Tilbúinn sannleikur

Borgþór Arn­gríms­son skrifar um fréttaum­fjöllun FOX um Danmörku í síð­ustu viku.

Myndver Fox News í New York-borg.
Myndver Fox News í New York-borg. Mynd: EPA

„Enginn matur, atvinnu­leysi, ofbeldi, rán. Þannig er sós­í­al­ism­inn í Venes­ú­ela þar sem íbú­arnir svelta. Þegar demókratar tala um sós­í­al­isma segja þeir: við erum ekki að tala um Venes­ú­ela, við erum að tala um Danmörku.“

Ofan­greind ummæli lét Trish Regan þátta­stjórn­andi hjá við­skiptarás banda­rísku Fox sjón­varps­stöðv­ar­innar falla í umræðu­þætti fyrir nokkrum dögum. Þessi sjón­varps­rás fjallar, eins og nafnið gefur til kynna, um við­skipta- og efna­hags­mál í víðum skiln­ingi og er sú rás af því tagi sem dregur til sín flesta áhorf­endur þar vestra Trish Regan er þekkt sjón­varps­kona og hefur um ára­bil stýrt umræðu­þáttum. Hún byrj­aði hjá CBS árið 2001 og hefur einnig unnið hjá CNBC og Bloomberg en kom til Fox árið 2015. Hún hefur því umtals­verða reynslu og þættir undir hennar stjórn hafa verið til­nefndir til Emmy verð­launa. Ummæli hennar, þar sem hún líkti Danmörku við Venes­ú­ela, skrif­ast því hvorki á reynslu­leysi né ung­æð­is­hátt.

Þátt­ur­inn hófst á því að sýndar voru myndir frá upp­þotum í Venes­ú­ela en síðan tók Trish Regan við og dró strax sama­sem­merki milli ástands­ins í Venes­ú­ela og Dan­merkur. Auk ummæl­anna sem getið var í upp­hafi pistils­ins full­yrti hún að skóla­ganga væri ókeypis og ekki nóg með það, nem­endur fengju greitt fyrir að ganga í skóla og eng­inn lyki námi. „Svona er raun­veru­leik­inn þar sem sós­í­al­ism­inn ríkir, eng­inn hefur dug í sér til nokk­urs hlutar, því slíkt er ekki launað. Danmörk hefur eins og Venes­ú­ela rænt fólk mögu­leik­unum. Þetta er leiðin sem Bernie Sanders vill fara, og margir ungir demókratar líta nú til þess­ara tveggja landa“ sagði Trish Regan

Yfir strikið

Þótt Banda­ríkja­menn kalli ekki allt ömmu sína þegar kemur að stór­yrtum yfir­lýs­ingum og hafi að und­an­förnu oft fengið að heyra „ann­ars­konar sann­leik“, ekki síst frá hús­bónd­anum í Hvíta hús­inu, vöktu full­yrð­ingar Trish Regan mikla athygli. Lars Get Lose, sendi­herra Dan­merkur í Banda­ríkj­unum, gagn­rýndi það sem fram kom í sjón­varps­þætt­inum og nefndi sér­stak­lega full­yrð­ingar um fjölda atvinnu­lausra og yfir­lýs­ingar um að fáir (eða engir) lykju námi. Washington Post og fleiri fjöl­miðlar birtu tölur sem sýna, svart á hvítu, að atvinnu­leysi í Danmörku er miklu minna en í Banda­ríkj­unum mennt­un­ar­stig langtum hærra og bilið milli fátækra og ríkra marg­falt minna. Fleira var týnt til sem allt var á sama veg: full­yrð­ingar Trish Regan eiga sér enga stoð.

Dag­blaðið New York Times birti sl. fimmtu­dag (16.8) grein eftir banda­ríska hag­fræð­ing­inn og Nóbels­verð­launa­hafann Paul Krugman. Greinin fjallar um sam­an­burð á Banda­ríkj­unum og Danmörku sem Paul Krugman, sem þekkir vel til. Hann hrekur full­yrð­ingar Trish Regan, nán­ast lið fyrir lið en segir jafn­framt að hún gangi erinda hús­bænda sinna hjá Fox sjón­varps­stöð­inni. Eigendur Fox séu í hópi þeirra auð­ugu sem hugsi um það eitt að við­halda ríki­dæmi sínu, og helst auka það en láti sig engu varða hag þeirra sem minna mega sín.

Paul Krugman minnir einnig á að John McCain sem var fram­bjóð­andi repúblik­ana við for­seta­kosn­ing­arnar árið 2008 sagði Barack Obama vilja inn­leiða sós­í­al­isma með breyt­ingum á sjúkra­trygg­inga­kerf­inu. Mitt Romney, sem mót­fram­bjóð­andi Obama árið 2012 tal­aði á sömu nótum.

Danski fjár­mála­ráð­herr­ann, Kristian Jensen, skrif­aði fyrr í lið­inni viku á Twitter að yfir­lýs­ingar Trish Regan væru víðs fjarri sann­leik­anum og ein­göngu not­aðar í póli­tískum til­gangi. „Afsakið orða­lagið en henni líðst ekki að míga (pisse) yfir Danmörku. Ég við­ur­kenni ekki slík niðr­andi og röng ummæli, allir hafa rétt á skoð­unum en ekki til að búa til eigin stað­reyndir“ sagði ráð­herr­ann og bætti við „að við ættum kannski að bjóða Trish Regan í heim­sókn.“

Af hverju er Danmörku líkt við Venesúela?

Þessari spurn­ingu er auðsvarað. Bernie Sanders, sem keppti við Hillary Clinton um útnefn­ingu Demókrata fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í hit­tífyrra, nefndi iðu­lega Danmörku sem fyr­ir­mynd­ar­ríki sem Banda­ríkin gætu um margt tekið sér til fyr­ir­myndar. Af þessum ástæðum hljómar orðið Danmörk kunn­ug­lega í eyrum margra Banda­ríkja­manna þótt flestir þeirra þekki lítt til lands­ins. Ástandið í Venes­ú­ela hefur verið mikið í fréttum um langt skeið og flestir Banda­ríkja­menn vita að þar ríkir sann­kallað hörm­ung­ar­á­stand. Frá ára­mótum hafa rúmar tvær millj­ónir flúið úr landi, í land­inu er skortur á mat, hvergi í ver­öld­inni eru framin fleiri morð, verð­bólgan á þessu ári stefnir í milljón pró­sent svo fátt eitt sé nefnt. Að líkja ástand­inu í þessum tveimur löndum Danmörku og Venes­ú­ela saman er því eins frá­leitt og hugs­ast getur. Eins og að bera saman eld og vatn sagði blaða­maður New York Times í grein fyrir skömmu.

Tilgangurinn

Í nóv­em­ber verða liðin tvö ár frá síð­ustu for­seta­kosn­ingum í Banda­ríkj­unum og jafn­framt tvö ár síðan kosið var til full­trúa­deildar banda­ríska þings­ins og hluta öld­unga­deild­ar­innar. Samkvæmt banda­rískum lögum skal kosið til full­trúa­deild­ar­innar á tveggja ára fresti og jafn­framt skal þriðj­ungur öld­unga­deild­ar­innar þá kos­inn (hver þing­maður deild­ar­innar kos­inn til sex ára í senn). Ef spár ganga eftir er vafa­samt að Repúblikanar haldi núver­andi meiri­hluta í full­trúa­deild­inni. Í harðri og tví­sýnni kosn­inga­bar­áttu svífast menn einskis og þá er sann­leika og stað­reyndum iðu­lega ýtt til hliðar. Margir stjórn­mála­skýrendur vestan hafs hafa bent á að Fox sjón­varps­stöðin styðji ljóst og leynt Donald Trump og yfir­lýs­ingar Trish Regan varð­andi Danmörku og sam­an­burð­inn við Venes­ú­ela séu vopn í aðdrag­anda kosn­inga. Sós­í­al­ismi er eitur í beinum margra Banda­ríkja­manna og með því að spyrða þessi tvö lönd, Danmörku og Venes­ú­ela saman sé reynt að slá á þá strengi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár