Umhverfisstofnun áréttar að loftslagsbreytingar séu staðreynd

Í ljósi umræðu um lofts­lags­breyt­ingar þá vill Umhverf­is­stofnun sér­stak­lega árétta að þær séu stað­reynd, sem til að mynda hopun jökla og súrnun sjávar gefi til kynna.

Umhverf­is­stofnun vill í ljósi ákveð­innar umræðu árétta að lofts­lags­breyt­ingar séu stað­reynd. Í frétt á vef­síðu stofn­un­ar­innar kemur fram að borið hafi á þeim sjón­ar­miðum að lofts­lags­breyt­ingar, hlýnun af manna völdum, eigi sér ekki stað – eða að umræða vís­inda­manna um þau mál lit­ist af ýkjum. Umhverf­is­stofnun bendir á að mýmargar rann­sóknir sýni að svo sé. Áhrifin verði jafn­framt alvar­leg ef ekki verði gripið í taumana.

„Í skýrslu vís­inda­nefndar frá 2018 um lofts­lags­breyt­ingar og áhrif þeirra á Íslandi segir meðal ann­ars af súrnun sjávar, sjáv­ar­stöðu­breyt­ingum og áhrifum lofts­lags­breyt­inga á nátt­úruvá. Þar segir að upp úr mið­biki 19. aldar hafi orðið ljóst að vissar loft­teg­undir raska varma­geislun frá jörð­inni þannig að neðri hluti loft­hjúps­ins og yfir­borð jarðar verði hlýrri en ella.

Þessi áhrif eru kölluð gróð­ur­húsa­á­hrif og loft­teg­und­irnar gróð­ur­húsa­loft­teg­undir. Hlýnun jarðar sé óum­deil­an­leg og bendi margar athug­anir til for­dæma­lausa breyt­inga frá því um mið­bik síð­ustu aldar. Loft­hjúp­ur­inn og heims­höfin hafi hlýnað, dregið hafi úr magni og útbreiðslu snævar og ís, sjáv­ar­borð hækkað og styrkur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda auk­ist,“ segir á vef Umhverf­is­stofn­unar.

Þá spyr stofn­unin hvaða þýð­ingu þetta allt saman hafi hér á landi. Í því sam­hengi bendir hún á að Ísland liggi á mörkum kald­tempraðs- og heim­skauta­lofts­lags og í sam­an­burði við staði á sömu breidd­argráðu sé hér hlýrra, árs­tíða­sveifla minni en úrkoma meiri. Rann­sóknir sýni að á nútíma, eða frá síð­asta jök­ul­skeiði, hafi spönn lang­tíma­breyt­inga á Íslandi verið um 4 gráður sem séu mun meiri hita­breyt­ingar en á jörð­inni á sama tíma. Síðustu þús­undir ára hafi kólnað á land­inu, en þó skipt­ust á hlýrri og kald­ari tíma­bil. Kaldasta tíma­bil nútíma virð­ist hafa verið á litlu-ísöld sem lauk í upp­hafi 20. aldar.

Súrnun sjávar nú þegar haft neikvæð áhrif

Einnig fer Umhverf­is­stofnun yfir það hvernig íslenskir jöklar hafi náð mestri útbreiðslu í lok 19. aldar. Síðan hafi þeir hopað mikið og flat­ar­mál þeirra dreg­ist saman um nálægt 2000 fer­kíló­metra sem er um 15 pró­sent sam­dráttur. Hörfunin hafi átt sér einkum stað á tveimur tíma­bilum, í hlý­indum á 3. og 4. ára­tug síð­ustu aldar og frá 1995. Á tíma­bil­inu 2000 til 2014 hafi sam­drátt­ur­inn numið rúm­lega 500 fer­kíló­metrum, eða um 0,35 pró­sent á ári.

Súrnun hafs­ins er einnig stað­reynd, sam­kvæmt stofn­un­inni – stað­fest með beinum mæl­ingum og fræði­legum reikn­ingum. Til að kom­ast hjá stór­felldum breyt­ingum á líf­ríki og vist­kerfum í höf­unum þurfi að minnka losun CO2 stór­lega. Framtíð hafs­ins ráð­ist af því hvernig losun manna á koltví­oxíði verði háttað og til hvaða aðgerða verði gripið fyrr en síðar. Súrnun sjávar hafi nú þegar haft nei­kvæð áhrif á líf­ríki hafs­ins og skel­fisk­ræktun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár