FinCEN-skjölin: Aumar peningaþvættisvarnir afhjúpaðar

Gagna­leki frá FinCEN, eft­ir­lits­stofnun innan banda­ríska fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, sýnir fram á að ýmsir stærstu bankar Vest­ur­landa vita að mýmargar milli­færslur sem hjá þeim eru gerðar þola ekki dags­ljósið, en aðhaf­ast bæði seint og lítið.

Deutsche Bank er sá banki sem er fyrirferðamestur í þeim gögnum sem BuzzFeed áskotnaðist.
Deutsche Bank er sá banki sem er fyr­ir­ferða­mestur í þeim gögnum sem BuzzFeed áskotn­að­ist. Mynd: EPA

Fjöl­margir fjöl­miðlar víða um heim hafa í gær og í dag birt fréttir sem eru afrakstur meira en árslangrar rann­sókn­ar­vinnu og varpa ljósi á það hvernig margir af stærstu bönkum Vest­ur­landa hafa verið að færa pen­inga fyrir ýmsa vafa­sama aðila og þiggja fyrir það þóknun, án þess að bregð­ast við grun­semdum um pen­inga­þvætti, svik og glæp­a­starf­semi með afdrátt­ar­lausum hætti.

Um er að ræða umfjall­anir upp úr meira en 2.600 leyni­legum skjölum sem lekið var til banda­ríska vef­mið­ils­ins BuzzFeed í fyrra frá FinCEN, lög­gæslu­stofnun innan fjár­mála­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna. BuzzFeed deildi gögn­unum með ICIJ, alþjóð­legum sam­tökum rann­sókn­ar­blaða­manna, sem deildi þeim áfram til um það bil 400 blaða­manna af um 110 frétta­miðlum í 88 ríkjum til úrvinnslu og grein­ingar.

Í ljós hefur komið að stórir bankar á borð við JPMorgan, HSBC, Standard Chartered, Deutsche Bank, Barcleys og Bank of New York Mellon héldu áfram að hagn­ast á því að færa pen­inga fyrir vafa­sama aðila, jafn­vel eftir að banda­rísk yfir­völd létu suma þeirra sæta sektum fyrir að sinna því ekki að hindra flæði pen­inga með vafa­saman upp­runa um reikn­inga sína.

Hvaða skjöl eru þetta?

Skjölin sem um ræðir eru að mestu leyti skýrslur um grun­sam­legar milli­færslur í banda­ríkja­dölum sem bankar hafa sent til FinCEN, en þessar skýrslur eru algjört trún­að­ar­mál. Alls eru fjöl­miðlar með 2.121 skýrslu í fórum sínum.

Reglu­verðir banka þurfa að útbúa slíkar skýrslur þegar þeir sjá ein­hverjar milli­færslur sem gefa til kynna að mögu­lega sé þar á ferð­inni pen­inga­þvætti eða eitt­hvað annað mis­jafnt.

Grun­semd­ar­skýrsl­urnar, sem kall­aðar eru Suspicious Activity Reports (SARs) á ensku, eru ekki ásak­anir eða sann­anir um að eitt­hvað sak­næmt hafi átt sér stað, heldur ábend­ingar bank­anna til banda­rískra yfir­valda um óvenju­legar fjár­magns­hreyf­ingar og að mögu­lega sé eitt­hvað sak­næmt.

Sem áður segir eru fleiri en 2.100 slíkar til­kynn­ingar í þeim gögnum sem BuzzFeed komst yfir, flestar frá árunum 2011 til 2017, og í heild nemur and­virði milli­færsln­anna sem bank­arnir vöktu athygli á yfir tveimur billjónum (tvö þús­und millj­örðum) banda­ríkja­dala.

[adspot]

Þessi gagna­leki er þó ein­ungis sagður dropi í hafið, en sam­kvæmt umfjöllun á vef ICIJ fékk FinCEN alls tólf millj­ónir til­kynn­inga frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum bara á árunum 2011 til 2017.

Samkvæmt ítar­legri umfjöllun BuzzFeed voru yfir tvær millj­ónir slíkra til­kynn­inga sendar inn til FinCEN bara á síð­asta ári og margar þeirra voru aldrei lesnar, sam­kvæmt því sem mið­ill­inn hefur eftir heim­ild­ar­manni sínum.

Eft­ir­lits­kerfið er því veikt á báðum stöðum, bank­arnir sinna kannski lög­bund­inni til­kynn­ing­ar­skyldu sinni, en gera það stundum seint og aðhaf­ast lítið meira en að senda inn lög­bundna til­kynn­ingu sem yfir­völd gera lítið í að bregð­ast við. Á meðan er umfang grun­sam­legra milli­færslna á heims­vísu gríð­ar­legt.

Nokkrir bankar skera sig úr í gagna­lek­anum, sam­kvæmt sam­an­tekt ICIJ á inni­haldi FinCEN-skjal­anna, en gögnin sýna að Deutsche Bank lét banda­rísk yfir­völd vita af milli­færslum sem alls námu rúm­lega 1,3 billjónum banda­ríkja­dala og JPMorgan flagg­aði milli­færslur að and­virði 514 millj­arða banda­ríkja­dala. Standard Chartered lét vita af milli­færslum sem alls námu 166 millj­örðum banda­ríkja­dala og Bank of New York Mellon átti til­kynn­ingar um milli­færslur sem alls námu 21 millj­arði banda­ríkja­dala. Aðrir bankar til­kynntu minna.

Hvað hefur komið í ljós?

BuzzFeed greindi frá því að æðstu stjórn­endur Deutsche Bank hefðu árum saman verið með­vit­aðir um veru­lega ágalla varð­andi varnir gegn pen­inga­þvætti hjá bank­anum, en lítið aðhafst, þrátt fyrir að glæpaklíkur, hryðju­verka­hópar og eit­ur­lyfja­salar væru að hag­nýta sér reikn­inga bank­ans. Fram kemur að bank­inn hafi haldið áfram að milli­færa fyrir vafa­sama aðila eftir að pen­inga­þvætt­is­skandalar voru byrj­aðir að skekja bank­ann og búið var að lofa bót og betrun og greiða háar sátta­greiðslur.

Þýski mið­ill­inn Deutsche Welle fjallar líka ítar­lega um þátt Deutsche Bank.

Sagt frá því á BBC og víðar að HSBC, stærsti banki Bret­lands, hafi vitað af því að verið væri að flytja tug­millj­ónir doll­ara um reikn­inga bank­ans í tengslum við píramídasvindl á árunum 2013 og 2014, en leyft því að við­gang­ast.

BBC segir einnig frá því að Arkady Rot­en­berg, rúss­neskur millj­arða­mær­ingur og æsku­vinur Vla­dimírs Pútíns Rúss­lands­for­seta, virð­ist hafa notað Barclays-bank­ann í Lundúnum til að kom­ast fram­hjá fjár­magns­höftum sem banda­rísk stjórn­völd settu á hann og aðra sem þóttu vera í innsta hring rúss­neskra stjórn­valda árið 2014.

Á vef ICIJ er farið yfir ýmsa vafa­sama leik­endur sem bank­arnir flögg­uðu. Þeirra á meðal er Paul Manafort, fyrr­ver­andi ráð­gjafi Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta. Sumir bankar eru sagðir hafa haldið áfram að afgreiða milli­færslur honum tengdar eftir að fjallað var um glæp­sam­lega hátt­semi hans í fjöl­miðlum.

Aften­posten í Noregi var einn þeirra fjöl­miðla sem tók þátt í rann­sókn ICIJ og sagði frá því í gær að alls hefðu bankar til­kynnt FinCEF um milli­færslur til eða frá norska rík­is­bank­anum DNB sem næmu um 1 millj­arði norskra króna, eða tæpum 15 millj­örðum íslenskra króna á gengi dags­ins í dag. Samkvæmt frétt mið­ils­ins í dag er norska efna­hags­brota­deildin Økokrim búin að setja sig í sam­band við banda­rísk yfir­völd vegna gagna­lek­ans.

Þessar fréttir og fleiri, sem unnar hafa verið upp úr gagna­lek­anum frá FinCEF, hafa valdið því að hluta­bréfa­verð ýmissa banka hefur fallið tölu­vert í dag og fór hluta­bréfa­verð HSBC meðal ann­ars lægra en það hefur verið und­an­farin 25 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fincen

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár