„Veit ekki hvernig við hefðum farið að án Leiðarljóss“

Rekstr­arfé Leið­ar­ljóss, stuðn­ings­mið­stöðvar fyrir fjöl­skyldur barna með sjald­gæfa og alvar­lega lang­vinna sjúk­dóma, er uppurið. Að óbreyttu verður mið­stöð­inni lokað eftir ára­mót, þar sem heil­brigð­is­ráð­herra hyggst ekki að standa við lof­orð um að tryggja áfram­hald­andi rekstur hennar. Móðir lang­veikrar stúlku sem lést fyrr á árinu segir Leið­ar­ljós hafa veitt fjöl­skyld­unni nauð­syn­lega og mik­il­væga hjálp í gegnum veik­indi dóttur hennar.

Elísa Margrét og Gyða
Elísa Margrét og Gyða Gyða missti dóttur sína, Elísu Margréti, fyrr á þessu ári. Hún segir fjöl­skyld­una hafa fengið ómet­an­lega hjálp hjá Leið­ar­ljósi. Mynd: Úr einkasafni

Flest bendir til þess að loka þurfi Leið­ar­ljósi, sem er stuðn­ings­mið­stöð fyrir fjöl­skyldur barna með sjald­gæfa og alvar­lega lang­vinna sjúk­dóma, sem lítið er hægt að gera til að með­höndla. Ung móðir sem missti dóttur sína síð­ast­liðið vor seg­ist alltaf hafa leitað til Leið­ar­ljóss þegar hún bug­að­ist vegna veik­ind­anna. Þau sem standa að Leið­ar­ljósi segja heil­brigð­is­ráð­herra hafa lofað stuðn­ingi rík­is­ins til að starf­rækja hjálp­ina.

Leið­ar­ljós er til húsa á Suð­ur­lands­braut 24 og þar starfa fjórir starfs­menn í þremur stöðu­gildum og veita 75 fjöl­skyldum stuðn­ing. „Þegar fólk fær slæma grein­ingu er eins og það lendi í frjálsu falli. Við sjáum til þess að það sé ein­hver sem tekur á móti þeim, leið­beinir þeim í gegnum ferlið og kerfið, svo þau þurfi ekki að finna upp hjólið sjálft. Það er nógu stórt verk­efni að vera með veikt barn. Við reynum að spara fólki sporin, koma í veg fyrir að það lendi á veggjum og hjálpum því að sækja þann stuðn­ing sem það hefur rétt á,“ segir Bára Sig­ur­jóns­dóttir, for­stöðu­maður Leið­ar­ljóss.

Mið­stöðin var opnuð árið 2012, í kjöl­far lands­söfn­unar Á allra vörum á RÚV, þar sem 80 millj­ónir söfn­uð­ust. Á þeim tíma skrif­aði þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um að tekið yrði við rekstri mið­stöðv­ar­innar þegar söfn­un­arfé þryti. Í fyrra lét Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra gera áreið­an­leika­könnun á starf­sem­inni og, eftir því sem for­svars­menn Leið­ar­ljóss segja, lof­aði í kjöl­far þess að ríkið myndi fram­vegis greiða rekstr­ar­kostnað mið­stöðv­ar­innar, sem er 27 millj­ónir króna á ári. Nú hefur þeim verið til­kynnt að hið opin­bera ætli að veita 12 millj­ónum króna í rekst­ur­inn á næsta ári.

Gangi þetta eftir verður rekstri mið­stöðv­ar­innar ekki haldið áfram. „Þetta er sorg­leg nið­ur­staða og við teljum okkur illa svikin,“ segir Bára. Með þessu gangi heil­brigð­is­ráð­herra á bak orða sinna og ekki sé annað í kort­unum en að starf­semi mið­stöðv­ar­innar líði undir lok.

Því hafi verið lofað, oftar en einu sinni, að tryggja rekst­ur­inn þegar söfn­un­ar­féð hefði klár­ast. Undir þetta tekur Sigurður Jóhanns­son, stjórn­ar­maður í Leið­ar­ljósi, sem jafn­framt er faðir 10 ára lang­veikrar stúlku. „Kristján [Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra] lof­aði því að við þyrftum ekki að hafa áhyggjur af þessu, þetta yrði rekið eins og verið hefur. Hann lof­aði því, í mín eyru og margra ann­arra, bæði á fundi í Leið­ar­ljósi og niðri í ráðu­neyti.“

Sunna og SigurðurSigurður Jóhanns­son situr í stjórn Leið­ar­ljóss en til­heyrir jafn­framt einni af þeim 75 fjöl­skyldum sem nýta þjón­ustu mið­stöðv­ar­innar. Sunna dóttir hans er lang­veik.

Fjöl­skylda Sigurðar er því ein af þeim 75 fjöl­skyldum sem nýtt hafa þjón­ustu Leið­ar­ljóss. Dóttir hans var orðin 6 ára þegar Leið­ar­ljós varð til. „Fyrir okkur kom Leið­ar­ljós til­tölu­lega seint til, því dóttir okkar var orðin sex ára. Samt var heil­mikið af hlutum sem þau gátu aðstoðað okkur við. Það var ýmis þjón­usta sem við áttum völ á, sem við vissum ekki af.“

Hann segir mið­stöð­ina gegna mik­il­vægu hlut­verki, þegar kemur að því að styðja við fjöl­skyldur barna. „Það er Leið­ar­ljós sem tekur við barn­inu þegar það kemur út af spít­al­anum. Þegar barnið og fjöl­skyldan eru búin að ganga í gegnum ýmsar raunir á spít­al­anum, komið hefur í ljós að það sem amar að því á ekki eftir að lag­ast og fólk hefur verið sent heim, oft með alls konar græjur,  tól og lyf. Þessir for­eldrar eru kannski ekki með 100% athygli þegar verið er að útskýra fyrir þeim að barnið sé lang­veikt og eigi eftir að verða það alla ævina. Þannig skilur heil­brigð­is­kerfið við þessar fjöl­skyldur. Þarna kemur Leið­ar­ljós inn og leiðir fjöl­skyldur í gegnum þennan frum­skóg sem vel­ferð­ar­kerfið er.“

Sigurður segir að eðli­leg­ast væri að heil­brigð­is­kerfið veitti þessa nauð­syn­legu þjón­ustu. Eins og staðan er núna sé hins vegar ekki raun­hæft að það verði á næst­unni. „Þau ætla sér að bæta sína þjón­ustu, en hvað ger­ist þangað til? Á meðan kerfið er svona lélegt er nauð­syn­legt að hafa ein­hvern sem grípur fjöl­skyld­urnar, í stað þess að þær stökkvi út í hyl­dýpið einar. For­eldrar svona mikið veikra barna brenna upp að lokum. Þetta eru svo svaka­leg verk­efni sem þeir standa frammi fyrir að þau taka af fjöl­skyld­unum. Nú er búið að byggja upp þessa mið­stöð, hún gengur vel og veitir per­sónu­lega þjón­ustu sem kostar til­tölu­lega lítið. Á að henda því út um glugg­ann?“

„Maður veit ekki helm­ing­inn af því sem maður getur mögu­lega sótt um eða fengið hjálp við.“

Gyða Krist­jáns­dóttir er móðir Elísu Mar­grétar, lang­veikrar stúlku sem lést í apríl, fyrr á þessu ári. Elísa Margrét var með alvar­legan heila­sjúk­dóm. „Við vorum svo heppin að hafa Leið­ar­ljós frá upp­hafi, þau héldu alveg utan um okkur. Hún var með það sjald­gæfan sjúk­dóm sem við þekktum ekki og við höfðum ekki átt mikið veikt barn áður. Maður veit ekki helm­ing­inn af því sem maður getur mögu­lega sótt um eða fengið hjálp við. Alltaf þegar ég var eitt­hvað buguð leit­aði ég til þeirra hjá Leið­ar­ljósi. Þetta var okkar mesta hjálp, fyrir utan Barna­spít­al­ann sem sinnti grunn­þörfum. Ég get ekki ímyndað mér hvernig það væri að eiga svona lang­veikt barn án þess að geta leitað til Leið­ar­ljóss. Það yrði mjög slæmt, ef þetta yrði raunin, að það þyrfti að loka mið­stöð­inni.“

Leið­ar­ljós veitir líka fjöl­skyldum sem missa barn eftir langvar­andi veik­indi stuðn­ing, í gegnum stuðn­ings­hóp­inn Litlu ljósin. Þá þjón­ustu nýta 16 fjöl­skyldur sér. „Svo þau halda líka utan um þá for­eldra sem missa börnin sín. Ég veit að þetta er mikil hjálp fyrir marga í miss­inum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár