Slökkva á stærsta ofni Elkem í tíu vikur

Hrá­vöru­mark­aðir eru „rólegri“ en verið hefur síð­ustu miss­eri og því hefur verið ákveðið að slökkva tíma­bundið á stærsta ofni Elkem á Grund­ar­tanga og nýta tím­ann til að end­ur­byggja hann. „Eft­ir­spurn eftir okkar vörum er áfram góð,“ segir for­stjór­inn.

Verksmiðjan
Verk­smiðjan Járn­blendið á Grund­ar­tanga fram­leiðir kís­il­málm og kís­il­ryk, hrá­vörur sem minni eft­ir­spurn er eftir núna en und­an­farna mán­uði. Mynd: Umhverfisstofnun

Slökkt verður á stærsta ofni Elkem á Grund­ar­tanga í tíu vikur og hann allt að því end­ur­byggður. Það mun styðja við aukna hag­kvæmni í rekstr­inum, lækka kostnað til langs tíma, og auka örygg­is­mál tölu­vert, segir for­stjór­inn Álf­heiður Ágústs­dóttir í sam­tali við Heim­ild­ina. Hins vegar þýðir þetta að fram­leiðsla fyr­ir­tæk­is­ins á kís­il­málmi og kís­il­ryki, hrá­efnum til stálfram­leiðslu, dregst saman um meira en þriðj­ung á við­halds­tíma­bil­inu þar sem um er að ræða stærsta ljós­boga­ofn verk­smiðj­unnar af þeim þremur sem þar er að finna.

 Fjár­fest­ing félags­ins vegna end­ur­bót­anna nemur 100 millj­ónum norskra króna eða um 1,2 millj­örðum íslenskra króna.

For­stjór­innÁlf­heiður Ágústs­dóttir, for­stjóri Elkem á Íslandi, segir hrá­vöru­mark­aði eins og sól­ar­gang­inn, eft­ir­spurn fari upp og hún fari líka niður.

„Hrá­vöru­mark­aðir eru rólegri, það er að sjást alls staðar,“ segir Álf­heiður en bætir við að eft­ir­spurn eftir vörum Elkem sé enn góð. „Við erum búin að vera að und­ir­búa upp­færslu á ofn­inum lengi og erum ægi­lega spennt að hefj­ast handa.“

Fóðr­ingin í ofn­inum er frá árinu 2009 og því segir for­stjór­inn að m.a. vegna þess sé tíma­bært að end­ur­byggja hann. Og vegna stöðu á mörk­uðum hafi tæki­færið skap­ast núna og við­hald­inu því flýtt. „Þetta styður við að við getum fram­leitt úr ofn­inum eins og hann á að geta gert,“ bætir Álf­heiður við.

Fram­kvæmd­irnar sem nú standa fyrir dyrum munu engin áhrif hafa á starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins sem eru um 250 tals­ins. „Svo verða um 300 starfs­menn, verk­takar, til við­bótar, sem munu koma að verk­efn­inu með einum eða öðrum hætti.“

En hvað skýrir minni eft­ir­spurn eftir hrá­vörum?

„Þegar þú vinnur á þessum stað í hag­kerf­inu þá er þetta bara gangur lífs­ins,“ svarar Álf­heiður. „Þetta er eins og sól­ar­lagið – kerfin fara upp og kerfin fara niður.“ Verk­smiðjan hafi staðið vel síð­ustu ár, „en núna erum við farin inn í tíma­bil sem verður stíf­ara næstu 2-3 árin.“

En hefur for­stjór­inn áhyggjur af því að minni eft­ir­spurn sé komin til að vera?

„Nei við höfum ekki áhyggjur af því.“

Í verk­smiðju Elkem Ísland eru þrír ljós­boga­ofnar, tveir 37 MW og einn 47 MW. Í ofn­unum hvarfast kvars og járn­grýti við kolefni og myndar fljót­andi kís­il­málm. Ofnarnir eru hálf­lok­aðir með reyk­hettu. Afsog frá ofnum fer um kæli­virki og reyk­hreinsi­virki, þar sem kís­il­ryk er hreinsað frá með pokasíum. Hreinsað afsog fer út í and­rúms­loftið í gegnum mæni síu­hús­anna. Hreinsað afsog inni­heldur m.a. loft­teg­und­irnar kolefn­ist­ví­oxíð, brenni­stein­s­t­ví­oxíð og nit­uroxíð. 

Spurð hvort upp­færsla á stóra ofn­inum skipti máli hvað varðar umhverf­is­málin segir Álf­heiður að vissu­lega hjálpi end­ur­nýjun á bún­aði hvað það varði. Hins vegar séu aðrar fjár­fest­ingar og önnur verk­efni hugsuð sér­stak­lega með bætur á því sviði í huga. „En þetta hjálpar vissu­lega. Þetta hjálpar.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár