„Er sátt útgerðarfyrirtækjanna mikilvægari en sátt yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar?“

Stjórn­ar­skrár­fé­lag Íslands segir frum­varp for­sæt­is­ráð­herra um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá ganga þvert gegn nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og sé alvar­leg aðför að grund­vall­ar­stoðum lýð­ræðis og full­veldi íslensku þjóð­ar­innar.

Katrín Oddsdóttir, formaður Stjórnarskrárfélags Íslands.
Katrín Odds­dóttir, for­maður Stjórn­ar­skrár­fé­lags Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er óheið­ar­legt af ráða­mönnum að halda því fram að stjórn­ar­skrár­breyt­ingar þurfi að gera í víð­tækri sátt en láta svo eins og sú sátt eigi ein­ungis við um þá sjálfa og umsvifa­mikla aðila. Er sátt útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna mik­il­væg­ari en sátt yfir­gnæf­andi meiri­hluta þjóð­ar­innar? Hvað með alla þá kjós­endur sem veittu til­lögum Stjórn­laga­ráðs braut­ar­gengi haustið 2012? Hvað með þá 43.423 borg­ara sem kröfð­ust lög­fest­ingar nýju stjórn­ar­skrár­innar 8 árum síðar? Hvað með þann meiri­hluta lands­manna sem ítrekað hefur lýst stuðn­ingi við nýja stjórn­ar­skrá í skoð­ana­könn­unum?“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögum Stjórn­ar­skrár­fé­lags Íslands um frum­varp Katrínar Jak­obs­dóttur um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá sem nú er til með­ferðar þings­ins. Katrín mælti fyrir frum­varp­inu í byrjun febr­úar. Sam­kvæmt frum­varp­inu munu nokkur atriði stjórn­ar­skrár­innar taka breyt­ing­um, verði það sam­þykkt. Þar er um að ræða atriði sem fjalla um for­seta Íslands, rík­is­stjórn­ir, verk­efni fram­kvæmd­ar­valds, umhverf­is­vernd, auð­lindir í nátt­úru Íslands og íslensk tunga.

Neita að gefa efnislega umsögn um frumvarpið

Stjórn­ar­skrár­fé­lagið berst fyrir því að þær stjórn­ar­skrár­breyt­ingar sem sam­þykktar voru sem grunnur að nýrri stjórn­ar­skrá í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í októ­ber 2012, verði teknar aftur upp og það ferli verði klárað.

[adspot]Um var að ræða alls sex spurn­ingar en sú fyrsta var hvort við­kom­andi vildi að til­­­lögur stjórn­­­laga­ráðs yrðu lagðar til grund­vallar frum­varpi að nýrri stjórn­­­­­ar­­­skrá. Alls sögðu 64,2 pró­­­sent þeirra sem greiddu atkvæði já við þeirri spurn­ingu. Kjör­­­sókn var 49 pró­­­sent. Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis tók frum­varpið svo til með­ferðar, gerði á því breyt­ingar og lagði fram á þing­inu. Þar tókst ekki að koma því í gegn fyrir kosn­ing­arnar 2013 og þannig hafa mál staðið síðan þá.

Í umsögn sinni segir félagið að sú víð­tæka sátt sem birt­ist í ofan­greindri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sé sú sátt sem skipti máli í breyt­inga­ferli stjórn­ar­skrár­innar. „Ósætti meðal stjórn­mála­flokka má ekki standa lengur í vegi fyrir því að lýð­ræð­is­legur vilji lands­manna nái fram að ganga. Með frum­varpi þessu er lagt til auð­linda­á­kvæði sem engu breytir um það hvernig þjóðin er hlunn­farin við auð­linda­nýt­ingu í sjáv­ar­út­vegi en stjórn­ar­skrár­bindur það órétt­læti sem ríkt hefur í ára­tugi. Óásætt­an­legt er að gengið skuli með svo afger­andi hætti gegn marg­stað­festum vilja meiri­hluta þjóð­ar­innar um að arð­ur­inn af sam­eig­in­legum auð­lindum renni að meg­in­stofni til í okkar sam­eig­in­legu sjóði en ekki í hendur örfárra útvaldra.“

Í umsögn­inni, sem skrifuð er af Katrínu Odds­dóttur, for­manni Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins, segir að for­maður og allir þing­menn Vinstri grænna hefðu lýst því yfir í aðdrag­anda síð­ustu alþing­is­kosn­inga að þeir teldu að þing­mönnum bæri sið­ferð­is­leg og póli­tísk skylda til að virða nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sem Alþingi boðar til. „Stjórn­ar­skrár­fé­lagið telur að útskýra þurfi ástæður þess að for­maður flokks­ins gangi svo aug­ljós­lega á bak orða sinna og hvetur þing­menn til að standa við yfir­lýs­ingar sínar[...]Umrætt frum­varp gengur þvert gegn nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og er alvar­leg aðför að grund­vall­ar­stoðum lýð­ræðis og full­veldi íslensku þjóð­ar­innar.“

Af þessum sökum sér Stjórn­ar­skrár­fé­lagið ekki ástæðu til að gefa efn­is­lega umsögn um frum­varpið.

Segja tillögur forsætisráðherra mun lakari fyrir hag almennings

Í nið­ur­lagi umsagn­ar­innar segir þó að því skuli haldið til haga að efn­is­lega séu til­lögur for­sæt­is­ráð­herra mun lak­ari fyrir hag almenn­ings en sam­svar­andi greinar í frum­varpi Stjórn­laga­ráðs. „Það frum­varp felur í sér djúp­stæða mála­miðlun þar sem 25 ein­stak­lingar með ólíkar skoð­anir og bak­grunn komu sér ein­róma saman um nýja stjórn­ar­skrá sem almenn­ingur tók virkan þátt í að móta. Það er stjórn­ar­skrár­frum­varpið sem þjóðin hefur sagt að skuli vera grund­völlur nýrrar stjórn­ar­skrár Íslands. Fráleitt er að leggja fram frum­varp til stjórn­ar­skrár­breyt­inga sem hunsar skýran vilja stjórn­ar­skrár­gjafans. Sá vilji hefur aðeins styrkst frá því hann kom fyrst fram í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 2012. Ljóst er að traust á Alþingi verður ekki end­ur­reist fyrr en þessi grund­vall­ar­stofnun þjóð­ar­innar virðir vilja stjórn­ar­skrár­gjafans í verki.“

[links]Í ljósi þessa krefst Stjórn­ar­skrár­fé­lagið þess að Alþingi lög­festi nýju stjórn­ar­skrána, frum­varp Stjórn­laga­ráðs. Í fyrra­haust lögðu alls 17 þing­menn Sam­fylk­ingar, Pírata, Flokks fólks­ins fram eigið frum­varp til stjórn­skip­un­ar­laga á Alþingi sem byggir á til­lögum stjórn­laga­ráðs að nýrri stjórn­ar­skrá, en með þeim breyt­ingum sem stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd gerði á því 2013. Það frum­varp bíður nú afgreiðslu hjá stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd.

Til vara fer Stjórn­ar­skrár­fé­lagið fram á að ein­ungis verði mælt fyrir nýju breyt­ing­ar­á­kvæði við gild­andi stjórn­ar­skrá sem tryggja myndi stöðu þjóð­ar­innar sem stjórn­ar­skrár­gjafa. Sömu 17 þing­menn og minnst var á hér að ofan hafa þegar lagt fram breyt­ing­ar­til­lögu við frum­varp Katrínar Jak­obs­dóttur þess efnis, en í henni felst að að bæta nýrri grein við stjórn­ar­skránna þess efn­is. Í grein­inni á enn fremur að segja að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan eigi að „fara fram í fyrsta lagi sex mán­uðum og í síð­asta lagi níu mán­uðum eftir sam­þykkt frum­varps­ins á Alþingi. Sé frum­varpið sam­þykkt með meiri hluta greiddra atkvæða í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni skal það stað­fest af for­seta lýð­veld­is­ins innan tveggja vikna og er þá gild stjórn­ar­skip­un­ar­lög.“

Til þraut­ar­vara vill Stjórn­ar­skrár­fé­lagið að fram fari þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á gild­andi stjórn­ar­skrá sam­hliða kom­andi alþing­is­kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár