Skrif upplýsingafulltrúa ríkisstjórnar samræmast ekki stöðu hans

Óttarr Proppé segir að skrif Sigurðar Más Jóns­sonar, upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar, í Þjóðmál um stjórn­ar­skrár­mál „sam­ræm­ist ekki stöðu hans.“ Sigurður Már líkti til­lögum Stjórn­laga­ráðs við stjórn­ar­skrár­breyt­ingar í Venes­ú­ela.

Óttarr Proppé, heil­brigð­is­ráð­herra og for­maður Bjartrar fram­tíðar, telur að þau ummæli um stefnu­mörkum rík­is­stjórn­ar­innar í stjórn­ar­skrár­málum sem Sigurður Már Jónsson, upp­lýs­inga­full­trúi hennar, lét falla í nýlegri grein í Þjóð­málum, sam­ræm­ist ekki stöðu hans. Þetta kemur fram í svari Óttarrs við fyr­ir­spurn Kjarnans. Í grein­inni í Þjóð­málum, sem ber fyr­ir­sögn­ina „Banka­hrun og bylt­inga­stjórn­ar­skrá“, tengir Sigurður Már til­lögur Stjórn­laga­ráðs að nýrri stjórn­ar­skrá við hug­mynda­fræði ítalska komm­ún­ist­ans Antonio Negri og við þær stjórn­ar­skrár­breyt­ingar sem Hugo Chavez, fyrr­ver­andi for­seta Venes­ú­ela, inn­leiddi til að auka völd sín.

Óttarr setur þann fyr­ir­vara að hann hafi ekki lesið sjálfa grein­ina heldur ein­ungis end­ur­sögn Stund­ar­innar úr grein­inni. „Það sem hér kemur fram er í mót­sögn við stefnu Bjartrar fram­tíðar, sér­stak­lega áherslur á sátt og vönduð vinnu­brögð. Þá eru þessi ummæli úr takti við stefnu rík­is­stjórn­ar­innar sem birt­ist í stjórn­ar­sátt­mál­anum. Með þeim fyr­ir­vara að hafa ekki kynnt mér téða grein finnst mér þessi ummæli um stefnu­mörkun rík­is­stjórn­ar­innar illa sam­ræm­ast stöðu upp­lýs­inga­full­trúa hennar.“

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Við­reisnar, seg­ist ekki hafa lesið grein­ina í Þjóð­málum og vill þess vegna ekki ræða efni hennar.

Nýja stjórnarskráin sem varð aldrei að veruleika

Í grein­inni fjallar Sigurður Már um stjórn­ar­skrár­mál og rekur það ferli sem átti sér stað þegar kosið var til Stjórn­laga­þings, sem síðar breytt­ist í Stjórn­laga­ráð. Það ráð lagði fram frum­varp um miklar breyt­ingar á stjórn­ar­skrá íslenska lýð­veld­is­ins árið 2011. Kosið var um til­­lögur ráðs­ins haustið 2012 þar sem tveir af hverjum þremur sem tók þátt í kosn­­ing­unum sagð­ist vilja að til­­lögur ráðs­ins yrðu lagðar til grund­vallar nýrri stjórn­­­ar­­skrá. Í til­­lög­unum var meðal ann­­ars að finna ákvæði um að auð­lindir yrðu þjóð­­ar­­eign og að til­­­tekið hlut­­fall kosn­­inga­­bærra manna geti kraf­ist þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðslu.

[links]Þar voru einnig til­­lögur um stór­tækar breyt­ingar á íslenska kosn­­inga­­kerf­inu þar sem lagt var til að heim­ila aukið per­­són­u­­kjör og að atkvæði lands­­manna myndu öll gilda jafn mik­ið, en mikið ósam­ræmi er í því vægi á milli lands­hluta í dag. Báðar til­­lög­­urnar voru sam­­þykktar með yfir­­­gnæf­andi meiri­hluta í þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðsl­unni í októ­ber 2012. Þrátt fyrir það hafa þessar breyt­ingar á stjórn­ar­skrá ekki orðið að veru­leika.

Á síð­asta kjör­tíma­bili var skipuð þverpól­tísk stjórn­ar­skrár­nefnd sem skil­aði af sér nið­ur­stöðu í þremur frum­vörpum í byrjun árs í fyrra. Fyrsta var um ákvæði um auð­lind­ir nátt­úru Íslands og að þær séu þjóð­­ar­­eign. Annað frum­varpið um um­hverfi og nátt­úru þar sem mælt er fyr­ir um ábyrgð á vernd nátt­úru og að var­úð­­ar- og lang­­­tíma­­­sjón­­­ar­mið verði höfð að leið­­ar­­ljósi. Ekki náð­ist sátt um að ráð­ast í þessar breyt­ingar á síð­asta kjör­tíma­bili.

Ber saman við Venesúela

Sigurður Már ber hina nýju stjórn­ar­skrá sem kosið var um saman við stjórn­ar­skrá Hugo Chavez, for­seta Venes­ú­ela. Sú stjórn­ar­skrá gerði það að verkum að kjör­tíma­bil for­set­ans var lengt í sex ár og veitti honum heim­ild til að leysa upp þing lands­ins. Síðar var sam­þykkt stjórn­ar­skrár­breyt­ing sem fól í sér að tak­mark­anir á fjölda kjör­tíma­bila sem for­seti Venes­ú­ela mátti sitja var afnumin.

Mikill munur er á þeim hópi sem sat í stjórn­ar­skrár­ráði Íslands og þeim hópi sem setti saman nýja stjórn­ar­skrá Venes­ú­ela á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Hér sátu til að mynda þjóð­kjörnir full­trúar í ráð­inu en fram­kvæmda- og lög­gjaf­ar­valdið kom ekki með neinum beinum hætti að vinnu ráðs­ins á meðan að hún stóð yfir. Í Venes­ú­ela var Stjórn­laga­ráð að mestu skipað sam­flokks­mönnum þáver­andi for­seta lands­ins.

Sigurður Már fjallar einnig um ítalska komm­ún­ist­ann Antonio Negri, sem var ráð­gjafi við gerð stjórn­ar­skráar Venes­ú­ela. Hann rifjar upp að Negri hafi verið boðið til Íslands af félags­skapnum Nýhil. Í grein sinni segir Sigurður Már: „Þess má geta að heim­spek­ing­ur­inn Viðar Þor­steins­son, sem var einn þeirra sem stóð fyrir komu Negri hingað í nafni félags­skap­ar­ins Nýhils, er bróðir Vil­hjálms Þor­steins­sonar. Vil­hjálmur sat í Stjórn­laga­ráði sem síðar sam­þykkti frum­varp til stjórn­skip­un­ar­laga eða þá stjórn­ar­skrá sem ætl­unin er að þrýsta í gegn á næsta þingi eins og til dæmis Píratar hafa lagt mikla áherslu á.“

Vil­hjálmur Þor­steins­son er hlut­hafi í Kjarn­anum. Sigurður Már segir að hann telj­ist óneit­an­lega til auð­manna hér á Íslandi. „Fyr­ir­tæki í hans eigu reynd­ust vera í skatta­skjólum og hann er næst stærsti hlut­haf­inn vef­mið­ils­ins Kjarnans sem nýtur vel­þókn­unar vinstri sinn­aðra mennta­manna.“ Sigurður Már rök­styður ekki þessa full­yrð­ingu sína nánar.

Vill ákveðnar breytingar

Í nið­ur­lagi grein­ar­innar kemst Sigurður Már að þeirri nið­ur­stöðu að það séu flestir sam­mála um að breyt­ingar megi gera á gild­andi stjórn­ar­skrá. Hann er þó andsnú­inn því að hin nýja stjórn­ar­skrá, sem var afrakstur vinnu Stjórn­laga­ráðs, taki gildi. Andstaða þing­manna sem séu ann­arrar skoð­unar en hann í mál­inu hafi hins vegar komið í veg fyrir að sátt næð­ist um minni breyt­ingar á síð­asta kjör­tíma­bili. „Það er hins vegar afar mik­il­vægt að nýtt þing ljúki þeirri vinnu á sömu for­sendum og lagt var upp með.[...]Hugs­an­lega má end­ur­ræsa ferlið með slíkum aðgerðum ef víð­tæk sam­staða næst um það. Óvíst er að það sé ger­legt á meðan t.d. Píratar hafa þann þing­styrk sem þeir hafa núna.“

Bæði Björt fram­tíð og Viðreisn, sem í jan­úar mynd­uðu rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki, fjalla með skýrum hætti um stjórn­ar­skrár­mál í stefnu­skrám sínum. Og báðir flokk­arnir leggja til­lögur Stjórn­laga­ráðs til grund­vallar þeirri stefnu.

Á heima­síðu Við­reisn­ar,undir liðnum „Mál­efn­in“, segir um stjórn­ar­skrár­mál:„Ná þarf sam­komu­lagi um heild­stætt, skýrt og tíma­sett ferli sem hefur að mark­miði að til verði ný stjórn­ar­skrá. Það ferli á að taka mið af til­lögum Stjórn­laga­ráðs og annarri vinnu að breyt­ingum á síð­ari stig­um.“ Í póli­tískum áherslum Bjartrar fram­tíð­ar, eins og þær eru fram settar á heima­síðu flokks­ins, seg­ir: „Setjum þjóð­inni nýja stjórn­ar­skrá á grunni til­lagna Stjórn­laga­ráðs, í sem mestri sátt. Vöndum okk­ur.“

Stjórn­ar­skrár­mál röt­uðu líka inn í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Bjarna Bene­dikts­son­ar. Þar segir að unnið verði að end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár lýð­veld­is­ins Íslands á grund­velli þess viða­mikla starfs sem átt hefur sér stað und­an­farin ár. Rík­is­stjórnin muni bjóða öllum þing­flokkum á Alþingi að skipa full­trúa í þing­manna­nefnd sem muni starfa með fær­ustu sér­fræð­ingum á sviði stjórn­skip­unar að sem bestri sátt um til­lögur að breyt­ingum sem verði lagðar fram eigi síðar en árið 2019.

Sigurður Már var end­ur­ráð­inn upp­lýs­inga­full­trúi nýrrar rík­is­stjórnar, en hann var upp­haf­lega ráð­inn í starfið af af rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár