Framlög til barnabótakerfisins aukin og fleiri fá þær, en raunvirði bóta hefur lítið hækkað

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingu Katrínar Jak­obs­dóttur um að rík­is­stjórn hennar hafi aukið við barna­bóta­kerfið og tryggt að það nái til fleiri en það gerði fyrir fjórum árum síðan.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í Forystusætinu á RÚV í gærkvöldi.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í For­ystu­sæt­inu á RÚV í gær­kvöldi. Mynd: RÚV/Skjáskot

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna var til við­tals í For­ystu­sæt­inu á RÚV í gær­kvöldi. Í þætt­inum fór hún um víðan völl og ræddi stefnu flokks­ins og gjörðir rík­is­stjórn­ar­innar sem hún leiðir á kjör­tíma­bil­inu sem er að líða.

Í umræðum um bág kjör öryrkja og hvort rík­is­stjórnin hefði brugð­ist þeim sem höllustum fæti standa í íslensku sam­fé­lagi, í ljósi nið­ur­staðna nýrrar skýrslu um kjör öryrkja, sagði Katrín meðal ann­ars að rík­is­stjórnin hefði inn­leitt nýtt þrep í skatt­kerfið, sem hefði verið stór aðgerð til þess að jafna kjör og bæta hag þeirra tekju­lægstu.

Hún nefndi líka barna­bóta­kerfið í svari sínu við spurn­ing­unni og sagði „...að lokum höfum við líka verið að auka barna­bóta­kerfið og tryggja að það nái til fleiri,“ um breyt­ingar sem gerðar hafa verið á barna­bóta­kerf­inu á þessu kjör­tíma­bili.

En hverju hafa þessar breyt­ingar skilað? Hafa barna­bætur auk­ist og hafa þær náð til fleiri, eins og Katrín segir? Stað­reynda­vakt Kjarnans tók þessa full­yrð­ingu for­manns Vinstri grænna til skoð­unar.

Framlög aukin en verðbólga búin að gleypa krónutöluhækkanir

Árið 2017, þegar núver­andi rík­is­stjórn tók við kefl­inu, var alls 9,52 millj­örðum króna varið í barna­bætur. Á þessu ári stendur til að 13,1 millj­arði verði varið í greiðslu barna­bóta, sem er aukn­ing sem er vel umfram verð­lags­hækk­anir, sam­kvæmt verð­lags­reikni­vél Hag­stof­unnar, ef miðað er við ágúst­mánuð í hvoru ári. Það er því klárt að barna­bóta­kerfið hefur verið eflt hvað bein fram­lög úr rík­is­sjóði varðar.

Þegar hins vegar horft er til þess sem tekju­lágir for­eldrar sem fá óskertar barna­bætur fá í sinn hlut í dag hefur lítil sem engin raun­hækkun orðið á barna­bót­unum. Samkvæmt útreikn­ingum Kjarnans hafa barna­bætur tekju­lægstu for­eldr­anna ein­ungis um það bil haldið í við verð­lag frá ágúst 2017 til ágúst 2021. Þó er rétt að taka fram að upp­hæð barna­bóta var aukin árið 2019 og hefur verið óbreytt síðan. Á þeim tíma var hækk­unin vel umfram verð­lags­hækk­anir.

En síðan þá hefur verð­bólgan smám saman étið hækk­un­ina upp. Sem dæmi má nefna að árið 2017 námu óskertar barna­bætur til ein­stæðs for­eldris með 7 ára gam­alt barn 342.939 krónum. Árið 2021 er þessi sama upp­hæð komin upp í 390.700 krónur. Hækkunin er tutt­ugu krónum frá því halda í við verð­lags­breyt­ingar á und­an­förnum fjórum árum, sam­kvæmt reikni­vél Hag­stof­unnar. Svo annað dæmi sé tekið námu óskertar barna­bætur til tekju­lágs sam­búð­ar­fólks með tvö börn, eitt 3 ára og eitt 8 ára, sam­tals 573.800 krónum á ári árið 2017. Á árinu 2021 er þessi upp­hæð komin upp í 653.700 krónur, sem er einmitt nær algjör­lega í takt við verð­lags­hækk­anir á þessu tíma­bili.

[adspot]

Hækkunin á fram­lögum inn í barna­bóta­kerfið í tíð rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur því, þegar staðan er tekin núna í lok kjör­tíma­bils, að mestu skilað sér í hóf­legum hækk­unum barna­bóta til þeirra sem eru með tekjur yfir skerð­ing­ar­mörkum barna­bóta. Í skýrslu sem Kolbeinn Stef­áns­son vann fyrir BSRB árið 2019 var bent á að þær breyt­ingar sem þá stóð til að ráð­ast í á kerf­inu myndi ein­ungis að litlu leyti skila sér til þeirra sem höllustum fæti standa.

„Fyr­ir­huguð hækkun á skerð­ing­ar­mörkum barna­bóta skilar mjög hóf­legum hækk­unum barna­bóta og gerir lítið sem ekk­ert fyrir allra tekju­lægstu fjöl­skyld­urnar. Þá gefur hækkun skerð­ing­ar­marka minni hækkun til ein­stæðra for­eldra en til for­eldra í hjú­skap, en fyrr­nefndi hóp­ur­inn býr við mjög auknar líkur á fátækt og fjár­hags­þreng­ingum,“ sagði í skýrsl­unni frá BSRB.

Fjöldi þeirra ein­stak­linga sem fá barna­bætur hefur þó vissu­lega vaxið á kjör­tíma­bil­inu. Rúmlega 49 þús­und manns fengu ein­hverjar barna­bætur í fyrra og fjölg­aði þeim um 3 pró­sent á milli ára, sam­kvæmt yfir­liti frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

Til við­bótar almenna barna­bóta­kerf­inu var í fyrra, vegna COVID-19, greiddur sér­stakur 30 þús­und króna barna­bóta­auki með hverju barni þeirra for­eldra sem fá greiddar tekju­tengdar barna­bætur sam­kvæmt nið­ur­stöðu álagn­ingar. Heild­ar­fjár­hæð barna­bóta­aukans nam 1,6 millj­örðum króna og rann hann til 49 þús­und ein­stak­linga.

Niðurstaða Staðreyndavaktarinnar

Framlög úr rík­is­sjóði til barna­bóta­kerf­is­ins hafa vissu­lega auk­ist í tíð rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur og barna­bætur ná til fleiri ein­stak­linga en þær gerðu árið 2017. Það er því ekki hægt að segja annað en að Katrín hafi farið rétt með í full­yrð­ingu sinni.

Í því ljósi að full­yrð­ingin um barna­bóta­kerfið var á meðal þess for­sæt­is­ráð­herra setti fram sem svar við spurn­ingu um það hvort rík­is­stjórn hennar hefði brugð­ist þeim sem standa höllustum fæti í sam­fé­lag­inu er það þó mat Stað­reynda­vakt­ar­innar að Katrín hafi ein­ungis verið á réttri leið í svari sínu. Þeir for­eldrar sem höllustum fæti standa fá að raun­virði ekki meira út úr barna­bóta­kerf­inu í dag en þeir gerðu árið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár