Moderna biður um grænt ljós á bóluefnið

Heims­byggðin er í dag einu skrefi nær bólu­efni gegn COVID-19 en hún var í gær. Ef allt gengur að óskum er mögu­legt að bólu­efni tveggja fyr­ir­tækja fái neyð­ar­sam­þykki banda­rísku lyfja­stofn­un­ar­innar og að bólu­setn­ing geti haf­ist um miðjan des­em­ber.

Bóluefni líftæknifyrirtækisins Moderna hefur gefið góða raun á rannsóknarstigum.
Bóluefni líf­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Moderna hefur gefið góða raun á rann­sókn­ar­stigum. Mynd: EPA

Líf­tækni­fyr­ir­tækið Moderna ætlar í dag að sækj­ast form­lega eftir sam­þykki Matvæla- og lyfja­stofn­unar Banda­ríkj­anna fyrir bólu­efni sínu gegn COVID-19. Rúmlega vika er síðan lyfja­fyr­ir­tækin Pfizer og BioNtech gerðu slíkt hið sama. Fyr­ir­tækin hafa sótt eftir neyð­ar­sam­þykki stofn­un­ar­innar og fáist það gæti bólu­setn­ing haf­ist um miðjan des­em­ber.

Bóluefni Moderna er talið veita vörn gegn kór­ónu­veirunni í 94 pró­sent til­vika sem er langt umfram vænt­ingar

Ef allt gengur að óskum og Matvæla- og lyfja­stofn­unin gefur Moderna og Pfizer grænt ljós er mögu­legt að hægt verði að bólu­setja tutt­ugu millj­ónir Banda­ríkja­manna gegn COVID-19 fyrir árs­lok, segir í frétt Washington Post um tíð­indin.

Þetta er fjórði mánu­dag­ur­inn í röð sem færðar hafa verið jákvæðar fréttir af þróun bólu­efna gegn sjúk­dómnum.

„Þú vilt ekki fara fram úr sjálfum þér og fagna sigri en þetta ber öll merki þess að hafa mjög, mjög mikil áhrif á það að stöðva far­ald­ur­inn,“ segir Anthony Fauci, for­stjóri smit­sjúk­dóma­stofn­unar Banda­ríkj­anna. „Áhrifa­ríkt bólu­efni, ef það er tekið af mjög, mjög háu hlut­falli almenn­ings, gæti kramið þennan far­aldur rétt eins og gerð­ist með far­aldur misl­inga, bólu­sóttar og fleiri sjúk­dóma.“

Þakk­ar­gjörð­ar­há­tíðin er nú í vik­unni og ótt­ast er að ferða­lög og fjöl­skyldu­boð henni tengd verði til þess að kór­ónu­veirusmitum muni fjölga hratt. Yfir 100 þús­und manns grein­ast dag­lega með veiruna í Banda­ríkj­unum og ef fjórða bylgjan brýst út á næstu dögum og vikum mun það, hvort sem bólu­efni kemur í des­em­ber eða ekki, valda gríð­ar­legu álagi á heil­brigð­is­kerfið.

Áður en neyð­ar­sam­þykki lyfja­fyr­ir­tækj­anna fæst á Matvæla- og lyfja­stofn­unin, sem og fleiri eft­ir­lits­að­ilar, eftir að rýna í öll rann­sókn­ar­gögn sem til hafa orðið í þró­un­ar­ferli bólu­efn­anna. Þar sem bólu­efnin verða bæði af skornum skammti fyrst um sinn mun nefnd á vegum smit­sjúk­dóma­stofn­unar Banda­ríkj­anna leggj­ast yfir það hvaða hópar fari í for­gang.

Bæði Moderna og Pfizer segj­ast verða til­búin með marga skammta af bólu­efn­inu þegar og ef lyfja­stofn­unin gefur grænt ljós.

Mörgum spurn­ingum er enn ósvarað. Ein er sú hversu lengi vörnin sem bólu­efnið gefur mun vara. Þá eru vís­inda­menn ekki á einu máli um hvort að bólu­efni komi í veg fyrir að sá sem þau fær geti smitað aðra af veirunni.

Moderna mun einnig í dag sækj­ast eftir leyfum hjá Evrópsku lyfja­stofn­un­inni og er einnig að vinna að því að fá leyfi í Bret­landi, Sviss, Kanada, Ísrael og Singapúr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár