Allir prentmiðlar utan DV döluðu í lestri í júlí

Lestur allra dag­blaða lands­ins nema DV dróst saman í júlí­mán­uði. Mestur var sam­drátt­ur­inn hjá Frétta­tím­anum, en lestur hans minnk­aði um 1,26 pró­sentu­stig í mán­uð­inum. Morg­un­blaðið tap­aði 0,6 pró­sentu­stigum, Frétta­blaðið 0,35 pró­sentu­stigum og Við­skipta­blaðið 0,42 pró­sentu­stigum. Þetta kemur fram í nýjum tölum um þróun á lestri prent­miðla frá Gallup sem birtar voru á föstu­dag.

Lestur prent­miðla júlí 2015

|

Create infographics

DV spyrnir sér af botninum

Lestur DV heldur áfram að bragg­ast lít­il­lega eftir að hafa hrunið í kjöl­far eig­enda­skipta í fyrra­haust. Nú lesa 9,22 pró­sent lands­manna á aldr­inum 18-80 ára blaðið. Í maí og júní var það hlut­fall 8,6 pró­sent. DV er samt sem áður tölu­vert frá því sem hann var á meðan að Reynir Trausta­son, fyrrum aðal­eig­andi DV og rit­stjóri blaðs­ins, og sam­starfs­menn hans stýrðu blað­inu. Í mars 2014 lásu 12,34 pró­sent lands­manna blaðið.

Í dag er stærsti eig­andi og útgef­andi DV Björn Ingi Hrafns­son. Útgáfu­fé­lag hans heldur líka úti vef­miðl­unum DV.is, Eyjan.is, Pressan.is og Bleikt.is. Blaðið hefur aðeins verið að rétta út kútnum í síð­ustu lestr­ar­könn­unum eftir að hafa náð sögu­legum botni í lestri í apríl síð­astl­inum þegar lestur þess mæld­ist ein­ungis 7,44 pró­sent.

Fréttablaðið misst rúmlega fimmtung á fimm árum


Frétta­tím­inn kom fyrst út í októ­ber 2014 og er dreift frítt í 83 þús­und ein­tökum á heim­ili fólks. Þegar Frétta­tím­inn kom fyrst inn í mæl­ingar Gallup í mars 2011 mæld­ist með­al­lestur blaðs­ins 41,75 pró­sent. Þorra þess tíma sem liðið hefur frá fyrstu mæl­ing­unni hefur blaðið mælst með yfir 40 pró­sent lestur. Í mars 2014 varð breyt­ing þar á þegar lest­ur­inn fór niður í 39,78 pró­sent.

Í kjöl­farið féll hann skarpt og í sept­em­ber það ár var hann 36,95 pró­sent. Eftir að hafa tekið stökk upp á við í lestr­ar­könn­unum í vor hefur lestur Frétta­tím­ans dalað á ný í síð­ustu könn­unum. Nú lesa 37,42 pró­sent lands­manna á aldr­inum 18 til 80 blaðið og lest­ur­inn nálg­ast þá lægð sem hann var komin í fyrir ári síðan.

Hitt frí­blaðið, Frétta­blaðið, heldur áfram að dala hægt og rólega í lestri. Nú lesa 51,01 pró­sent lands­manna það. Lestur blaðs­ins fallið skarpt þegar litið er yfir lengra tíma­bil og alls um rúm­lega 20 pró­sent á síð­ustu fimm árum. Frétta­blað­inu er dreift frítt inn á heim­ili lands­ins í 90 þús­und ein­tökum sex daga vik­unnar.


Helmingi færri lesa Morgunblaðið


Morg­un­blaðið er elsta starf­andi dag­blað lands­ins. Það kom fyrst út í nóv­em­ber 1913 og hefur verið risi á íslenskum dag­blaði nán­ast alla tíð síðan. Þ.e. fyrir utan allra síð­ustu ár þegar fjarað hefur hratt undan sterkri stöðu blaðs­ins.

Í maí 2006 var með­al­lestur á Morg­un­blaðið 54,3 pró­sent, sam­kvæmt mæl­ingum Gallup sem þá mældu lestur Íslend­inga á aldr­inum 12 til 80 ára. Í dag mælir Gallup lestur Íslend­inga á aldr­inum 18 til 80 ára.

Í jan­úar 2009, tæpum þremur árum síðar, var lest­ur­inn kom­inn niður í 42,72 pró­sent og í sept­em­ber 2014 28,9 pró­sent. Í nýliðnum júlí var hann 28,74 pró­sent. Lesendur Morg­un­blaðs­ins voru því tæp­lega helm­ingi fleiri árið 2006 en þeir eru í dag.

Lang­mesta brott­fallið hefur verið í hópi les­enda undir fimm­tugu. Nú lesa ein­ungis rúm­lega 19 pró­sent Íslend­inga á aldr­inum 18 til 49 ára Morg­un­blaðið.

Við­skipta­blaðið, áskrift­ar­blað sem kemur út einu sinni í viku og ein­blínir á umfjöllun um við­skipti og efna­hags­mál, heldur áfram að sýna stöð­ug­leika og mælist nú með 11,84 pró­sent lestur. Lestur þess hefur tekið kipp það sem af er ári og í maí mæld­ist hann 12,4 pró­sent, sem er mesti lestur sem blaðið hefur mælst með síðan að það kom aftur inn í mæl­ingar Gallup í júní 2011.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár