Stærsta áskorunin að koma í veg fyrir annan faraldur

Sótt­varna­læknir segir að aflétta verði hægt og var­lega þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til hér á landi vegna veirunnar. Það verði okkar stærsta áskorun næstu vikur og mán­uði.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: EPA

Tíu liggja nú á gjör­gæslu Land­spít­al­ans með COVID-19. Sex þeirra eru í önd­un­ar­vél. Sex sjúk­lingar á Landa­koti eru sýktir og þeir eru allir á tíræð­is­aldri. 66 ný smit greindust hér á landi síð­asta sól­ar­hring­inn.

Þetta er meðal þess sem fram kom á dag­legum upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

„Far­ald­ur­inn er í til­tölu­lega hægum línu­legum vexti, ekki veld­is­vexti,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Vöxt­ur­inn fylgir spálík­ani vís­inda­manna Háskóla Íslands hvað fjölda smita varðar. Hvað varðar fjölda alvar­legra veikra sem þurfa inn­lögn á gjör­gæslu er hann hins vegar að fylgja svart­sýn­ustu spá enn sem komið er.

Þórólfur nefndi tvennt sem styður það að aðgerðir hér á landi hafi skilað árangri; að um helm­ingur allra nýgreindra er þegar í sótt­kví og að enn grein­ast fá smit hjá Íslenskri erfða­grein­ingu sem bendi til að smit úti í sam­fé­lag­inu sé lítið.

„Það er alveg ljóst að okkur hefur tek­ist að sveigja vöxt­inn á þess­ari veiru af leið og niður,“ sagði Þórólfur. Í mörgum öðrum löndum sé vöxt­ur­inn hins vegar mjög mik­ill. „Við getum verið nokkuð ánægð með þennan árangur“ sem hafi náðst með því að grípa til nokkuð harðra aðgerða frá fyrsta smiti.

[adspot]

Þórólfur sagði að lands­menn þyrftu að und­ir­búa sig undir það að aðgerðir sem gripið hefur verið til, s.s. sam­komu­bann, verði fram­lengdar. Ekki væri búið að taka ákvörðun um hvenær þeim verði aflétt en nokkuð ljóst væri að það þurfi að gera mjög hægt og var­lega. Ef það ger­ist of hratt gæti það skapað hættu á því að far­ald­ur­inn blossi upp aftur, sér­stak­lega á meðan smit eru útbreidd ann­ars staðar í heim­inum. Þetta verður, að sögn Þórólfs, okkar mesta áskorun næstu vikur og mán­uði. „Við getum lent í öðrum far­aldri ef við pössum okkur ekki,“ sagði hann.

Ekki væri á þess­ari stundu fyr­ir­hugað að grípa til hert­ari aðgerða. Spurður hvort að til greina kæmi að hætta að beita sótt­kví sagði Þórólfur það „alls ekki“ standa til. Þvert á móti hefði sýnt sig að sú aðgerð væri að skila árangri. „Við erum að ná fólki sem hugs­an­lega hefur smit­ast og koma í veg fyrir að fólk smiti út frá sér.“

Ekki vitað hvernig smit barst á Landakot

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, sagði á fund­inum að á Land­spít­al­anum væru 30 sjúk­lingar með stað­fest COVID-19 smit. Starfs­menn Land­spít­al­ans eru svo margir í sótt­kví eða 268 og 38 eru í ein­angrun.

Hann greindi einnig frá því að búið væri að bæta við rúmum á gjör­gæslu­deild­ina í Fossvogi. Þar eru venju­lega sex rúm en þeim hefur verið fjölgað í átján.

Hvað öldr­un­ar­deild­ina á Landa­kots­spít­ala varðar, þar sem sex sjúk­lingar eru með stað­fest COVID-19 smit, sagði hann að ekki væri vitað til þess að sjúk­lingur hefði sýkt starfs­mann en spurn­ingin væri hvort að starfs­maður hefði smitað sjúk­ling. Reynt hafi verið að kom­ast að því með ítar­legri smitrakn­ingu. Það hafi ekki tek­ist „Okkar mat er að það er ómögu­legt að kom­ast nákvæm­lega til botns í því hvað var til þess að sýk­ing byrj­aði á Land­skoti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár