Flugmaðurinn brotlenti þotunni viljandi

Flug­mað­ur­inn sem var inni í flug­stjórn­ar­klefa Germanwings þot­unnar sem hrap­aði í frönsku ölp­unum í fyrra­dag brot­lenti vél­inni vilj­andi. Þetta segir sak­sókn­ari í Marseille, sem fer með rann­sókn á flug­slys­inu.

Í morgun bár­ust fréttir af því að annar flug­mann­anna hefði verið læstur úti úr flug­stjórn­ar­klef­anum áður en vélin hrap­aði. Þetta hefur nú verið stað­fest, sem og það að mað­ur­inn sem var læstur úti var flug­stjór­inn. Hann heyr­ist á upp­tökum úr flug­rita reyna að brjóta niður dyrnar að klef­anum og kalla á flug­mann­inn, án árang­urs. Flug­mað­ur­inn sem brot­lenti vél­inni sagði ekki orð allan þann tíma. Þó heyr­ist and­ar­dráttur hans á upp­tök­unni og hann er sagður hafa verið með með­vit­und allt þangað til vélin skall á fjall­inu. „Til­gang­ur­inn var að eyði­leggja þessa vél,“ segir sak­sókn­ar­inn.

Sak­sókn­ar­inn vill ekki full­yrða að um sjálfs­morð hafi að ræða. „Hann hafði enga ástæðu til að slökkva á sam­skiptum við aðrar flug­vélar. Við heyrðum óp mín­útum áður en vélin hrap­aði.“

Flug­mað­ur­inn var þýskur, hét Andreas Lubitz, og var ekki þekktur sem hryðju­verka­maður eða neitt slíkt, að sögn sak­sókn­ar­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár