Samningar um aðgöngumiðann að innri markaðnum lausir í fjórtán mánuði

Viðræður Íslands, Noregs og Liecthenstein ríkj­anna þriggja sem eru aðilar að samn­ingnum um Evrópska efna­hags­svæðið (EES), við Evr­ópu­sam­bandið um greiðslur í þró­un­ar­sjóð EFTA hafa enn hafa enn ekki borið ávöxt. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans er verið að reyna að mjaka mál­inu áfram en fátt frétt­næmt hefur gerst unda­farna mán­uði.

Greiðslur í sjóð­inn eru oft kall­aðar aðgangs­mið­inn að innri mark­aði Evrópu, gjaldið sem ríkin þrjú greiða fyrir aukað­ild sína að þessumstærsta útflutn­ings­mark­aði sínum án þess að vera full­gildir með­limir Evr­ópu­sam­bands­ins.

Frá árinu 1994, þegar EES-samn­ing­ur­inn gekk í gildi, hefur þurft að end­ur­semja um þennan aðgöngu­miða á fimm ára fresti. Samn­ingar um greiðslur í sjóð­inn hafa nú verið lausir frá 30. apríl 2014, eða í rúma fjórtán mán­uði. Ástæða þess að illa hefur gengið að semja nú er sú að Evr­ópu­sam­bandið hefur farið fram á allt að þriðj­ungs­hækkun á fram­lögum í sjóð­inn, sem EES-löndin þrjú hafa ekki viljað sætta sig við.

Ef gengið yrði að upp­haf­legum kröfum Evr­ópu­sam­bands­ins myndi Ísland þurfa að greiða um 6,5 millj­arða króna í sjóð­inn vegna tíma­bils­ins 2014-2019. Fyrir síð­asta samn­ings­tíma­bil, sem stóð frá 2009-2014, greiddum við 4,9 millj­arða króna. Því yrði um hækkun upp á 1,6 millj­arða króna að ræða. Ekkert EFTA-ríkj­anna þriggja sem greiða í sjóð­inn eru til­búin til að ganga að þessum kröfum og taka á sig hækk­anir af þess­ari stærð­argráðu.

Vinnur gegn mismunun í ríkjum ESB


Þró­un­ar­sjóður EFTA var settur upp sem hluti af EES-samn­ingnum, sem gekk í gildi 1. jan­úar 1994. EFTA-ríkin Ísland, Noregur og Liecthenstein greiða í hann eftir stærð og lands­fram­leiðslu hvers þeirra. Yfir­lýstur til­gangur hans er að vinna gegn efna­hags­legri- og félags­legri mis­munum í þeim ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins sem þiggja aðstoð úr sjóðnum.

Styrkir eru greiddir út á grund­velli áætl­anna sem styrkt­ar­löndin gera. Á síð­asta samn­ings­tíma­bili runnu greiðslur úr sjóðnum til 15 Evr­ópu­sam­bands­landa sem upp­fylltu skil­yrði til að þiggja þær. Stærstu heild­ar­styrkirnir fóru til Póllands (267 millj­ónir evra) og Rúmeníu (191 milljón evra). Önnur ríki sem fengu greiðslur eru Bulgaría, Kýpur, Tékkland, Eistland, Grikk­land, Ung­verja­land, Lettland, Litháen, Malta, Portúgal, Slóvakía, Slóvenía og Spánn.

Ekki í fyrsta sinn sem illa gengur að semja


Þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem við­ræður um end­ur­nýjun á sam­komu­lag­inu ganga illa. Þegar sam­komu­lagið rann út árið 2009 tók tæpt ár að semja um nýja lausn, en hún lá ekki fyrir fyrr en á fyrri hluta árs­ins 2010. Sá tími sem nú er lið­inn síðan að sam­komu­lagið rann út er því orð­inn tölu­vert lengri en sá sem leið síð­ast.

Í það skiptið var samið um að fram­lög Íslands, Noregs og Liecthenstein myndu hækka um 33 pró­sent á milli tíma­bila en að tvö síð­ar­nefndu ríkin myndu taka meiri hluta hækk­un­ar­innar á sínar herðar vegna þeirrar stöðu sem var uppi í íslensku efna­hags­lífi eftir banka­hrunið haustið 2008. Heim­ildir Kjarnans herma að kröfur Evr­ópu­sam­bands­ins um hækkun nú hafi verið að sam­bæri­legri stærð­argráðu og um samd­ist síð­ast.

Samkvæmt síð­asta sam­komu­lagi greiddu EES-ríkin tæpan millj­arð evra, tæp­lega 150 millj­arða króna á verð­lagi dags­ins í dag, í sjóð­inn. Þar af greiddu­Norð­menn tæp­lega 95 pró­sent upp­hæð­ar­innar. Til við­bótar felur sam­komu­lagið um greiðslur EES-ríkj­anna til Evr­ópu­sam­bands­ins í sér að Norðmenn greiða til hliðar í sér­stakan Þró­un­ar­sjóð Noregs. Alls borg­uðu Norðmenn tæpa 125 millj­arða króna í hann á tíma­bil­inu. Þeir greiddu því um 260 millj­arða króna fyrir aðgöngu sína að innri mark­aðnum. Ljóst er að þorri þeirrar fjár­hags­legu byrðar sem greiðsl­urnar orsaka lenda á Norð­mönnum.

Ástæður þessa eru ein­faldar. Þegar upp­haf­lega var samið um greiðsl­urnar þá var ákveðið að fram­lag hverrar þjóðar fyrir sig myndi reikn­ast út frá lands­fram­leiðslu og höfða­tölu. Norðmenn eru lang­rík­asta og lang­fjöl­menn­asta EFTA-ríkið sem á aðild að EES-samn­ingnum og borgar þar af leið­andi lang mest.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Möguleg aðild að Evr­ópu­sam­band­inu hefur verið mikið hita­mál á Íslandi um ára­langt skeið. Sitjandi rík­is­stjórn er and­víg aðild og hefur lagt mikið á sig til að Ísland sé ekki lengur talið umsókn­ar­ríki að sam­band­inu.[/caption]

 

Greiðslur Íslands aukist um 70 prósent


Greiðslur Íslands voru mun lægri, þótt þær hafi farið ört hækk­andi. Frá árinu 1994, þegar EES-samn­ing­ur­inn gekk í gildi, og fram til 1. maí 2009 greiddum við sam­tals 2,9 millj­arða króna á verð­lagi árs­ins 2010. Þrátt fyrir að Íslandi hafi verið sýnt skiln­ingur í síð­asta samn­ingi þá juk­ust greiðslur lands­ins samt sem áður gríð­ar­lega og voru 4,9 millj­arðar króna á árunum 2009-2014. Þar af er áætlað að við greiddum um 1,4 millj­arða króna í sjóð­inn í fyrra, á árinu 2014. Aðgöngu­mið­inn að innri mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins er því að hækka mjög hratt í verði. Greiðslur Íslands á síð­ustu fimm árum eru 70 pró­sent hærri en greitt var í sjóð­inn fimmtán árin þar áður.

Viðræður um nýtt sam­komu­lag hófust snemma á síð­asta ári. Fyrsti form­legi fundur EFTA-ríkj­anna og full­trúa Evr­ópu­sam­bands­ins vegna þess var 22. jan­úar síð­ast­lið­inn. Viðræður um nýtt sam­komu­lag hófust snemma á síð­asta ári. Fyrsti form­legi fundur EFTA-ríkj­anna og full­trúa Evr­ópu­sam­bands­ins vegna þess var 22. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Mikilvægasti viðskiptasamningur Íslands


EES-samn­ing­ur­inn er mik­il­væg­asti við­skipta­samn­ingur sem Ísland hefur gert. Hann veitir Íslandi nokk­urs­konar auka­að­ild að innir mark­aði Evrópu án tolla og gjalda á flestar vörur. Um 80 pró­sent af útflutn­ingi okkar fer til Evrópu, að lang­mestu leyti til landa sem til­heyra innri mark­að­inum, og um 60 pró­sent af því sem við flytjum inn koma þaðan.

Van­kost­irnir við EES-samn­ing­inn eru síðan þeir að Ísland und­ir­gekkst að taka upp stóran hluta af reglu­verki Evr­ópu­sam­bands­ins án þess að geta haft nokkur áhrif á mótun þess. Í Evr­ópu­stefnu sitj­andi rík­is­stjórnar er lögð áhersla á að efla hags­muna­gæslu Íslands innan EES og stór­efldu sam­starfi við Norðmenn á þeim vett­vangi. Þessari stefnu eigi að fram­fylgja meðal ann­ars með því að koma sjón­ar­miðum Íslands á fram í lög­gjaf­ar­starfi Evr­ópu­sam­bands­ins strax á fyrstu stigum mála. Það er ljóst að slík hags­muna­gæsla mun kosta tölu­vert fé, enda nauð­syn­legt að fjölga veru­lega starfs­fólki í Brussel, aðal­bæki­stöð Evr­ópu­sam­bands­ins, til að fram­fylgja henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár