Mynd: EPA

Ríkin sem (virðast) hafa náð tökum á útbreiðslunni

Þó að enn sé of snemmt að full­yrða hvaða aðgerðir hafi reynst best í bar­átt­unni gegn útbreiðslu COVID-19 er ljóst að rót­tækar aðgerðir nokk­urra Asíu­ríkja virð­ast hafa skilað árangri.

Nýja kór­ónu­veiran gerði vart við sig í Hong Kong og Singapúr snemma á árinu. En innan við 200 til­felli hafa nú greinst hjá hvoru rík­inu fyrir sig á meðan tíu sinnum fleiri hafa greinst í Frakk­landi, Þýska­landi og á Spáni, þangað sem veiran barst mun síðar.

Fyrir þremur vikum höfðu aðeins þrjú til­felli greinst á Ítalíu. Í dag eru þau yfir 17 þús­und. En í Suður-Kóreu, þar sem fyrstu til­fellin greindust á svip­uðum tíma, hafa aðeins 67 dáið úr sjúk­dómnum og mun færri greinst með veiruna.

„Þessi gríð­ar­legi mis­munur sýnir að það skiptir máli hvernig stjórn­völd bregð­ast við þess­ari veiru,“ segir far­alds­fræð­ing­ur­inn Mike Ryan, yfir­maður neyð­ar­mála hjá Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni, WHO. „Að vona það besta er ekki áætlun,“ segir Ryan. „Við erum enn á upp­hafs­stigum þessa far­ald­urs.“

Það er ekki til­viljun að stjórn­völd í borg­rík­inu Hong Kong gripu til mjög rót­tækra aðgerða strax við upp­haf far­ald­urs­ins. Þau vilja ekki end­ur­upp­lifa martröð SARS-far­ald­urs­ins árið 2003 var. Um 8.000 manns sýkt­ust þá og 774 lét­ust, þar af 299 í Hong Kong.

SARS-far­ald­ur­inn lam­aði mörg Asíuríki og sum þeirra, m.a. Hong Kong og Singapúr, ákváðu að und­ir­búa sig vel fyrir það sem koma skyldi í fram­tíð­inni. „Í raun getum við litið á SARS sem æfingu,“ segir Jeremy Lim, háskóla­pró­fessor í Singapúr, í við­tali við Time. Í kjöl­farið hafi ýmsum umbótum verið komið á.

Taívan er einnig í hópi þeirra landa sem þykja hafa brugð­ist hratt og vel við er COVID-19 braust út. Það er þó of snemmt að full­yrða að þær aðferðir sem Taívan, Suður-Kórea, Hong Kong og Singapúr beittu hafi verið þær réttu en eins og er virð­ast þær þó hafa skilað þeim árangri að fáir hafa sýkst og fáir lát­ist.

Engu að síður eiga öll þessi ríki rík tengsl við Kína þangað sem upp­tök far­ald­urs­ins eru rakin. Til þeirra allra er til að mynda beint flug frá Wuhan, borg­inni þar sem veiran er fyrst talin hafa smit­ast úr leð­ur­blöku í mann.

Stórkostlegar hamfarir

Í þessum ríkjum hefði veiran getað valdið stór­kost­legum ham­förum. Hún lét fyrst á sér kræla að ráði rétt fyrir kín­verska nýárið, á þeim tíma er millj­ónir manna í Asíu eru á ferða­lagi.

Á heims­vísu fjölgar smitum enn á hverjum degi en þeim er farið að fækka dag frá degi í þessum fjórum löndum og fleiri þar eru taldir hafa náð bata af veiru­sýk­ing­unni en nú eru veikir af henni.

Lyk­ill­inn að þessum árangri hefur sem fyrr segir falist í mjög rót- og snemmtækum aðgerðum.

Hitaskanni notaður á flugvelli í Hong Kong.
Hitas­kanni not­aður á flug­velli í Hong Kong.

Í Taívan búa 23 millj­ónir manna og strax við upp­haf far­ald­urs­ins í Kína voru allir sem flogið höfðu frá Wuhan rann­sak­aðir. Í byrjun febr­úar höfðu Taívan, Hong Kong og Singapúr öll sett á ferða­tak­mark­anir frá meg­in­landi Kína jafn­vel þótt WHO hefði sagt árangur af slíku tak­mark­aðan. Þessar aðgerðir kost­uðu sitt, ríkin eru öll í miklum við­skiptum við Kína og ferða­menn sem þangað koma eru einnig lang­flestir frá Kína.

Sérstök far­sótta­nefnd, sem komið var á í Taívan eftir SARS-far­ald­ur­inn, vann náið með stjórn­völdum í land­inu frá því að fyrstu fréttir af nýrri veiru bár­ust. Eftir miðjan jan­úar var búið að virkja við­bragðs­á­ætlun í 124 liðum sem m.a. fól í sér aukið landamæra­eft­ir­lit og sér­tækar áætl­anir fyrir skóla, vinnu­staði og sjúkra­hús.

Fyr­ir­fram hafði verið búist við því að Taívan, sem er rétt undan ströndum meg­in­lands Kína, myndi fara illa út úr far­aldr­inum og að þar yrðu smit einna flest í heim­inum. Sú hefur hins vegar ekki orðið raunin og í dag hafa aðeins greinst þar 50 til­felli.

Ökumenn bifhjóla í hlífðarfatnaði í Tapei, höfuðborg Taívan.
Ökumenn bif­hjóla í hlífð­ar­fatn­aði í Tapei, höf­uð­borg Taívan.

Ítölsk yfir­völd byrj­uðu á því að taka sýni úr mjög mörgum en fækk­uðu svo sýna­tökum umtals­vert svo ekki þyrfti að greina þús­undir sýna. En þetta hefur orðið til þess að Ítalir vita ekki hvað er handan við hornið og hafa núna gripið til aðgerða sem ná til allrar þjóð­ar­innar, um 60 millj­óna manna. Þær fela í sér sam­komu­bönn, lok­anir nær allra versl­ana utan apó­teka og mat­vöru­búða sem og lok­anir skóla.

Í Suður-Kóreu hefur önnur nálgun verið tekin. Þar hafa verið tekin sýni hjá hund­ruðum þús­unda manna og hvert smit er rakið með sömu aðferðum og not­aðar eru við glæpa­rann­sóknir lög­regl­unnar.

Far­alds­fræð­ingar segja að þó að sam­an­burð­ur­inn sé ekki full­kom­inn bendi margt til þess að umfangs­mikil sýna­taka sé gott tæki í bar­átt­unni gegn útbreiðslu veirunnar. Hafi stjórn­völd landa ekki tæki­færi til að skima ræki­lega fyrir veirunni þurfi þau að grípa til almennra aðgerða til að hefta útbreiðsl­una, m.a. með því að draga úr sam­neyti fólks.

Meðal fyrstu ríkja

Borg­ríkið Singapúr, þar sem 5,7 millj­ónir manna búa, þótti líkt og Taívan sér­lega útsett fyrir far­aldr­inum. Það var þriðja landið í heim­inum þar sem veiran greind­ist og um miðjan febr­úar voru til­fellin orðin yfir átta­tíu og hvergi fleiri utan Kína.

Yfirvöld í Singapúr hafa lagt gríð­ar­lega mikið á sig við að skima fyrir veirunni og rekja smit svo eftir hefur verið tekið. Strax við upp­haf far­ald­urs­ins var ákveðið að skima meðal allra þeirra sem hefðu flensu­lík ein­kenni. Smitrakn­ingin er líka mjög öflug og tekur lög­reglan meðal ann­ars þátt í henni. Stjórn­völd miðl­uðu því svo grimmt til almenn­ings að fara í ókeypis sýna­töku jafn­vel þótt fólk hefði aðeins væg flensu­lík ein­kenni. Þá var sá sami hópur hvattur til að vera ekki á almanna­færi.

Í gær höfðu greinst 178 til­felli COVID-19 í land­inu en ekk­ert dauðs­fall er rakið til sýk­ing­ar­innar. „Singapúr hefur velt við öllum steinum,” sagði Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, for­stjóri WHO, er hann hrós­aði stjórn­völdum fyrir árang­ur­inn.

Þar, líkt og í Suður-Kóreu, hafa stjórn­völd ríkar heim­ildir til að skoða per­sónu­upp­lýs­ingar um borg­ar­ana, m.a. kredit­korta­reikn­inga, fjar­skipta­gögn og fleira, allt í nafni sótt­varna. Fáir gera athuga­semdir enda alvanir afskiptum yfir­valda með þessum hætti. Þá eru brot á sótt­kví tekin mjög alvar­lega og varða háum sektum og jafn­vel fang­elsi.

Ekki er endi­lega við­búið að íbúar vest­ur­landa myndu sætta sig við slíkt rof á frið­helgi einka­lífs­ins. En lík­legt er að sá angi við­bragða yfir­valda sem fellst í skoðun ýmissa per­sónu­upp­lýs­inga skýri aðeins hluta af þeim árangri sem náðst hefur í bar­átt­unni við far­sótt­ina skæðu.

Fjarlægðarmörk í Hong Kong

Í borg­rík­inu Hong Kong voru við­brögðin hröð en nokkuð önnur en í Singapúr. Þar voru fljótt sett á fjar­lægð­ar­mörk sem fólk átti að halda sem og sam­komu­bönn. Skólum var lokað og mjög margir vinna heima, sé þess nokkur kostur. Kirkjur, íþrótta­leik­vangar og kvik­mynda­hús hafa staðið tóm vikum saman. Í Hong Kong hefur aðeins greinst 131 smit.

Hong Kong varð illa úti í SARS-far­aldr­inum og fólk er mjög með­vitað um almennt hrein­læti, hand­þvott og aðrar sótt­varnir. Árs­tíða­bundna inflú­ensan á meira að segja erfitt upp­dráttar þar af þessum sökum.

Að koma skila­boðum til borg­ar­anna með skýrum og yfir­veg­uðum hætti virð­ist líka vera að gera sitt. For­sæt­is­ráð­herra Singapúr, Lee Hsien Loong, er nokkuð fær í því. Í byrjun febr­úar, þegar íbúar lands­ins þyrpt­ust í versl­anir til að hamstra mat flutti hann ávarp á öllum fjórum tungu­málum rík­is­ins. „Ég vil tala við ykkur beint til að útskýra hvar við erum stödd og hvað gæti gerst,” sagði hann. Svo áhrifa­mikil voru orð hans að við­skipti í mat­vöru­búðum fóru þegar aftur í eðli­legt horf.

Miklu hættulegri en inflúensa

Aðrir leið­togar ríkja heims hafa tekið allt öðru­vísi á málum og jafn­vel gert lítið úr hætt­unni sem fylgir far­aldr­inum. Donald Trump Banda­ríkja­for­seti skrif­aði m.a. á Twitter fyrir nokkrum vikum að dauðs­föll af hinni árs­tíða­bundnu inflú­ensu væru fjöl­mörg í land­inu á hverju ári. Það er rétt, en nýja kór­ónu­veiran er hættu­legri. Enginn er með ónæmi fyrir henni og ekki er hægt að bólu­setja við­kvæma hópa. Dán­ar­tíðnin hingað til er mun hærri en í venju­legri flensu.

Forseti Suður-Kóreu hljóp einnig á sig er hann til­kynnti að það versta væri yfir­staðið þegar far­ald­ur­inn átti enn eftir að ná hámarki.

Reynslan kenndi mörgum Asíu­ríkjum að það beri að taka upp­lýs­ingar um yfir­vof­andi far­aldur alvar­lega, sér­stak­lega ef um nýja veiru er að ræða. Það skýrir við­búnað þeirra og aðgerðir. Stjórn­völd í mörgum Evr­ópu­ríkjum sem og Banda­ríkj­unum höfðu mun lengri tíma til að und­ir­búa sig fyrir komu veirunnar en gerðu það þó ekki.

Almenn skimun hafin

Hér á landi er ekki vitað hvort að veiran hafi almennt breiðst út í sam­fé­lag­inu en af þeim sem eru sýktir hafa lang­flestir smit­ast á skíða­svæðum í Ölpunum eða tengj­ast þeim ferða­löngum. Yfir þús­und manns eru í sótt­kví. Viðbrögð íslenskra heil­brigð­is­yf­ir­valda hingað til eru talin hafa skilað góðum árangri en eftir að nokkur til­felli greindust sem ekki er hægt að rekja til áhættu­svæð­anna í Ölpunum ákvað sótt­varn­ar­læknir að leggja til sam­komu­bann frá og með mið­nætti á morgun. Það felur í sér að sam­komur fleiri en hund­rað manna eru óheim­ilar.

Íslensk erfða­grein­ing hefur hafið skimun meðal almenn­ings. Sú rann­sókn á eftir að leiða í ljós hvort að nýja kór­ónu­veiran sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum hafi búið um sig í sam­fé­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið undanfarið ár