Stuðningur við ríkisstjórnina 27,2 prósent – Sjálfstæðisflokkur lækkar mikið

Fylgi við Sjálf­stæð­is­flokk fellur skarpt sam­kvæmt nýrri könnun. Rík­is­stjórnin nær nýjum lægðum í stuðn­ingi og Flokkur fólks­ins mælist stærri en bæði Viðreisn og Björt fram­tíð.

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar.
Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist nú 24,5 pró­sent og lækkar um 4,8 pró­sentu­stig frá síð­asta mán­uði. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hríð­lækkar milli júlí og ágúst­mán­aða og mælist nú 27,7 pró­sent. Það er minnsti stuðn­ingur sem mælst hefur við sitj­andi rík­is­stjórn og svip­aður stuðn­ingur og mæld­ist við rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar í apríl 2016, þegar Wintris-málið var í hámæli. Þá mæld­ist sú rík­is­stjórn með 26 pró­sent stuðn­ing. Þetta kemur fram í nýbirtri könnun MMR.

Fylgi flokka miðað við könnun MMR 18. ágúst

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist enn stærsti flokkur lands­ins með 24,5 pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn mæld­ist með 29,3 pró­sent fylgi í könnun MMR í júlí. Vinstri græn eru næst stærsti flokkur lands­ins með 20,5 pró­sent fylgi sem er nán­ast sama fylgi og flokk­ur­inn mæld­ist með í júlí. Píratar koma þar á eftrir með 13,5 pró­sent fylgi en mæld­ust með 13,3 pró­sent í júlí. Þar á eftir kemur Sam­fylk­ingin með 10,6 pró­sent fylgi og Fram­sókn­ar­flokkur með 10,1 pró­sent fylgi.

[adspot]

Flokkur fólks­ins, undir for­ystu Ingu Sæland, mælist með 6,7 pró­sent fylgi sem er lítið eitt meira en hann mæld­ist með í júlí. Flokk­ur­inn mælist með meira fylgi en báðir litlu stjórn­ar­flokk­arnir, Viðreisn og Björt fram­tíð. Sá fyrr­nefndi mælist með sex pró­sent fylgi og sá síð­ar­nefndi með 3,6 pró­sent, sem myndi ekki duga til að ná manni inn á þing ef kosið yrði í dag. Fylgi beggja mælist þó, þrátt fyrir það, umtals­vert hærra en það gerði í júlí. Þá mæld­ist fylgi Við­reisnar 4,7 pró­sent og fylgi Bjartrar fram­tíðar var 2,4 pró­sent.

Íslenska þjóð­fylk­ingin mælist með 1,6 pró­sent fylgi, Dögun með 1,4 pró­sent og aðrir með 1,6 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár