Tsarnaev áfrýjar dauðadómi og vill ný réttarhöld fjarri Boston

Hinn rúm­lega tví­tugi Dzhokhar Tsarnaev, sem bar ábyrgð á sprengju­árásinni í Boston-mara­þon­inu árið 2013 ásamt bróður sínum, hefur áfrýjað dauða­dómi sem hann hlaut í júní síð­ast­liðnum.

Lögmenn hans segja að vegna athygl­innar sem málið hlaut hafi kvið­dóm­endur ekki verið hlut­lausir og Tsarnaev hafi því ekki notið rétt­látrar máls­með­ferðar. Hann eigi skilið ný rétt­ar­höld fjarri Boston. Lög­menn­irnir segja að umfjöllun á sam­fé­lags­miðlum og í fjöl­miðlum hafi haft mikil áhrif um allt Massachusetts-ríki, og því hafi kvið­dóm­endur ekki getað verið hlut­lausir.

Tsarnaev var dæmdur fyrir þrjá­tíu brot í apríl síð­ast­liðnum, og í sautján þess­ara brota getur legið dauða­refs­ing við. Sprengju­árásin varð þremur að bana og 264 til við­bótar særð­ust. Í júní var svo refs­ingin kveðin upp, dauða­dómur. Kvið­dóm­endur komust að þeirri nið­ur­stöðu eftir löng rétt­ar­höld, þar sem meðal ann­ars var hlustað á vitn­is­burði yfir 150 manns, að Tsarnaev hefði ekki sýnt iðrun vegna gjörða sinna. Hann baðst afsök­unar þegar dóm­ur­inn var kveð­inn upp, en það var í fyrsta skipti sem hann tjáði sig um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár