Þokast mjög í átt að samkomulagi milli ESB og Grikklands

Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, hefur kallað eftir því að leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna 28 sýni sam­heldni og séu raun­hæfir. Þetta sagði hann fyrir mik­il­vægan fund í kvöld þar sem rætt verður um lausn á skulda­vanda Grikkja. Tsipras mun funda með for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB, Jean-Claude Juncker, í kvöld og búist er við því að for­seti evru­hóps­ins, Jeroen Dijs­sel­bloem, taki einnig þátt í fund­inum.

Tsipras hefur nú þegar sett fram áætlun um umbætur sem Grikkir vilja ráð­ast í, en þeir þurfa að greiða 300 millj­ónir evra til Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins á föstu­dag­inn. Sam­komu­lag þarf að nást við Evr­ópu­sam­bandið um umbæt­urnar áður en ESB og AGS leysa út neyð­ar­lán til Grikkja.

Francois Hollande Frakk­lands­for­seti sagði við fjöl­miðla fyrr í dag að nú þok­að­ist mjög í átt að sam­komu­lagi. „Við erum dögum, ég segi næstum því klukku­stundum frá mögu­legri lausn,“ sagði hann og bætti við að ef of mik­ils væri kraf­ist af Grikkjum myndi það hamla hag­vexti.

Tals­maður fram­kvæmda­stjórnar ESB hefur þó sagt að það væri ekki von á neinni nið­ur­stöðu af fund­inum í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár