Fyrsti samkynhneigði þingmaður Færeyja hættir í Jafnaðarmannaflokknum

Sonja Jógvans­dóttir þing­maður er hætt í Jafn­að­ar­manna­flokki Færeyja, en hún til­kynnti for­mann­inum og lög­mann­inum Aksel V. Johann­esen þetta í gær. Sonja varð í byrjun sept­em­ber fyrsti opin­ber­lega sam­kyn­hneigði ein­stak­ling­ur­inn til þess að vera kjör­inn á fær­eyska þingið.

Ástæðan er sú að borg­ara­legar hjóna­vígslur fyrir sam­kyn­hneigða eru ekki í stefnu­skrá nýrrar rík­is­stjórnar í Færeyjum. Eitt af mál­unum sem Sonja lagði hvað mesta áherslu á í kosn­inga­bar­áttu sinni voru rétt­indi sam­kyn­hneigðra. Hún skrif­aði á Facebook-síðu sína í gær­kvöldi að hún gæti ekki sem sam­kyn­hneigð kona til­heyrt flokki sem kæmi í veg fyrir þessa rétt­inda­bót. Hún vissi að margir í flokknum væru fylgj­andi því að breyta lög­unum en hún vildi ekki vera hluti flokks þar sem for­dómar nokk­urra komi í veg fyrir rétt­indi minni­hluta­hópa. Hún mun þó áfram verja stjórn­ina falli því hún vilji halda meiri­hluta vinstri­flokka við völd.

Í Færeyjum kjósa kjós­endur bæði flokka og staka ein­stak­linga og hlaut Sonja þriðja mesta fjölda atkvæða ein­stak­linga á eftir for­mönnum þeirra tveggja flokka sem unnu mestan kosn­ing­ar­sigur. Formenn frá­far­andi stjórn­ar­flokka fengu báðir færri atkvæði en Sonja. Með árangri sínum braut hún blað í sögu Færeyja því hún er fyrsti opin­ber­lega sam­kyn­hneigði ein­stak­ling­ur­inn til að setj­ast á fær­eyska þingið.

Javn­að­ar­flokk­ur­inn, undir for­ystu Aksel V. Johann­esen, var sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna í byrjun mán­að­ar­ins. Flokk­ur­inn fékk um 25 pró­sent atkvæða og náði átta mönnum inn á þing. Sam­steypu­stjórn Kaj Leo Johann­es­sen, frá­far­andi lög­manns Færeyja, féll í kosn­ing­unum. Sam­bands­flokkur hans hlaut tæp­lega 19 pró­senta fylgi og sex þing­menn. Fólka­flokk­ur­inn fékk svipað fylgi en Framsókn og Mið­flokk­ur­inn fengu tvo þing­menn hvor. Þá náði Þjóð­veld­is­flokk­ur­inn sjö þing­mönnum inn á þing. Nýtt sjálv­stýri fékk síðan tvo þing­menn. Það mun­aði aðeins einum þing­manni að frá­far­andi stjórn næði að halda meiri­hlut­anum.

Að sumu leyti er stefnu­skrá nýja meiri­hlut­ans, Jafn­að­ar­manna­flokks­ins, Þjóð­veld­is­flokks­ins og Fram­sóknar, rót­tæk. Þar er kveðið á um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um breytta stjórn­skipun sem á að tryggja Fær­ey­ingum full­veldi. Þá er kveðið á um það að breyt­ingar verði gerðar á fisk­veiði­stefnu og fiskur skuli verða skil­greindur sem eign þjóð­ar­innar. Við­skipti með veiði­rétt­indi og afla­heim­ildir eigi því ekki að eiga sér stað á almennum mark­aði.

Þá vilja flokk­arnir bæta ald­urs- og kynja­sam­setn­ingu fær­eysku þjóð­ar­innar, en ungt fólk og konur hafa flutt frá Færeyjum und­an­farin ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár