Mynd: EPA

Önnur bylgja faraldurs í Singapúr

Fyrir mán­uði síðan voru Singapúrar hylltir fyrir góðan árangur sinn í bar­átt­unni gegn COVID-19. Þeir tóku mörg sýni, röktu smit af mikum móð og ein­angr­uðu sýkta. En svo dundu ósköpin yfir.

Met hafa verið slegin í Singapúr dag eftir dag und­an­farna viku. Þetta eru þó ekki áfangar sem ber að fagna heldur skugga­leg aukn­ing í fjölda smita af kór­ónu­veirunni. Frá 17. mars hefur stað­festum smitum fjölgað úr 266 í rúm­lega 8.000. Á laug­ar­dag, svo dæmi sé tekið, greindust 942 á einum sól­ar­hring – í land­inu sem fyrir einum mán­uði var hyllt fyrir að ná betri tökum á útbreiðsl­unni en nokkuð annað.

Önnur bylgja far­ald­urs COVID-19 er skollin á.

Singapúr er borg­ríki á eyju í Suð­austur-Asíu. Íbúarnir eru um 5,7 millj­ónir sem búa þétt á svæði sem er á stærð við New York-borg.

Landið var eitt það fyrsta utan Kína til að greina smit af nýju kór­ónu­veirunni. Þegar í stað var gripið til aðgerða sem fólust fyrst og fremst í því að greina marga, rekja smit og ein­angra sýkta. Þar sem Malasía er eina ríkið sem á landa­mæri að Singapúr var nokkuð ein­falt mál að tak­marka ferðir fólks yfir þau og koma í veg fyrir að ný smit bær­ust þá leið­ina.

Einnig var strangt eft­ir­lit við­haft á flug­völlum. Ein­angr­un­ar­deildum var komið upp á sjúkra­hús­unum. Þeir sem greinst höfðu með veiruna voru lagðir þar inn, hvort sem þeir sýndu ein­kenni eða ekki. Heil­brigð­is­starfs­fólk gætti ítr­ustu var­úðar og almenn­ingur var hvattur til að huga að sótt­vörnum.

Með þessu móti tókst að halda sýk­ingum í lág­marki án þess að grípa til harðra aðgerða sem bitna myndu stór­kost­lega á efna­hags­líf­inu. Skólar voru áfram opnir og sömu­leiðis gengu verslun og við­skipti að mestu sinn vana gang.

Gríð­ar­lega mörg sýni voru tekin, einna flest miðað við höfða­tölu í heim­inum öllum. Hlut­falls­lega fá reynd­ust jákvæð. Singapúrar höfðu fundið leið sem virt­ist duga. Stjórn­völd töldu aðgerðir sínar hafa gagn­ast vel. „Í Singapúr viljum við að lífið haldi áfram með eðli­legum hætti,“ sagði Dale Fisher, for­stöðu­maður sótt­varna­deildar Háskól­ans í Singapúr, fyrir um mán­uði síðan. „Við viljum að fyr­ir­tæki, kirkjur, veit­inga­hús og skólar séu opin. Svona lítur vel­gengni út.“

En svo dundu ósköpin yfir.

Fyrir um hálfum mán­uði tók smitum að fjölga skarpt og á einni viku fjölg­aði þeim um 160 pró­sent. Stjórn­völd hafa í kjöl­farið neyðst til að breyta um taktík, grípa til harð­ari aðgerða, nán­ast alls­herjar lok­unar sam­fé­lags­ins eins og mörg önnur ríki hafa reynt.

Hvað fór eig­in­lega úrskeiðis?

Yfir­völdum í Singapúr yfir­s­ást stór þjóð­fé­lags­hópur í aðgerðum sínum: Far­and­verka­menn. Yfir 90 pró­sent smita sem greindust um helg­ina voru á meðal far­and­verka­manna sem búsettir eru í land­inu, þangað komnir til að vinna í bygg­ing­ar­geir­anum. Þeirra á meðal hafa blossað upp hóp­sýk­ingar enda búa þeir flestir við þröngan kost í svefn­skálum. Um 300 þús­und verka­menn, af um milljón sem vinna í land­inu, búa við slíkar aðstæður. Þeir sofa í kojum og eru um tutt­ugu saman í einu litlu her­bergi.

Verka­menn­irnir eru flestir frá Indlandi, Bangla­dess og Kína. Hjá þessum hópi hefur mik­ill meiri­hluti allra smita greinst frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Í svefn­skál­unum þar sem þeir halda til utan vinnu er enda ekki hægt að halda öruggri fjar­lægð milli manna eða ástunda félags­forðun svo nokkru nemi.

Hið sérstæða hótel í Singapúr, Marina Bay Sands, upplýst með þakkarorðum til heilbrigðisstarfsfólks.
Hið sér­stæða hótel í Singapúr, Marina Bay Sands, upp­lýst með þakk­ar­orðum til heil­brigð­is­starfs­fólks.

Fyrstu smit meðal far­and­verka­mann­anna greindust í febr­úar. Jos­ephine Teo, atvinnu­mála­ráð­herra Singapúr, sagði snemma í apríl að þótt það væri alltaf hætta á smiti í svefn­skál­unum væri hún „ekk­ert öðru­vísi en inni á heim­ilum okkar“. Yfirvöld segja að áður en að hóp­sýk­ing­arnar brut­ust út hafi verið búið að grípa til aðgerða, m.a. loka svefn­skálum og sam­eig­in­legum rýmum.

Rachel Chhoa-Howard, starfs­maður mann­rétt­inda­sam­tak­anna Amnesty International í Singapúr, segir hins vegar að ekki sé hægt að líkja aðstæðum í svefn­skál­unum við hefð­bundin heim­ili. Ekki hafi verið tekið til­lit til þess í upp­hafi far­ald­urs­ins og nið­ur­staðan sé sú sem blasi við í dag.

Nú í apríl hafa verka­menn í sextán svefn­skálum verið settir í ein­angrun. Þeir mega ekki yfir­gefa skálana í tvær vikur. Ein­angr­un­ar­vistin er slæm. Híbýlin voru ekki hugsuð til dvalar allan sól­ar­hring­inn.

Staðan í sumum öðrum löndum er ekki svo frá­brugðin þeirri sem upp er komin í Singapúr. Önnur lönd eru einnig að glíma við aðra bylgju far­ald­urs­ins. Japan er eitt þeirra. Borg­ríkið Hong Kong sömu­leiðis. Þar hafði tek­ist að hefta útbreiðsl­una en um leið og slakað var á aðgerðum blossuðu ný smit upp. Því hefur verið stigið skref til baka. Sem virð­ist ætla að skila til­ætl­uðum árangri.

Fjöldi stað­festra smita í Suð­austur-Asíu hefur auk­ist hratt síð­ustu vikur. Sér­fræð­ingar ótt­ast að sá heims­hluti gæti orðið mið­punktur far­ald­urs­ins innan skamms.

Tölur um stað­fest smit segja auð­vitað ekki alla sög­una. Í Suð­austur-Asíu hafa yfir 85 pró­sent allra smita greinst í Malasíu og Singapúr, ríkjum þar sem almenn vel­megun er hvað mest. Á Fil­ipps­eyjum og í Indónesíu eru stað­fest smit mun færri. Þar býr fólk þó þétt og mikil blöndun er lands­hluta á milli vegna þess að margir vinna langt frá heim­ilum sínum.

„Stað­reyndin er sú að til­fellum hefur fjölgað gríð­ar­lega hér í Suð­austur-Asíu,“ segir Simon Tay, for­stöðu­maður sér­fræð­inga­hug­veit­unnar Squawk Box Asia, sem hefur aðsetur í Singapúr. Hann segir að stjórn­völd í þessum heims­hluta verði að bregð­ast skjótt við. Sér­stak­lega sé brýnt að sýna­tökum verði fjölgað til muna á Fil­ipps­eyjum og í Indónesíu áður en allt fari á versta veg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár