Dagur ætlar að gefa kost á sér og telur valkosti borgarbúa vera skýra

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, var gestur sjón­varps­þáttar Kjarnans í vik­unni. Hér getur þú horft á þátt­inn í heild sinni.

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, hefur gert það upp við sig að hann ætlar að gefa kost á sér áfram í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum vorið 2018. Þetta stað­festi hann í sjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut á mið­viku­dag.

Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni hér að ofan.

Dagur segir að hann eigi ekki von á því að mörg umfjöll­un­ar­efni kosn­ing­anna í voru muni koma á óvart. Það séu mjög stór mál í gangi sem mik­il­vægt sé að nái til enda. „Þótt allir séu kannski ekki alveg sam­mála öllu sem ég hef sagt eða gert þá held ég að fólk viti nokkuð fyrir hvað ég stend og að val­kost­irnir verði nokkuð skýrir í vor.“

Hann seg­ist ekki átta sig á því hver helstu ágrein­ings­málin verði. Sjálf­sagt muni þétt­ing byggði, útlit borg­ar­innar og sam­göngu­mál skipta máli. „Ég vona að hús­næð­is­mál verði áfram áherslu­at­riði og að fólk átti sig á því sem borgin hefur verið að gera og hvernig það sker sig úr, í raun svo­lítið póli­tísk frá því sem önnur sveit­ar­fé­lög hafa verið að gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár