Lilja skipar Eygló Harðardóttur sem nýjan stjórnarformann LÍN

Fjórir nýir skip­aðir í stjórn LÍN. Á meðal þeirra eru Eygló Harð­ar­dóttir og Teitur Björn Ein­ars­son.

Eygló Harð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra 2013-2016, hefur verið skipuð stjórn­ar­for­maður Lána­sjóðs íslenskra náms­manna (LÍN) af Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Teitur Björn Ein­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er einnig á meðal þeirra sem skip­aðir voru nýir í stjórn­ina. Hann er til­nefndur af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Teitur var aðstoð­ar­maður Bjarna áður en hann var kjör­inn á þing haustið 2016. Hann féll svo af þingi í kosn­ing­unum sem fram fóru ári síðar.

Auk þeirra voru Lárus Sigurður Lárusson lög­maður Sigrún Elsa Smára­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, skipuð ný í stjórn LÍN. Fyrir í stjórn­inni eru Ragnar Auðun Árnason, Jóhann Gunnar Þór­ar­ins­son, Rebekka Rún Jóhann­es­dóttir og Hildur Björg­vins­dóttir.

Lilja segir að eitt af áherslu­málum hennar sem mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra verði að bæta kjör náms­manna og að ráð­ast í end­ur­skoðun á náms­lána­kerf­inu. „Ég vil að sú vinna fari fram í sam­starfi við náms­manna­hreyf­ing­arnar þar sem lögð verður áhersla á jafn­rétti til náms, skil­virkni og náms­styrkja­kerfi að nor­rænni fyr­ir­mynd.“

Hlutverk stjórnar sjóðs­ins er meðal ann­ars að veita náms­lán, inn­heimta náms­lán, ann­ast gagna­söfnun varð­andi þörf náms­manna á náms­lánum, og ann­ast fjár­mál sjóðs­ins og gerð fjár­hags­á­ætl­ana. Stjórnin setur úthlut­un­ar­reglur sem eru lagðar fram til kynn­ingar og stað­festar af ráð­herra eigi síðar en 1. apríl ár hvert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár