Hvernig skal haga sér í sóttkví: Lítil hætta á að smita aðra í gönguferð

Farðu út á svalir og dragðu djúpt að þér and­ann. Farðu út í garð, hlust­aðu á fugla­söng­inn og athug­aðu með vor­lauk­ana. Farðu í göngu­ferð eða bíltúr. Það að vera í sótt­kví þýðir ekki að þú þurfir að loka þig af svo lengi sem þú ferð að öllu með gát.

Að njóta fallegs sólarlags er gott fyrir andlegu heilsuna.
Að njóta fal­legs sól­ar­lags er gott fyrir and­legu heils­una. Mynd: EPA

Yfir 1.700 manns eru nú í sótt­kví á Íslandi vegna nýju kór­ónu­veirunnar. Smit hafa greinst hjá 180 og er það fólk í ein­angrun. Þrír eru á sjúkra­húsi vegna veiru­sýk­ing­ar­innar COVID-19.

Fólk þarf að fara í sótt­kví þegar það hefur mögu­lega smit­ast þrátt fyrir að finna engin ein­kenni. Þeir sem eru í mestri smit­hættu eru þeir sem hafa verið á ferða­lagi á skil­greindum áhættu­svæðum og þeir sem hafa umgeng­ist fólk sem svo hefur greinst með COVID-19.

Sóttkví vegna COVID-19 eru 14 dagar frá síð­asta mögu­lega smiti eða þar til ein­kenni koma fram. Ef þú ferð að upp­lifa ein­kenni og sýk­ing er stað­fest í kjöl­farið þarf að fara eftir leið­bein­ingum um ein­angrun í heima­húsi.

Sóttkví er nauð­syn­leg aðgerð sem beitt er til að hefta og hægja á útbreiðslu smits. Þeir sem eru í sótt­kví skulu tak­marka öll náin sam­skipti við annað fólk.

Smitleið er snerti- eða dropa­smit. Það þýðir að veiran getur dreifst þegar veikur ein­stak­lingur hóstar, hnerrar eða þurrkar sér um nefið og hraustur ein­stak­lingur fær framan í sig dropa/úða frá þeim veika eða hendur hans meng­ast af dropum og hann ber þær svo upp að and­liti snu. Ein­stak­lingar í sótt­kví þurfa að gæta vel að hand­hreinsun, sér­stak­lega þegar sam­skipti við aðra eru óhjá­kvæmi­leg.

Í leið­bein­ingum emb­ættis land­læknis fyrir almenning varð­andi sótt­kví í heima­húsi kemur fram að fólk í sótt­kví eigi að halda sig heima við og hafa bein sam­skipti við sem fæsta. Þá eigi það ekki að fara út af heim­ili „nema brýna nauð­syn beri til”. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá land­lækn­is­emb­ætt­inu er þar átt við þegar fólk þarf mögu­lega að fara út úr húsi og hugs­an­lega útsetja aðra fyrir smiti, t.d. ef það þarf skyndi­lega að leita sér lækn­is­að­stoðar. „Í göngu­ferð eða bíltúr eru litlar sem engar líkur á að þú smitir aðra,” segir í svari Kjartans Hreins Njáls­sonar, upp­lýs­inga­full­trúa land­læknis við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Hér að neðan eru nokkur atriði sem fólk í sótt­kví MÁ GERA og önnur sem það MÁ EKKI GERA.

Ein­stak­lingur í sótt­kví má ekki nota almenn­ings­sam­göngur eða leigu­bíla. Ef hann þarf að sækja heil­brigð­is­þjón­ustu má hann nota einka­bíl ef hann er öku­fær eða aðrir sem eru með honum í sótt­kví, ann­ars þarf að fá aðstoð við sjúkra­flutn­inga í gegnum 1700/112.

Ein­stak­lingur í sótt­kví má ekki fara til vinnu eða skóla þar sem aðrir eru. Hann getur þurft að fá vott­orð þess efnis frá heilsu­gæsl­unni. Biðlað hefur verið til vinnu­veit­enda um að sýna því skiln­ing ef starfs­maður þarf að vera í sótt­kví.

Ein­stak­lingur í sótt­kví má ekki fara á manna­mót, hvort sem þau varða starf hans, fjöl­skyldu eða félags­líf. T.d. vinnufundir, sam­komur vinnu­fé­laga, sam­komur stétt­ar­fé­laga, ferm­ingar, jarð­ar­farir, sauma­klúbbar, kóræf­ingar, tón­leikar o.s.frv.

Ein­stak­lingar í sótt­kví mega ekki fara á lík­ams­rækt­ar­stöðvar, sund­laugar, í leik­hús, kvik­mynda­hús, versl­un­ar­mið­stöðvar eða aðra staði þar sem margir koma saman.

Ein­stak­lingar í sótt­kví mega ekki fara sjálfir eftir aðföngum, þ. á m. í apó­tek, mat­vöru­verslun, póst­hús, banka eða annað.

Ein­stak­lingur í sótt­kví má ekki dvelja í sam­eig­in­legum rýmum fjöl­býl­is­húsa, s.s. stiga­göngum, þvotta­húsum eða sam­eig­in­legum görðum/úti­vist­ar­svæðum.

Ein­stak­lingur í sótt­kví má ekki taka á móti gestum á heim­ili sínu meðan sótt­kví stendur yfir.

Þrátt fyrir þessar tak­mark­anir er ýmis­legt sem er leyfi­legt í sótt­kví.

Ein­stak­lingur í sótt­kví má fara út á svalir eða í garð við heim­ilið. Ef aðrir eru þar líka þarf sá sem er í sótt­kví að halda sig í a.m.k. 1-2 metra fjar­lægð.

Ein­stak­lingur í sótt­kví má fara í göngu­ferðir en þarf að halda sig í a.m.k. 1-2 metra fjar­lægð frá öðrum veg­far­endum.

Ein­stak­lingur í sótt­kví má fara í bíltúr á einka­bíl en ekki má eiga sam­skipti við aðra í návígi s.s. við bíla­lúgur veit­inga­staða.

Ein­stak­lingur í sótt­kví má fara út með heim­il­issorp en huga þarf vel að hrein­læti, sinna hand­hreinsun fyrir og eftir opnun sorp­rennu/rusla­tunnu/rusla­geymslu og gjarnan strjúka yfir hand­föng með 70% spritti eða öðru sótt­hreins­andi efni eftir snert­ingu.

Hér er ítar­legri sam­an­tekt land­læknis á því hvernig á að haga sér í sótt­kví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár