Risakönnun sýnir forskot Hillary Clinton meðal kjörmanna

Nú þegar níu vikur eru til for­seta­kosn­inga í Banda­ríkj­unum hefur Hillary Clinton sterka stöðu í mörgum bar­áttu­ríkjum og nokkrum ríkjum þar sem Repúblikana­flokk­ur­inn hefur alltaf verið sterkur. Þetta gefur henni mikið for­skot meðal kjör­manna­ráðs­ins, sam­kvæmt nýrri könnun frá Washington Post, sem birt var í morgun.

Könnun Washington Post var gerð í sam­starfi við Sur­veyMon­key og er stærsta könnun sem blaðið hefur nokkurn tím­ann ráð­ist í. Könnunin var gerði í öllum 50 ríkjum Banda­ríkj­anna og byggir á svörum frá yfir 74 þús­und skráðum kjós­endum.

Meðal þess sem könn­unin sýnir er einn stærsti veik­leik­inn í kosn­inga­bar­áttu Donalds Trump, fram­bjóð­anda Repúblikana­flokks­ins. Það er að stuðn­ingur við hann, sem fram­bjóð­anda repúblik­ana, er minni en dæmi eru um hjá háskóla­mennt­uðum, hvítum kjós­endum, sér­stak­lega konum. Hvítir, háskóla­mennt­aðir hafa verið tryggir kjós­endur repúblik­ana í síð­ustu kosn­ingum en Clinton hefur for­skot á Trump meðal þess­ara kjós­enda víð­ast hvar um landið, þar með talið í ríkjum sem eru yfir­leitt alltaf örugg repúblik­ana-ríki.

Könnunin kemur í kjöl­far ann­arra kann­anna sem hafa sýnt að bilið í stuðn­ingi milli fram­bjóð­end­anna tveggja fari minnk­andi. Clinton var komin með 8-10 pró­senta for­skot í kjöl­far lands­funda flokk­anna í sumar en nú hefur það bil minnkað veru­lega.

Washington Post segir að margt í þeirra nið­ur­stöðum sé í sam­ræmi við aðrar kann­anir, en ekki allt. Trump hefur örlítið for­skot í tveimur bar­áttu­ríkjum – Ohio og Iowa – og er nálægt því í Wisconsin, Penn­syl­vaniu og Michigan. Þrjú síð­ast­nefndu ríkin hafa kosið demókrata í síð­ustu sex kosn­ingum. Á sama tíma er hann hins vegar í vand­ræðum í ríkjum sem repúblikanar hafa unnið, og ríkjum sem hann yrði að vinna í ef hann ætti að eiga mögu­leika á for­seta­stólnum. Meðal þess­ara ríkja eru Arizona, Georgia og Texas.

Clinton leiðir meðal kjörmannaráðsins

Í Banda­ríkj­unum velur kjör­manna­ráð (e. Electoral College) for­seta form­lega. Öll ríki velja full­trúa í þetta ráð og hvert ríki fær jafn marga full­trúa og það hefur á þingi. Að auki fær District of Columbia, eða Washington-borg, jafn marga full­trúa og það ríki sem hefur fæsta full­trúa þar sem borgin til­heyrir engu ríki. Fjöldi þeirra full­trúa er núna þrír, sem gerir 538 full­trúa í kjör­manna­ráð­inu. 270 full­trúa þarf til að bera sigur úr býtum.

Samkvæmt könnun Washington Post hefur Hillary Clinton 4% for­ystu eða meira í 20 ríkjum og Washington-borg. Samtals eru það 244 kjör­menn, eða 26 færri en þarf til að vinna. Á sama tíma er Trump einnig með 4% eða meiri for­ystu í 20 ríkjum, en þau ríki gefa aðeins 126 kjör­menn. Í 10 ríkj­unum sem eftir standa eru 168 kjör­menn í boði, og þar hefur hvor­ugur fram­bjóð­and­inn 4% for­ystu eða meira.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár