„Við viljum ekki að sagan end­ur­taki sig“

Þingmenn Við­reisnar, Sam­fylk­ing­ar­innar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins gerðu sölu Íslands­banka að umtals­efni á þing­inu í dag. Allir vilja þeir að upp­lýst verði hverjir keyptu og að gagn­sæi ríki um söl­una.

Þrír þing­menn Við­reisnar, Sam­fylk­ing­ar­innar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins töl­uðu um sölu rík­is­ins á hlut í Íslands­banka undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Lárus Blön­dal stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins greindi frá því í þætti Dag­mála á mbl.is í morgun að ekki væri hægt að birta lista yfir þá 209 aðila sem fengu að kaupa hlut í Íslands­banka þann 22. mars síð­ast­lið­inn með 2,25 millj­arða króna afslætti.

Hann sagði að Banka­sýslan hefði fengið lög­fræði­á­lit um þetta við­fangs­efni og álit frá Íslands­banka sjálf­um. Jafn­framt hefði verið leitað álits hjá erlendum ráð­gjöfum stofn­un­ar­inn­ar. „Það er ein­hlítt svar í sjálfu sér, það eru allar líkur á því að þetta falli undir banka­leynd og jafn­framt er þetta óþekkt í þessum erlenda praxís að menn upp­lýsi um kaup­endur og hvað keypt er,“ sagði hann.

Ekki hægt að gefa þessari sölu ómengað vottorð um heilbrigði

Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar hóf ræðu sína á að segja að það væri ekki ein­falt verk að selja banka, hvað þá þegar bank­inn væri í eigu þjóðar sem er skað­brennd eftir heilt banka­hrun og afskap­lega mis­heppn­aða banka­sölu í kringum alda­mót.

„Við þær kring­um­stæður er traust algjört lyk­il­orð, traust á und­ir­bún­ingnum, traust á söl­unni, traust á kaup­endum og traust á því að heið­ar­lega sé staðið að málum og vandað til verka í hví­vetna. Traust er lyk­il­hug­tak. Viðreisn hefur þá ein­dregnu skoðun að rík­is­valdið eigi ekki að vera alltum­lykj­andi í banka­við­skiptum. Við höfum því stutt söl­una á Íslands­banka en um leið spurt spurn­inga um traust, heið­ar­leika og vönduð vinnu­brögð til að halda rík­is­stjórn­inni við efnið því einka­væð­ing­ar­sporin hræða aftur í ára­tug­ina. Við viljum ekki að sagan end­ur­taki sig og ein­hver dul­ar­fullur þýskur banki dúkki upp sem leppur í ein­hverjum felu­leik og sam­krulli stjórn­mála og við­skipta.

Sem betur fer virð­ist ekk­ert svo stór­fellt uppi á ten­ingnum nú en því miður er ekki hægt að gefa þess­ari sölu ómengað vott­orð um heil­brigði því að við eigum að gera sömu kröfur um vand­virkni og gagn­sæi óháð stærð þess hluta sem seldur er í banka hverju sinni,“ sagði hann.

Sigmar telur að upp­lýsa þurfi um hvernig stendur á því að smáir aðilar, sem alls óvíst sé að geti talist fag­fjár­festar, fengu að kaupa rík­i­s­eigur fyrir tugi millj­óna með afslætti.

„Allt þarf það að þola dags­ins ljós og vera vel rök­stutt, ann­ars hrynur traustið á ferl­inu og það skemmir fyrir frek­ari sölu. Þau tíð­indi að Banka­sýslan telur sig ekki geta veitt gögn um þá sem keyptu þessa eign þjóð­ar­innar með afslætti vegna banka­leyndar eru afleit. Með því hrynur krafa okkar um gagn­sæi. Hvernig má það vera að það þarf að toga upp upp­lýs­ingar með töngum um þá sem kaupa af okkur eign? Þjóðin selur eitt­hvað en henni kemur ekki við hver keypti. Reglu­verkið bannar það. Und­ir­bún­ing­ur­inn og verk­lagið var sem sagt ekki betra en þetta. Þetta gengur auð­vitað ekki upp. Ef rík­is­stjórnin og við öll ætlum að sætta okkur við að okkur komi það ekki við hverjir kaupa bank­ann okkar þá getum við tekið lyk­il­orð og lyk­il­hug­tak allra banka­við­skipta og allrar banka­sölu og fleygt út í hafs­auga því þá ríkir ekki traust,“ sagði þing­mað­ur­inn.

„Spilling getur verið til staðar þó að það hafi ekki verið ætlun stjórnvalda“

Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar greindi frá því í sinni ræðu að á fjár­laga­nefnd­ar­fundi í morgun hefði hún lagt fram ósk að fá minn­is­blað frá Banka­sýsl­unni í tengslum við söl­una á Íslands­banka, sem hún gerir ráð fyrir að verði afgreitt úr nefnd í vik­unni.

Benti hún jafn­framt á að bæði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefðu lýst því yfir að varpa þyrfti betra ljósi á söl­una og sagði for­sæt­is­ráð­herra að lög ættu ekki að hamla birt­ingu list­ans.

„Spilling getur verið til staðar þó að það hafi ekki verið ætlun stjórn­valda. Ef leið­bein­ingar við sölu á rík­is­eign eru óljósar og skiln­ingur þriðja aðila er sá að val á kaup­endum sé líkt því sem gengur og ger­ist þegar seld eru verð­bréf í einka­eigu þá getur það leitt til ráð­staf­ana á eignum almenn­ings á afslætti án til­hlýð­andi rök­stuðn­ings.

Ef sölu­að­ilar eru valdir til að sinna verk­efnum fyrir ríkið upp á 700 millj­arða króna án þess að fram fari útboð eða rök­stuðn­ingur á því hverjir voru valdir þá vakna eðli­lega upp spurn­ingar. Af hverju? Þegar verið er að stunda við­skipti með eignir og fjár­muni rík­is­ins þá gerum við kröfu um gagn­sæi og jafn­ræði sem eru miklu stíf­ari en gengur og ger­ist í við­skiptum einka­að­ila. Ástæðan er fyrst og fremst ótt­inn við spill­ingu. Þess vegna er svo mik­il­vægt að fram fari alvöru­skoðun á þessu ferli og að þeim spurn­ingum sem ekki hefur verið svarað verði svarað, að öxlum verði ekki bara yppt og haldið áfram að selja tug­millj­arða eignir bara ein­hvern veg­inn, á þann veg að stóra myndin sé ágæt,“ sagði Kristrún og bætti því við að þau í Sam­fylk­ing­unni myndu fylgja þessu máli fast eftir og ýta eftir svörum.

Þingmenn verði að leita allra leiða til þess að fá þessar upplýsingar fram

Diljá Mist Ein­ars­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins fjall­aði einnig um söl­una á Íslands­banka í sinni ræðu og vís­aði í ræðu Hildar Sverr­is­dóttur sam­flokks­kona hennar síðan í gær þar sem hún sagði að það skipti gríð­ar­lega miklu máli að um söl­una ríkti fullt gagn­sæi, ekki síst varð­andi það hverjir það væru sem fengu að fjár­festa í bank­anum í þessu ferli.

Þessu er Diljá Mist full­kom­lega sam­mála og benti hún á að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefði kallað eftir lista yfir kaup­endur og um þær reglur sem gilda um upp­lýs­ing­arnar.

„Fyrsti hluti sölu Íslands­banka var vel heppnað hluta­fjár­út­boð og nei­kvæðar raddir heyrð­ust þá almennt bara frá þeim sem voru og eru yfir höfuð á móti sölu rík­is­banka. Það hefur hins vegar legið fyrir frá upp­hafi að ríkið ætl­aði sér ekki að eiga bank­ann um ókomna tíð. Sala rík­is­ins á hlutnum nú var sann­ar­lega nauð­syn­legt skref. Fram­kvæmdin var í höndum sjálf­stæðrar stofn­unar, Banka­sýsl­unnar, sem telur að útboðið hafi verið afar vel heppnað. Það er mik­il­vægt að karp og hár­tog­anir um upp­lýs­inga­gjöf varpi ekki rýrð á söl­una, skapi ekki óþarfa van­traust.

Það er eðli­leg krafa að við fáum upp­lýs­ingar um það hverjir keyptu og hvernig því var háttað þegar um er að ræða sölu rík­is­eigna. Við þing­menn gegnum eft­ir­lits­hlut­verki með stjórn­sýsl­unni og við hljótum að leita allra leiða til þess að fá þessar upp­lýs­ingar fram. Við getum tæp­lega unað við það að okkur verði ekki veittar þessar upp­lýs­ingar sem farið hefur verið fram á, upp­lýs­ingar sem varða sölu á rík­is­eign,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár