Bjarni vill ræða við Viðreisn og Bjarta framtíð á ný

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill láta reyna aftur á við­ræður um myndun rík­is­stjórnar með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þetta sagði hann við fjöl­miðla áður en að fundur for­manna flokk­anna hófst í dag. Mbl.is greinir frá.

Flokk­arnir þrír fóru í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður í nóv­em­ber eftir að Bjarna hafði verið fært stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð af for­seta Íslands. Um var að ræða fyrstu form­legu við­ræð­urnar sem ráð­ist var í eftir kosn­ing­arnar 29. októ­ber. Bjarni stöðv­aði þær við­ræður 15. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn m.a. vegna þess að flokkur hans gat ekki sætt sig við að hluti afla­heim­ilda, 3-4 pró­sent, yrði boð­inn upp á mark­aði til tekju­öfl­unar fyrir rík­is­sjóðs, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Auk þess var and­staða við mála­miðlun í Evr­ópu­sam­bands­málum innan flokks­ins, en Viðreisn og Björt fram­tíð vilja láta kjósa um áfram­hald­andi við­ræður við sam­bandið. Til við­bótar vildi Bjarni mynda sterk­ari rík­is­stjórn með sterk­ari meiri­hluta. Í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér vegna við­ræðu­slit­anna sagði hann að aðstæður á Íslandi „kalli á rík­is­stjórn með breið­ari skírskotun og sterk­ari meiri­hluta en þann sem þessir þrír flokkar geta boðið.“

Eftir að fyrri til­raun til að mynda fimm flokka rík­is­stjórn frá miðju til vinstri undir for­ystu Vinstri grænna rann út í sand­inn hófust óform­legar við­ræður um myndun þriggja flokka stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar á ný. Í þetta skiptið virt­ist sátt ríkja á milli flokk­anna um meg­in­at­riði við myndun nýrrar rík­is­stjórnar en aftur dró Bjarni sig út úr við­ræð­unum, í þetta sinn til að hefja við­ræður við Vinstri græn. Þær við­ræður hafa nú siglt í strand.

Benedikt greindi síðar frá því að Bjarni hafi boðið Viðreisn að ganga inn í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. Tilboðið hafi verið lagt fram í hádeg­inu síð­ast­lið­inn mánu­dag. Því var hafnað. Heim­ildir Kjarnans herma að á sama tíma hafi Bjartri fram­tíð verið gert til­boð um að slíta sam­starfi sínu við Viðreisn og reyna að mynda rík­is­stjórn með Vinstri grænum og Sjálf­stæð­is­flokki. Því til­boði var líka hafnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár