Eigandi Chelsea styrkti landnemasamtök í Jerúsalem og átti fótboltamenn í aflandsfélagi

Rúss­neski auð­mað­ur­inn Roman Abramovich hefur styrkt sam­tök sem hafa þrengt að Palest­ínu­mönnum í Austur-Jer­úsalem um yfir 100 millj­ónir dala. Einnig átti hann hlut í fót­bolta­mönnum á laun, sam­kvæmt umfjöll­unum upp úr FinCEN-skjöl­unum.

Roman Abramovich er eigandi enska knattspyrnuliðsins Chelsea. Hann er einn ríkasti maður heims.
Roman Abramovich er eig­andi enska knatt­spyrnu­liðs­ins Chelsea. Hann er einn rík­asti maður heims. Mynd: EPA

Rússnesk-ísra­elski auð­mað­ur­inn Roman Abramovich, sem helst er þekktur fyrir að vera eig­andi enska knatt­spyrnu­liðs­ins Chelsea, hefur verið helsti styrkt­ar­að­ili félaga­sam­taka að nafni Elad, sem hafa stuðlað að því að auka ítök og búsetu ísra­el­skra land­nema í hverfi Palest­ínu­manna í Austur-Jer­úsalem.

Fjallað er um þetta bæði í frétta­skýr­ing­ar­þætti frá BBC og í ísra­elska miðl­inum Haaretz, en Abramovich er sagður hafa styrkt Elad um yfir 100 millj­ónir banda­ríkja­dala á árunum 2005 til 2018 í gegnum fjögur félög sem skráð eru á Bresku Jóm­frú­areyj­unum í Karí­ba­haf­inu.

Ísra­elsku félaga­sam­tökin, sem eru einnig styrkt af rík­is­stjórn Ísraels, hafa for­ræði yfir forn­leifa­svæði í Silwan-hverf­inu í Austur-Jer­úsalem, sem liggur skammt utan við gömlu borg­ina í Jer­úsalem.

Þau hafa nýtt sér umdeildar laga­heim­ildir Ísra­els­stjórnar til þess að þrengja að búsetu palest­ínskra fjöl­skylda í hverf­inu. BBC seg­ist hafa heim­ildir fyrir því að sam­tökin hafi fjár­magnað mál­sóknir gegn palest­ínskum fjöl­skyldum sem berj­ast gegn því að vera neydd til að flytja úr húsum sínum í hverf­inu.

Samtökin hafa legið undir ámæli fyrir að nýta sér forn­leifa­upp­gröft­inn og sögu­legar skír­skot­anir til þess að breyta ásýnd hverf­is­ins og opna á búsetu gyð­inga þar í land­nema­byggðum. Evr­ópu­sam­bandið gagn­rýndi þetta sér­stak­lega í skýrslu sem Guardian kom höndum yfir fyrir um tveimur árum síðan.

Samkvæmt alþjóða­lögum eru land­nema­byggðir á öllum hernumdum svæðum Palest­ínu­manna ólög­mætar, þar með talið í Austur-Jer­úsalem. Ísra­els­ríki segir þó alla Austur-Jer­úsalem til­heyra sér, en afar fá ríki við­ur­kenna það.

Styrkir rúss­neska auð­jöf­urs­ins, sem fékk ísra­elskan rík­is­borg­ara­rétt árið 2018, komu í ljós við yfir­ferð fjöl­miðla á FinCEN-skjöl­unum svo­nefndu, en fram að því hafði eign­ar­hald Abramovich á félög­unum fjórum ekki verið á almanna­vit­orði.

Tals­maður Abramovich sagði við BBC að rúss­neski auð­mað­ur­inn hefði um ára­bil styrkt ýmis verk­efni í Ísrael og öðrum sam­fé­lögum gyð­inga með alls yfir 500 millj­óna doll­ara fram­lögum og myndi halda því áfram.

Kom í ljós vegna gagnaleka

Eins og Kjarninn sagði frá í gær eru FinCEN-skjölin gagna­leki frá lög­gæslu- og eft­ir­lits­stofnun innan banda­ríska fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, The Financial Crimes Enforcement Network.[links]

Blaða­menn frá yfir hund­rað fjöl­miðlum hafa unnið með gögnin í meira en ár og hófu á sunnu­dag að svipta hul­unni af því hversu gríð­ar­lega mikið fé með óljósan og oft vafa­saman upp­runa er milli­fært með hjálp stærstu banka Vest­ur­landa. Einnig, hve eft­ir­lits­kerfi banda­rískra stjórn­valda vegna milli­færslna í banda­ríkja­dölum (sem þau eiga að fylgj­ast með) er óskil­virkt. Stærstu bankar Vest­ur­landa eru ein­fald­lega sagðir horfa í hina átt­ina þegar þeir eru beðnir um að ann­ast slíkar milli­færslur. Þeir stöðva sjaldn­ast vafasömu greiðsl­urnar, þrátt fyrir að hafa til þess heim­ild, heldur þiggja þókn­ana­tekj­urnar.

Reglu­verðir bank­anna senda svo inn til­kynn­ingar eftir á ef þeir reka augun í eitt­hvað mis­jafnt. Og það er oft. Til­kynn­ing­arnar enda ásamt millj­ónum ann­arra slíkra hjá eft­ir­lits­stofn­un­inni banda­rísku, sem virð­ist lít­inn tíma hafa til að rýna í þær. En það hafa blaða­menn um allan heim verið að gera, eftir að BuzzFeed News, sem upp­haf­lega fékk gögnin, deildi þeim með ICIJ, alþjóða­sam­tökum rann­sókn­ar­blaða­manna, snemma í fyrra.

Fótboltamenn í hlutaeigu aflandsfélags

Fréttir um styrk­veit­ingar til land­nema­sam­tak­anna í Austur-Jer­úsalem eru ekki þær einu um Roman Abramovich sem hafa birst í því frétta­flóði sem unnið hefur verið upp úr gagna­lek­anum, en einnig hefur ljósi verið varpað á leyni­legt eign­ar­hald hans á knatt­spyrnu­mönnum í gegnum félag á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem heitir Leiston Holdings.

Fjallað var um þetta á BBC í gær. Þar var meðal ann­ars dregið fram að knatt­spyrnu­mað­ur­inn Andre Carrillo hefði spilað með portú­galska lið­inu Sporting Lissabon gegn Chelsea í tveimur evr­ópu­leikjum árið 2014, er leik­mað­ur­inn var í hluta­eigu pró­sent eigu aflands­fé­lags­ins, sem hjálp­aði Sporting Lissabon að fjár­magna kaupin á honum.

Abramovich „átti“ því í raun hlut í 12 leik­mönnum á vell­inum, í þessum leikjum Sporting og Chelsea árið 2014.

Leiston Holdings átti á árum áður hlut í fleiri fót­bolta­mönnum, meðal ann­arra seb­neska sókn­ar­mann­inum Lazar Markovic, sem keyptur var til Liverpool frá Benfica árið 2014. Hluti kaup­verðs­ins á þeim tíma rann til Leiston Holdings, eins og áður hefur verið opin­berað, meðal ann­ars í ítar­legri úttekt Der Spiegel á alls konar fjár­mála­gjörn­ingum í heimi fót­bolt­ans árið 2018. Tengsl Abramovich við félagið hafa þó ekki legið fyrir.

Árið 2015 breytti Alþjóða knatt­spyrnu­sam­bandið FIFA reglum sínum til þess að koma í veg fyrir að þriðju aðilar færu með eign­ar­hald leik­manna, en slíkt var frekar algengt. Á það lagði tals­kona Abramovich áherslu í svörum við fyr­ir­spurn BBC vegna máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fincen

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár