SA og SAF vilja frumvarp um ríkisábyrgð til Icelandair samþykkt í óbreyttri mynd

Samtök atvinnu­lífs­ins og Samtök Ferða­þjón­ust­unnar sendu saman frá sér umsögn um frum­varp um rík­is­á­byrgð til Icelandair. Rík­is­end­ur­skoðun segir í sinni umsögn það vera mögu­leika í stöð­unni að ríkið eign­ist hlut í félag­inu en tekur ekki afstöðu til þess.

Samtök atvinnu­lífs­ins og Samtök ferða­þjón­ust­unnar styðja það og hvetja til þess að frum­varp fjár­mála­ráð­herra um rík­is­á­byrgð vegna Icelandair verði sam­þykkt í óbreyttri mynd. Þetta kemur fram í umsögn um frum­varpið sem sam­tökin sendu sam­eig­in­lega frá sér.

Fyrstu umræðu um frum­varpið lauk á föstu­dag og mál­inu í kjöl­farið vísað til fjár­laga­nefndar. Með frum­varp­inu til fjár­auka­laga er lögð til heim­ild handa ráð­herra til að veita Icelandair sjálf­skuld­ar­á­byrgð frá rík­is­sjóði á lánum vegna tekju­falls félags­ins vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Gert er ráð fyrir að heild­ar­skuld­bind­ing rík­is­sjóðs jafn­gildi allt að 15 millj­örðum króna.

Afskipti hins opinbera megi ekki vera of mikil

Í umsögn­inni er tekið fram að sam­tökin bæði séu ekki fylgj­andi miklum rík­is­af­skiptum. „Samtökin hafa alltaf verið þeirrar skoð­unar að afskipti hins opin­bera af atvinnu­líf­inu megi ekki vera of mikil. Tvær hliðar eru á þeim pen­ingi. Annars vegar að laga- og skattaum­hverfi megi ekki vera of íþyngj­andi fyrir atvinnu­lífið til að draga ekki um of úr sam­keppn­is­hæfni þess. Hins vegar að forð­ast eigi að beita íviln­unum fyrir ein­stök fyr­ir­tæki og atvinnu­greinar, heldur að skapa almennt gott rekstr­ar­um­hverfi,“ segir þar.

Þar segir að nú sé uppi for­dæma­laus staða í íslensku efna­hags­lífi. Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hafi einna mest áhrif á ferða­þjón­ustu og í sam­an­burði við önnur vest­ræn ríki séu áhrif ferða­þjón­ustu á efna­hag einna mest hér á landi.

Kerfislega mikilvægt félag

Í umsögn sinni segja sam­tökin Icelandair vera kerf­is­lega mik­il­vægt fyrir Ísland að tvennu leyti:. „Annars vegar sem hluti af mik­il­vægum sam­göngu­innviðum fyrir Íslend­inga til að gefa þeim kost á að ferð­ast til og frá land­inu. Hins vegar flytur eng­inn fleiri ferða­menn til lands­ins.“

Ólíklegt sé að erlend flug­fé­lög myndu sinna þessu hlut­verki með sama hætti og að mati sam­tak­anna eru því líkur á að fjöldi áfanga­staða fækki og flug­tíðni lækki, fari svo að Icelandair hyrfi af mark­aðnum. Þar að auki segja sam­tökin það skapa fleiri störf að hafa flug­fé­lag með bæki­stöðvar á land­inu.

Samtökin telja það að með því að veita ábyrgð á láni, í stað þess að leggja til lánsfé eða hlutafé, sé áhætta skatt­greið­anda af stuðn­ingi við Icelandair lág­mörkuð. „Tryggt er að ríkið verði síð­ast inn og fyrst út, eins og fjárm ála- og efna­hags­ráð­herra hefur orðað það. Sú útfærsla á stuðn­ingnum er því til fyr­ir­myndar,“ segir um frum­varpið í umsögn­inni. Samtökin styðja það því bæði að frum­varpið verði klárað óbreytt.

Möguleiki í stöðunni að ríkið eignist hlut í félaginu

Rík­is­end­ur­skoðun segir helsta álita­mál frum­varps­ins vera hvernig trygg­ingum fyrir lánið ætti að vera háttað. Í umsögn frá Rík­is­end­ur­skoðun segir að frum­varpið sé fáort um þetta en „Ijóst má vera að veð­hæfi félags­ins er orðið þannig að lítið er um hefð­bundin veð sem unnt væri að setja til trygg­ingar láni nema þá að vera aft­ar­lega í veð­röð.“

Að mati rík­is­end­ur­skoð­unar er ósenni­legt að þær eignir sem settar verði fram sem trygg­ing fyrir end­ur­heimt sam­kvæmt frum­varp­inu standi undir kröfum, ef allt fer á versta veg í rekstri félags­ins. Það sé því ástæða til að velta fyrir sér hvort sviðs­myndir sem stjórn­endur Icelandair settu upp séu raun­hæfar að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Annar mögu­leiki í stöð­unni væri sá að rík­is­sjóður eign­að­ist hlut í félag­inu ef gengið yrði á ábyrgðir sam­kvæmt umsögn Rík­is­end­ur­skoð­unar. Hrein­lega gæti ríkið tekið rekstur félags­ins yfir með það fyrir augum að finna síðar mögu­lega eig­endur segir þar enn fremur. Það sé þó póli­tík­ur­innar að ákveða það: „Þetta eru á hinn bóg­inn ákvarð­anir sem byggj­ast á stjórn­mála­legum for­sendum sem umsögn þessi nær ekki til og rík­is­end­ur­skoð­andi tekur ekki afstöðu til.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár