Borgarstjórar skyldaðir til handabanda

Umræður um handa­bönd hafa, og það ekki í fyrsta sinn, ratað inn í danska þingið. Þingmenn vilja skylda borg­ar­stjóra lands­ins til að taka í hönd­ina á nýjum rík­is­borg­urum, en handa­bandið er skil­yrði rík­is­borg­ara­réttar.

Árið 1241, sama ár og Snorri Sturlu­son var veg­inn í Skál­holti, voru Jósku lögin, fyrstu rík­is­lög Dan­merkur, stað­fest. Það gerði Valdemar kon­ungur annar (Valdemar Sejr) við sér­staka athöfn í Vor­ding­borg á Suður-Jótlandi. Þegar skrifað hafði verið undir laga­skjalið, sem hefst á orð­unum „með lögum skal land byggja“ tók­ust menn í hendur. Danir rekja sögu handa­bands­ins þar í landi til þessa atburðar. Fram­vegis varð það siður í Danmörku að takast í hendur til að stað­festa sam­komu­lag.

Johannes Nør­regaard Frandsen fyrr­ver­andi pró­fessor telur að það hafi fyrst verið í lok 19. aldar að Danir fóru að nota handa­band til að heils­ast og kveðj­ast. Þá voru það fyrst og fremst jafn­ingar sem það gerðu. Það var ekki fyrr en komið var langt fram á síð­ustu öld að t.d. bóndi og hátt­settur emb­ætt­is­maður tók­ust í hendur, áður lyftu menn hatti eða hneigðu sig. Í dag, að minnsta kosti fram að COVID, hefur handa­band þótt sjálf­sögð kurt­eisi en ekki endi­lega tákn um gagn­kvæma virð­ingu.

Ríkisborgararétturinn

Í Danmörku býr fjöldi erlendra rík­is­borg­ara, sumir um skemmri tíma, aðrir árum saman. Árlega sækja margir þeirra um danskan rík­is­borg­ara­rétt. Rík­is­borg­ara­rétt­inum fylgja ýmis rétt­indi, meðal ann­ars rétt­ur­inn til að taka þátt í þing­kosn­ingum. 1. sept­em­ber 2015 tóku gildi í Danmörku lög sem heim­ila tvö­faldan rík­is­borg­ara­rétt. Það þýðir að rík­is­borg­arar ann­arra landa sem heim­ila slíkt, t.d. Íslands, þurfa ekki að afsala sér rík­is­borg­ara­rétt­inum, þótt sótt sé um að ger­ast danskur rík­is­borg­ari.

Margoft breytt og skilyrði hert

Lögunum um rík­is­borg­ara­rétt í Danmörku, rétt­ara sagt skil­yrð­unum til að geta orðið danskur rík­is­borg­ari hefur margoft verið breytt. Kröf­urnar sem þarf að upp­fylla oft­ast hertar. Árið 2018, í tíð rík­is­stjórnar Lars Løkke Rasmus­sen, voru gerðar umtals­verðar breyt­ingar á þessum kröfum. Meðal ann­ars þurftu umsækj­endur nú að gang­ast undir þekk­ing­ar­próf um sögu Dan­merkur ásamt dönsku­prófi.

Íslend­ingar og aðrir Norð­ur­landa­búar eru und­an­þegnir þessum prófum, sem hafa bæði þótt erfið og smá­smugu­leg. Dag­blaðið Berl­ingske lagði prófin fyrir stóran hóp inn­fæddra Dana, meira en helm­ingur þeirra féll á sögu­próf­inu en flestir náðu dönsku­próf­inu. Sú breyt­ing varð líka á skil­yrð­unum að nú þurfti umsækj­andi að sýna fram á níu ára sam­fellda búsetu í Dann­mörku, hafði áður verið sjö ár.

Umdeilda skilyrðið

Eitt skil­yrð­anna í lög­unum frá 2018 vakti sér­staka athygli, og hafði reyndar mikið verið rætt í þing­inu, og valdið deilum. Þegar umsækj­andi rík­is­borg­ara­réttar hefur fengið að vita að hann upp­fylli skil­yrðin er honum gert að mæta í ráð­hús sveit­ar­fé­lags­ins, á til­teknum degi, rík­is­borg­ara­deg­inum svo­nefnda. Árlega er hald­inn að minnsta kosti einn slíkur í hverju sveit­ar­fé­lagi, tveir í stærri bæjum. Þegar umsækj­and­inn mætir, hann skal áður hafa til­kynnt þátt­töku, þarf hann að gera tvennt: und­ir­rita skjal þar sem hann lofar að virða dönsk lög og reglur, og halda í heiðri danska siði. Þetta vefst sjaldn­ast fyrir umsækj­and­anum. Öðru gegnir um hið síð­ara, loka­hnykk­inn. Í lög­unum frá 2018 segir að stað­fest­ing rík­is­borg­ara­rétt­ar­ins felist í handa­bandi umsækj­anda og emb­ætt­is­manns, sem stjórnar athöfn­inni. Þetta lítur ekki út fyrir að vera flókið. Þegar þetta var rætt í danska þing­inu 2018 sagði Inger Støjberg, þáver­andi ráð­herra inn­flytj­enda­mála, þetta mjög ein­falt: ekk­ert handa­band, eng­inn rík­is­borg­ara­réttur.

Handaband ekki endilega einfalt

Þrátt fyrir yfir­lýs­ingar inn­flytj­enda­ráð­herr­ans er þetta með handa­bandið ekki alveg ein­falt.

Meðal umsækj­enda má ætíð gera ráð fyrir að séu margir sem ekki geta hugsað sér að taka í hönd­ina á ein­stak­lingi af gagn­stæðu kyni, til dæmis af trúar­á­stæðum, eða bara yfir­leitt að taka í hönd­ina á ókunn­ugum. Í lög­unum stendur að nýi rík­is­borg­ar­inn skuli taka í hönd­ina á borg­ar­stjór­anum, eða full­trúa hans. Sumar bæj­ar­stjórnir hafa brugðið á það ráð að hafa tvo emb­ætt­is­menn, karl og konu, til staðar við athöfn­ina. Inger Støjberg, ráð­herra sagði í blaða­við­tali að það væri sinn skiln­ingur að það ætti að vera borgar- eða bæj­ar­stjór­inn sem tæki í hönd­ina á nýja rík­is­borg­ar­anum. „Hvernig ráð­herra skilur þetta eða hitt skiptir ekki máli, það eru lögin sem gilda,“ sagði einn borg­ar­stjóri, sem bætti því við að það væri eig­in­lega hreint ótrú­legt að handa­band skuli vera skil­yrði rík­is­borg­ara­rétt­ar­ins. Nokkur brögð ku hafa verið að því að borg­ar­stjórar og emb­ætt­is­menn hafi ekki fylgt lög­unum um handa­bandið og séð í gegnum fingur við ein­stak­linga sem ekki hafa viljað taka í hönd­ina á emb­ætt­is­manni.

Þeir sem neita handabandinu

Ef umsækj­andi neitar að taka í hönd­ina á full­trú­anum frá bænum þegar á hólm­inn er komið fær hann, sam­kvæmt lög­unum, ekki rík­is­borg­ara­rétt­inn, en hefur hins vegar tvö ár til að hugsa sinn gang.

Ef við­kom­andi end­ur­nýjar ekki umsókn­ina innan þess tíma verður hann að byrja allt umsókn­ar­ferlið upp á nýtt.

Margir ósáttir við handabandsskilyrðið

Þegar rík­is­borg­ara­lögin voru til með­ferðar í þing­inu árið 2018 voru skoð­anir þing­manna skiptar. Jafn­að­ar­menn, sem þá voru í stjórn­ar­and­stöðu, sátu hjá við atkvæða­greiðslu í þing­inu, sögðu út í hött að þingið væri að greiða atkvæði um handa­band. Síðan þetta var eru liðin þrjú ár.

Strangari reglur og borgarstjóri skal rétta fram höndina

Eins og nefnt var hér framar hafa gegnum árin verið gerðar fjöl­margar breyt­ingar á lögum um rík­is­borg­ara­rétt. Þær hafa nær und­an­tekn­inga­laust snú­ist um hert skil­yrði. Nú hefur meiri­hluti flokka á danska þing­inu náð sam­komu­lagi um ýmsar breyt­ingar og þær miða allar að því að herða regl­urnar og auka kröfur til umsækj­end­anna. Í við­tali við dag­blaðið Information sagði Kristian Mølgaard lög­maður, og for­maður Lands­sam­bands verj­enda (Lands­for­en­ingen af For­svarsa­dvoka­ter) nýju lög­unum beint gegn ung­mennum. Einkum þeim sem kom­ist hefðu í kast við lögin. Hann nefndi sem dæmi að 17 ára ung­lingur sem fengið hefur 60 daga skil­orðs­bund­inn dóm á aldrei mögu­leika á að sækja um rík­is­borg­ara­rétt.

Enn­fremur segir í nýju lög­unum að ein­stak­lingur sem hefur fengið sekt, 3 þús­und krónur danskar (61 þús­und íslenskar), eða hærri getur ekki sótt um rík­is­borg­ara­rétt fyrr en sex ár verða liðin frá því að sektin var ákveðin. Sömu­leiðis segir að ein­stak­lingur sem sækir um rík­is­borg­ara­rétt skuli hafa verið í fullu starfi í þrjú og hálft ár af síð­ustu fjórum árum. Þetta skil­yrði getur sett strik í reikn­ing hjá mörgum, sem vegna COVID-19 hafa misst vinn­una og geta því ekki sýnt fram á óslitið vinnu­sam­band í 42 mán­uði, þegar sótt er um. Eva Ersbøll sér­fræð­ingur á sviði mann­rétt­inda­mála sagð­ist, í við­tali við danska útvarpið, telja að nýju lögin auki ójöfnuð. „Að úti­loka stóran hóp frá því að ger­ast full­gildir danskir þegnar er ekki góð leið.“

Og svo er það handabandið

Fram­vegis skal það vera ófrá­víkj­an­leg skylda að sá sem sækir um rík­is­borg­ara­rétt, og upp­fyllir skil­yrðin, skuli taka í hönd­ina á borg­ar­stjór­anum í sínum bæ (Danir kalla alla bæj­ar­stjóra borg­ar­stjóra) á rík­is­borg­ara­deg­inum. Þetta sagði ráð­herra inn­flytj­enda­mála eiga að koma í veg fyrir að sumir kom­ist hjá því að stað­festa rík­is­borg­ara­rétt­inn „eins og við vitum að brögð hafa verið að“. Mörgum þykir ein­kenni­legt að jafn­að­ar­menn skuli styðja „handa­bandið“ í ljósi þess að fyrir aðeins þremur árum voru þeir mjög mót­fallnir því og sátu hjá við atkvæða­greiðsl­una.

Margir borg­ar­stjórar, úr öllum flokkum, hafa lýst óánægju með að þingið skuli með þessum hætti skipta sér af slíku smá­at­riði sem handa­bandi. Einn sagði, kannski meira í gamni en alvöru ,,maður er stein­hissa á að ekki skuli vera kveðið á um hvort handa­bandið skuli vera þétt og hvað það eigi að vara lengi“.

Rík­is­borg­ara­dag­ur­inn, eða dag­arnir, eru ekki þeir sömu um allt land, í Kaup­manna­höfn verður hann næst 22. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár