Björn Blöndal hættir í borgarstjórn

Oddvitar fimm af þeim sex flokkum sem náðu inn í borg­ar­stjórn vorið 2014 verða ekki í fram­boði á næsta ári. Dagur B. Egg­erts­son er sá eini sem leiddi lista þá sem ætlar að bjóða sig fram aftur.

Björn Blöndal, oddviti Bjartrar framtíðar.
Björn Blöndal, odd­viti Bjartrar fram­tíðar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

S. Björn Blöndal, odd­viti Bjartrar fram­tíðar í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, ætlar ekki að gefa kost á sér í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum vorið 2018. Hann til­kynnti þetta á borg­ar­stjórn­ar­fundi síð­degis í dag.

[links]Á vef RÚV er haft eftir Birni að sú fjár­hags­á­ætlun sem nú er til umræðu sé sú síð­asta sem hann muni koma að í bili vegna þess að hann ætli ekki að bjóða sig fram á næsta kjör­tíma­bili. „„Ég er ekki að lofa því að ég sé far­inn að eilífu. Af því að kannski kem ég aftur ein­hvern tím­ann ef þið sem eftir sitjið ætlið að fara að klúðra ein­hverja þá verð ég bara að segja eins og Arnold Schwarzenegger: I‘ll be back.“

Miklar breyt­ingar verða í borg­arpóli­tík­inni á kom­andi vori. Áður höfðu bæði Halldór Hall­dórs­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Halldór Auðar Svansson, odd­viti Pírata, til­kynnt að þeir ætli sér ekki fram í næstu kosn­ingum og Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, sem var odd­viti Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, sagt sig úr Fram­sókn­ar­flokknum.

[adspot]Næsti maður á þeim lista var Guðfinna Jóhanna Guð­munds­dóttir sem gengin er í Mið­flokk­inn. Haustið 2016 hætti svo Sóley Tóm­as­dóttir, odd­viti Vinstri grænna og þáver­andi for­seti borg­ar­stjórnar, í borg­ar­stjórn.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri hefur hins vegar greint frá því að hann ætli að bjóða sig aftur fram í vor. Hann verður því eini odd­viti flokk­anna sex sem náðu inn í borg­ar­stjórn árið 2014 sem verður þar í fram­boði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár