Efnahagsgjá = Pólitísk gjá

Staðan í ein­staka ríkjum Banda­ríkj­anna er afar mis­jöfn, bæði póli­tískt og efna­hags­lega.

Það eru margir undr­andi á stöðu mála í banda­rískum stjórn­málum. Í fram­boði fyrir Repúblik­ana er nú yfir­lýstur kyn­þátta­hat­ari sem talar fyrir aðskiln­aði á grund­velli upp­runa og trú­ar­bragða, og elur ótt­anum við efna­hags­leg áhrif alþjóða­væð­ingar.

Þessi boð­skapur verður ekki stað­settur hægra megin við miðj­una, svo mikið er víst. Það þjónar litlum til­gangi að stað­setja hann yfir höfuð á póli­tískan kvarða. En það er stór og mikil spurn­ing, hvernig á því stendur að hljóm­grunn­ur­inn í Banda­ríkj­unum fyrir þessum sjón­ar­miðum er það mik­ill að fylgi hans mælist nú, tæpum þremur vikum fyrir kosn­ingar, 42,3 pró­sent. Hillary Clinton mælist með 49,7 pró­sent og Gary Johnson 5,8 pró­sent.

Þó allt bendi til þess að for­skot Hillary Clinton sé nú þegar það mikið að erfitt sé fyrir Trump að vinna kosn­ing­arnar, þá er ekki hægt að úti­loka neitt.

Kosn­inga­bar­áttan hefur verið for­dæma­laus þegar kemur að inni­stæðu­lausum upp­hróp­unum frá Trump, og margir spyrja hvort það skipti engu máli hvort hann sé að segja sann­leik­ann eða ekki.

Nokkur atriði er mik­il­vægt að fólk átti sig á þegar kemur að stöðu mála hér í Banda­ríkj­unum í aðdraga­anda kosn­ing­anna 8. nóv­em­ber.

1. Efna­hags­legur veru­leiki ríkj­anna er mis­jafn og má aug­ljós­lega greina fylgni á milli þessi hvernig efn­hag­ur­inn er sam­settur, og hvar Trump hefur verið að mæl­ast með mesta fylgið. Staðan hjá Repúblik­unum hefur lengi verið slök í vestur- og aust­ur­strand­ar­ríkj­unum, en hún hefur sjaldan verið jafn slök og nú. Helsta vígið er í mið­ríkj­unum, þvert í gegnum landið, og síðan í suð­ur­ríkj­unum.

2. Vest­ur­strand­ar­ríkin þrjú, Washington, Oregon og Kali­fornía, eru öll á bandi Hillary (miðað við með­al­tölin) og öll aust­ur­strand­ar­ríkin nema Suður-Karolína og Georgía eru á hennar bandi einnig, sam­kvæmt könn­unum. Vafinn er helst um Florída, eins og venju­lega, og Norður-Karolínu. En sé mið tekið af helstu könn­unum þá eru miklar líkur á að Hillary verði með afar sterka stöðu í strand­ríkj­unum. Sú staða gæti skipt sköpum þegar upp er staðið.

3. Á und­an­förnum ára­tug, ekki síst eftir að fjár­málakrepp­una á árunum 2007 til 2009, hefur efna­hags­leg staða þess­ara strand­ríkja verið að styrkj­ast í mörgum til­vikum, á meðan staðan í mið­ríkj­unum hefur versnað. Fjölda­fram­leiðslu­störfum, ekki síst í frum­fram­leiðslu, hefur fækkað hratt og fjár­fest­ing með þeim flust til Asíu, ekki síst Kína. Ríki eins og Idaho, Wyoming og Nebraska – þar sem Trump mælist með yfir­burða­stöðu – hafa farið einkar illa út úr þessum efna­hags­legu breyt­ingum, sem teygja sig þó lengra aftur í tím­ann. Það sama má segja um Kansas, Oklahoma og Arkans­ans. Það er ekki að atvinnu­leysi sé vand­inn, heldur frekar að lág laun og lítil fram­þróun hái þeim. Atvinnu­leysi mælist nú mest að með­al­tali í Alaska, 6,8 pró­sent, en minnst í Suður-Dakóta. Farvegur fyrir öfga­hópa, sem styðja hug­myndir um kyn­þátta­hyggju og þjóð­ern­is­hyggju, hefur verið að styrkj­ast í þessum efna­hags­lega veik­burða ríkjum, og hefur Trump mark­visst unnið í því að efla þar stemmn­ingu meðal fólks og fá það með sér á kosn­inga­vagn­inn. Efa­semdir um jákvæð áhrif alþjóða­væddra við­skipta og samn­inga við önnur ríki hljóma eins og múskík í eyrum kjós­enda á þessum slóðum.

4. Fjöl­menn­asta ríki Banda­ríkj­anna með um 40 millj­ónir íbúa er Kali­fornía, þar á eftir kemur Texas með 28 millj­ónir og New York og Florida koma þar á eftir með um 20 millj­ónir íbúa hvort. Af um 320 millj­óna heildar­í­búa­fjölda býr um þriðj­ungur í þessum fjórum ríkjum. Langstærsta ein­staka ríkis-hag­kerfið er í Kali­forníu, með sjálfan síli­kondal­inn sem helstu upp­sprettu nýsköp­unar. New York kemur þar á eftir og síðan Washington-ríki.

5. Þau ríki þar sem bar­áttan er einna tví­sýn­ust, sam­kvæmt spám og könn­unum, eru Iowa og Arizona. Samkvæmt spá FiveT­hir­tyEight eru 56 pró­sent líkur á sigri Hillary Clinton í Iowa en 44 pró­sent líkur á sigri Trump. Í Arizona eru hlut­föllin þau sömu. Einnig er staðan spenn­andi í Ohio en lík­urnar eru þó heldur Hillary megin. Samtals búa um 10 millj­ónir í Arizona og Iowa. Þar eins og víða ann­ars staðar getur brugið til beggja vona, og ljóst að kosn­inga­þátt­taka mun skipta miklu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár