Sáu ekki ljósið við enda ganganna

Þrátt fyrir vask­lega verk­stjórn Pírata þá tókst ekki að koma saman rík­is­stjórn fimm flokka. Tvær til­raunir til þess hafa ekki heppn­ast. Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins vill nýta tím­ann milli jóla og nýárs í að koma saman stjórn.

Önnur til­raun flokk­anna fimm, Vinstri grænna, Við­reisnar, Bjartrar fram­tíðar, Pírata og Sam­fylk­ing­ar­innar, til að mynda rík­is­stjórn, fór út um þúfur í gær. Birgitta Jóns­dóttir greindi Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands, frá þessu og missti hún stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið í kjöl­farið.

Áður hafði til­raun Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, ekki gengið upp. Bjarni Bene­dikts­son náði heldur ekki að mynda stjórn með Bjartri fram­tíð og Viðreisn, eftir að hafa fengið umboð fyrstur stjórn­mála­leið­toga, og því hafa þrjár til­raunir runnið út í sand­inn. Viðræður flokka hafa ekki skilað neinu í sex vikur. Stjórn­ar­kreppa er stað­reynd og hefur for­set­inn gefið flokk­unum vik­una til að reyna að ná saman um myndun rík­is­stjórnar.

Greina mátti skarpan tón í yfir­lýs­ingu for­set­ans í gær þar sem hann sagði stöð­una vera alvar­lega. „Í dag hef ég rætt við for­menn ann­arra stjórn­mála­flokka á Alþingi um þá al­var­legu stöðu sem upp er kom­in. Rúmar sex vikur eru liðnar frá kosn­ingum þeg­ar ráðu­neyti Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar missti meiri­hluta sinn á þingi og hann bað­st ­lausnar fyrir hönd þess. Nú hafa for­menn eða full­trúar þriggja stærstu flokk­anna á Al­þingi allir haft umboð for­seta til stjórn­ar­mynd­un­ar. Ýmsar leiðir hafa verið rædd­ar og reynd­ar. Í ljósi þeirra sjón­ar­miða sem fram komu í við­ræðum mínum við flokks­leið­toga í dag hef ég ákveðið að veita engum þeirra umboð til stjórn­ar­mynd­unar að sinni. Þess í stað hvatti ég þá til að ráða ráðum sínum og kanna með óform­legum við­ræðum sín á milli hvaða leiðir eru enn mögu­legar til mynd­unar rík­is­stjórnar sem njót­i ­meiri­hluta­stuðn­ings á Alþingi eða geti að minnsta kosti varist þar van­trausti,“ sagði Guðni í yfir­lýs­ingu sinni.

Ólíkar áherslur í mörgum málaflokkum

Við­mæl­endur Kjarnans í flokk­unum fimm, bæði á meðal þing­manna og í bak­landi þeirra, voru hver með sína skýr­ingu á því hvernig fór en ljóst er að nokkrir mála­flokkar reynd­ust snún­ari en aðrir í við­ræð­unum. Sér­stak­lega voru þetta almennar áherslur í rík­is­fjár­mál­unum og hvernig þær ættu að vera og síðan hug­myndir um breyt­ingar í rót­grónu atvinnu­veg­unum tveimur, land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­málum. Ástæða þess að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar fór út um þúfur í þetta skiptið var helst sú að áherslur flokk­anna voru - vítt og breitt - of ólíkar í of mörgum mála­flokkum þegar á hólm­inn var komið. Að vissu leyti fyr­ir­sjá­an­legur vandi, þegar fimm ólíkir flokkar eru ann­ars vegar, og það kom á dag­inn að þetta reynd­ist erfitt.

For­ystu­fólkið sá lokum ekki ljós við enda gang­anna og því var við­ræð­unum hætt og til­kynntu Píratar for­seta Íslands það. Allir flokkar voru þó sam­mála um að for­gangs­raða í þágu heil­brigð­is­mála, mennta­mála og inn­viða­fjár­fest­inga í land­inu, og þá var einnig búið að ná sátt um mál sem snéru að Evr­ópu­sam­band­inu og end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar.

Sátt um útfærslur í rík­is­fjár­málum, það er hvernig átti að fjár­magna aukin fram­lög til fyrr­nefndra mála­flokka, náð­ist ekki fram og var sér­stak­lega mein­ing­ar­munur milli Vinstri grænna og Við­reisnar í þeim efnum. Flokk­arnir vildu þó báðir halda sig við mark­mið rík­is­fjár­mála­á­ætl­unar, um að skila ríku­legum afgangi af rekstri rík­is­sjóðs. Vinstri græn vildu fjár­magna aukin fram­lög til heil­brigðis- og mennta­mála með hátekju- og auð­legð­ar­sköttum, en ekki náð­ist sátt um útfærslur þegar að þessu kom.

Sjávarútvegur og landbúnaður þrætuepli

Í við­ræð­unum var rætt tölu­vert um upp­boðs­leið í sjáv­ar­út­vegi og hvernig mætti útfæra hana. Nokkur sam­hljómur er í stefnu Við­reisnar, Bjartrar fram­tíðar og Sam­fylk­ing­ar­innar í þessum efnum, og sama má segja um Pírata. Vinstri græn sögð­ust opin fyrir upp­boðs­leið, líkt og kom fram í stefnu flokks­ins fyrir kosn­ingar, en umræður snér­ust um útfærslur ekki síst.

Meðal ann­ars var rætt um að setja hluta af afla­hlut­deild hvers árs á markað og voru hug­myndir um 3 til 5 pró­sent af heild­inni ræddar og með end­ur­ráð­stöf­un­ar­tíma frá 20 til 33 árum. Þá var einnig rætt um veiði­gjöld og hvernig mætti leggja þau á og hverju þau gætu skilað í rík­is­sjóð, án þess að kippa stoð­unum undan byggð á þeim stöðum í land­inu þar sem sjáv­ar­út­vegur er hryggjar­stykkið í atvinnu­líf­inu.

Líkt og var með land­bún­að­ar­málin - þar sem rætt var meðal ann­ars um mik­il­vægi þess að koma á virkri sam­keppni, í sam­ræmi við sam­keppn­is­lög - þá var umræða um þessi mál ekki lokið með neinni skýrri nið­ur­stöðu, en mein­ing­ar­mun­ur­inn var aug­ljós.

For­ystu­fólk flokk­anna mat það svo að ekki yrði lengra kom­ist, þar sem mik­ill og almennur áherslu­munur milli flokk­anna kall­aði á mikla mála­miðl­un­ar­vinnu. Við­mæl­endur Kjarnans hrósuðu Pírötum fyrir góða verk­stjórn, og svo virt­ist sem þeirra helst vopn - þvert á það sem margir héldu fyrir kosn­ingar - kæmi þarna í ljós; hæfi­leik­inn til að miðla málum og horfa á álita­málin út frá bestu lausn í hvert og eitt skipti.

Hvað gerist næst?

Forysta Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur beðið á hlið­ar­lín­unni und­an­farnar sex vikur og sé mið tekið af því hvernig atkvæðin skipt­ust í kosn­ing­unum, og hvernig röðin hefur verið í stjórn­ar­mynd­un­ar­til­raunum til þessa, þá gæti Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, freistað þess að nýta nú tæki­færið og reyna að mynda rík­is­stjórn. Þar kemur helst sam­starf Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins til greina, eins og stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar hafa þró­ast. Innri átök í Fram­sókn­ar­flokknum á 100 ára afmæl­is­ári flokks­ins hafa sjaldan verið meiri og hefur flokk­ur­inn varla kom­ist neitt að valda­þráðunum í við­ræð­unum til þessa.

Í við­tali við RÚV í gær sagði Sigurður Ingi að mik­il­væg­ast væri að ljúka vinn­unni í þing­inu og klára fjár­lögin, en eins og staða mála væri þá yrði tím­inn milli jóla og nýárs mögu­lega nýttur til að stilla saman strengi. Vafa­lítið reyna flokk­arnir þó áfram til þrautar að ná saman rík­is­stjórn, en erfitt að sjá hvernig mynstrið verður eftir það sem á undan er gengið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár