna­höfn.[/caption]

Þjófarnir komu tvisvar í safnið


Þjófarnir, sem voru tveir, komu í safnið 7. júlí. Þá kynntu þeir sér, að sögn lög­reglu, aðstæður í safn­inu og tókst að aftengja sér­staka þjófa­vörn á stytt­unni sjálfri. Meira gerðu þeir ekki þann dag­inn. Fimmtu­dag­inn 16. júlí komu þeir aftur í safnið, þeir voru ekki sam­ferða inn en hitt­ust svo í Rodin salnum svo­nefnda þar sem verk franska meist­ar­ans eru til sýnis. Þar sættu þeir færis þegar hvorki starfs­fólk né gestir voru í salnum og fjar­lægðu stytt­una af stall­inum, stungu henni í tösku eða poka sem þeir höfðu með­ferðis og yfir­gáfu síðan safnið, sitt í hvoru lagi. Þá höfðu þeir verið þar inn­an­dyra í 12 mín­útur. Allt sást þetta, eins og fyrri heim­sóknin, á mynda­vélum sem eru víða í safn­inu.

Kunnáttumenn


Lög­reglan telur, af mynd­unum að dæma, að þjófarnir séu útlend­ingar, lík­lega frá Austur-Evrópu. Þeir séu kunn­áttu­menn á sínu sviði og að þeir skyldu velja stytt­una „Nef­brotna mann­inn“ sé ekki til­viljun. Verkið sé lítið og því auð­velt að stinga því í poka eða tösku og hafa á brott með sér. Þeim hafi einnig tek­ist að aftengja þjófa­vörn­ina á verk­inu sjálfu án þess að þjófa­varn­ar­kerfið færi í gang. Lög­reglan telur ein­sýnt að þjófarnir hafi kunnað vel til verka og ber­sýni­lega ekki við­van­ingar á þessu sviði.

Verk Rodins eftirsótt


Auguste Rodin var afkasta­mik­ill lista­maður. Af mörgum verka hans hafa verið gerðar fjöl­margar afsteypur. Rodin safnið í París selur núm­er­aðar og merktar afsteypur en þess utan hafa verið gerðar ótal afsteypur (sem safnið kallar eft­ir­lík­ingar) sem seldar eru um allan heim. „Hug­s­uð­ur­inn“ sem margir þekkja er vafa­lítið kunn­asta verk Rodins. Safnarar sækj­ast einkum eftir verkum sem gerð hafa verið á vegum Rodin safns­ins, gamlar afsteypur eru eft­ir­sóttastar seljst fyrir him­in­háar fjár­hæðir.

Glyptoteket í Kaupmannahöfn.
Glyp­to­t­eket í Kaup­manna­höfn.

[caption id="attachment_37229" align="alignnone" width="1024"] Þekktasta verk Rodin er hug­s­uð­ur­inn, sem hér sést. MYND: EPA[/caption]

Hverjir kaupa


Þekkt lista­verk sem stolið er koma sjaldn­ast í leit­irnar. Hjá The Art Loss Register í Lundúnum er stærsti gagna­grunnur stol­inna lista­verka í heim­inum. Í gagna­grunni þessum er að finna 128 verk eftir Rodin. Þeim hefur verið stolið á und­an­förnum ára­tugum og hafa ekki komið í leit­irnar. Franskur list­fræð­ingur, sem árum saman vann á Rodin safn­inu í París og rekur nú ráð­gjafa­fyr­ir­tæki fyrir lista­verka­kaup­endur, segir að mikil eft­ir­spurn sé eftir verkum Rodins. Lík­leg­ast sé að verkið hafi verið „pantað“ og sér­fræð­ing­ur­inn telur senni­leg­ast að það endi í Rúss­landi eða Kína. Þar séu margir með fullar hendur fjár og sæk­ist mjög eftir að kaupa þekkt og dýr lista­verk. Margir úr þessum hópi hafi litlar áhyggjur af því hvaðan verkin komi og spyrji ekki um eig­enda­sögu. „Sama hvaðan gott kemur eru ein­kunn­ar­orð slíkra kaup­enda,“ sagði list­fræð­ing­ur­inn.

Aldrei hægt að koma í veg fyrir þjófnaði af þessu tagi


Eftir að upp­lýst var um þjófn­að­inn úr Glyp­to­t­ek­inu hafa danskir fjöl­miðlar fjallað tals­vert um örygg­is­mál og gæslu í dönskum söfnum. Einn af yfir­mönnum Menn­ing­ar­mála­stofn­un­ar­innar, sem Ny Carlsberg Glyp­to­tek heyrir undir, sagði í við­tali að í safn­inu væri fylgt öllum reglum varð­andi öryggi og eft­ir­lit. Það hefði ekki dugað til í þetta sinn. En sama hversu gott og mikið eft­ir­litið sé verði aldrei hægt að koma í veg fyrir þjófn­aði. Einn blaða­maður spurði hvort ekki væri eðli­leg með lítil, en verð­mæt verk eins og Nef­brotna mann­inn að koma fyrir í þeim litlum stað­setn­ing­ar­bún­aði (GPS kubb). Þetta væru til dæmis sumir hús­gagna­fram­leið­endur farnir að gera. Við þess­ari spurn­ingu fékkst ekk­ert svar en yfir­menn safns­ins sögðu að í ljósi þessa atburðar yrðu öll örygg­is­mál yfir­farin og reynt að tryggja að svona lagað geti ekki end­ur­tekið sig.

Svolítið um Monu Lisu


Í fyrra­dag, 21. ágúst 2015, voru liðin 104 ár síðan hinu heims­fræga mál­verki af Monu Lisu var stolið úr Louvre safn­inu í París. Þjófn­að­ur­inn upp­götv­að­ist dag­inn eftir og Louvre safnið var lokað í nokkra daga í kjöl­farið. Franskt skáld, sem nokkru áður hafði lýst yfir að rétt­ast væri að brenna Louvre til grunna var hand­tek­inn og Pablo Picasso var yfir­heyrður en hvor­ugur þeirra tengd­ist þjófn­að­inum. Þrátt fyrir mikla eft­ir­grennslan og leit fannst myndin ekki og það var fyrst tveimur árum síðar að hún kom í leit­irnar. Ítalskur maður, Vincenzo Peruggia fyrr­ver­andi starfs­maður á safn­inu, hafði falið sig í geymslu skömmu fyrir lokun á sunnu­degi.

Þekktasta verk Rodin er hugsuðurinn, sem hér sést. MYND: EPA
Þekktasta verk Rodin er hug­s­uð­ur­inn, sem hér sést. MYND: EPA

Safnið var lokað á mánu­dögum og hann hafði ein­fald­lega gengið út með verkið upprúllað (skyldi rammann eftir) og vegna þess að hann var í hvítum vinnugalla, eins og margir starfs­menn klædd­ust gerði vörður enga athuga­semd þegar hann fór út úr safn­inu.

Eftir að hafa geymt mynd­ina heima hjá sér í tvö ár reyndi hann að selja Uffizi safn­inu í Flórens mynd­ina en þá komst allt upp. Peruggia gaf þá skýr­ingu að þetta væri jú ítölsk mynd (Leonardo da Vinci mál­aði hana í byrjun 16. aldar) og hún ætti þess vegna að vera á Ítalíu. Ýmsar aðrar skýr­ingar heyrð­ust líka en Peruggia var dæmdur til eins árs og fimmtán daga fang­els­is­vistar fyrir stuld­inn.

Hann afplán­aði hins­vegar aðeins helm­ing þess tíma og margir Ítalir töldu hann sanna föð­ur­lands­hetju. Mál­verkið var síðan sýnt víða á Ítalíu en var svo skilað til Louvre safns­ins. Allt þetta varð til þess að auka frægð þessa verks, sem segja má að hvert manns­barn þekki og millj­ónir skoða árlega þar sem það hangir í Louvre.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár