Skynörvandi rokkið gleymist seint: The Doors fimmtug

Nú er 4. jan­úar yfir­lýstur „Dagur Dyranna“ eða „Day of the Doors“ í Los Angeles eftir hálfrar aldar afmæli sam­nefndrar plötu hljóm­sveit­ar­innar The Doors. Kjarninn leit yfir stutta en magn­aða sögu hljóm­sveit­ar­innar.

Veggmynd af Jim Morrison, söngvara The Doors í Venice í Kaliforníu. Aðdáendur minntust goðsins þegar haldið var upp á hálfrar aldar afmæli plötunnar The Doors 4. janúar 2017.
Veggmynd af Jim Morrison, söngv­ara The Doors í Venice í Kali­forníu. Aðdá­endur minnt­ust goðs­ins þegar haldið var upp á hálfrar aldar afmæli plöt­unnar The Doors 4. jan­úar 2017. Mynd: EPA

Hljóm­platan The Doors eftir sam­nefnda hljóm­sveit kom út þann 4. jan­úar 1967 eða fyrir fimm­tíu árum. Tveir eft­ir­lif­andi með­limir The Doors, gít­ar­leik­ar­inn Robby Krieger og trommar­inn John Densmore, héldu til Venice í Los Angeles þar sem ævin­týrið byrj­aði fyrir hálfri öld til að halda upp á dag­inn. Borgin lýsti yfir að héðan í frá væri 4. jan­úar „Dagur Dyranna“ eða „Day of the Doors“.

Án efa hefur heill­andi söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar Jim Morrison eitt­hvað haft með vin­sældir hennar að gera í gegnum árin en þó hlýtur tón­listin að standa upp úr. Og þrátt fyrir frekar stuttan líf­tíma náði hljóm­sveitin að stimpla sig inn sem ein áhrifa­mesta rokk­hljóm­sveit 20. ald­ar­innar og sér seint fyrir enda vel­gengni verka hennar. Við þessi tíma­mót er ráð að rifja upp sögu hljóm­sveit­ar­innar og goð­sögn söngv­ar­ans.

„Dyr skynjunarinnar“

Örlögin hög­uðu því þannig að kunn­ingj­arnir Jim Morrison og hljóm­borðs­leik­ar­inn Ray Manzarek hitt­ust í júlí 1965 en þeir höfðu báðir verið nem­endur í Lista­há­skóla Kali­forn­íu­fylkis. Morrison sagði Manzarek frá tón­list­ar­sýn sinni og áhuga og fyrr en varði var hann kom­inn í hljóm­sveit hins síð­ar­nefnda sem nefnd­ist Rick & the Ravens. Eftir nokkrar manna- og nafna­breyt­ingar skip­aði hljóm­sveitin þá tvo, ásamt trommu­leik­ar­anum John Densmore og gít­ar­leik­ar­anum Robby Krieger.

Nafnið The Doors er fengið frá titli rits­ins „The Doors of Perception“ eða „Dyr skynj­un­ar­innar“ eftir rit­höf­und­inn og heim­spek­ing­inn Aldous Huxley. Hann lýsir í bók sinni reynslu sinni af ofskynj­un­ar­lyf­inu meska­líni, eft­ir­málum hennar og hvaða þýð­ingu sú reynsla gæti haft fyrir listir og trú­ar­iðkun. Hann fékk sjálfur nafnið úr ljóði eftir William Blake „The Marriage of Heaven and Hell.“

Velheppnuð frumraun

Breið­skífan, The Doors, er fyrsta plata hljóm­sveit­ar­innar og má með sanni segja að hún hafi skotið þeim hratt upp á stjörnu­him­in­inn. Lagið „Light My Fire“ er flestum kunn­ugt og er lang lífseig­asta lagið á plöt­unni þrátt fyrir önnur ógleym­an­leg lög. Í júlí 1967 var lagið í þrjár vikur sam­fleytt efst á lista Bill­bo­ard í Banda­ríkj­unum. Lagið er númer 35 á lista tíma­rits­ins Rolling Stone yfir bestu lög allra tíma. Robby Krieger gít­ar­leik­ari hljóm­sveit­ar­innar er aðal­höf­undur lags­ins og ku það vera fyrsta lagið sem hann samdi á ævinni þrátt fyrir að öllum með­limum sé eign­aður heið­ur­inn á plöt­unni sjálfri.

Annað frægt lag á plöt­unni er lagið „The End“. Jim Morrison samdi lagið um sam­bands­slit sín við æsku­ást­ina Mary Werbelow. Lagið þró­að­ist mikið í tón­leika­spilun og varð tæp­lega tólf mín­útna langt og hálf­gerður gjörn­ingur í leið­inni. Það hefur verið notað í ýmiss konar kvik­myndum og þáttum í gegnum tíð­ina.

Hljóm­sveitin var fræg fyrir að vera bassa­leik­ara­laus en þó stalst upp­töku­stjór­inn að setja bassa inn á upp­tökur á þessa fyrstu plötu þeirra og réð hann Larry Knechtel bak við tjöldin. Hann var aldrei nefndur á plötu­umslagi The Doors. Þetta kemur meðal ann­ars fram í grein tíma­rits­ins Rolling Stone um áhuga­verðar stað­reyndir um hljóm­sveit­ina sem fáir kynnu að vita. 

„Higher“ ritskoðað

Hljóm­sveitin spil­aði næstu árin á klúbbum og þró­aði tón­list sína. Þeir gáfu út sína fyrstu plötu eins og fyrr segir 4. jan­úar 1967 og lagið „Light My Fire“ náði strax flugi og komst efst á vin­sæld­ar­lista. Í fram­hald­inu spil­uðu þeir í sjón­varpi og í frægum þætti Ed Sulli­vans sungu þeir text­ann „Girl, we couldn´t get much hig­her“ þrátt fyrir að hafa verið beðnir um að sleppa orð­inu „hig­her“. Orðið þótti ekki við­eig­andi fyrir sjón­varp og var þeim hótað eftir útsend­ingu að fá aldrei aftur að koma fram í þætt­inum. Þess má geta að þessi rit­skoðun á orð­inu „high“ átti eftir að taka á sig fleiri myndir þar sem orðið var klippt út í útgáfu lags­ins „Break On Through“ á plötu með kvik­mynda­tón­list úr Forrest Gump árið 1994.

Næstu ár voru við­burða­rík fyrir hljóm­sveit­ina. Hún gaf út sex breið­skífur með Jim Morrison á þessum fimm ára ferli, spil­aði og tróð upp. Eitt atvik á tón­leikum þeirra í mars 1969 í Miami í Flórída átti eftir að verða örlaga­ríkt en Morrison mætti á sviðið mjög drukk­inn og allt of seint. Hófust þá einir ein­kenni­leg­ustu tón­leikar hljóm­sveit­ar­innar þar sem fólk hag­aði sér und­ar­lega, bæði Morrison og gestir. Hann end­aði á því að fara úr að ofan og áhorf­endur með. Nokkrum dögum síðar var gefin út hand­töku­skipun á hendur Morrison þar sem hann var sak­aður um að bera sig að neðan, hrópa klám­fengin orð að áhorf­endum og haga sér ósið­lega. Hann var á end­anum dæmdur fyrir brot sín en á meðan áfrýun stóð dó Morrison svo aldrei þurfti hann að sitja inni. Hinir með­limir bands­ins neit­uðu alla tíð að Morrison hefði berað sig á sviði þetta kvöld.

Hljóm­sveitin hélt sína síð­ustu tón­leika í des­em­ber 1970 og tók upp breið­skíf­una L.A. Woman í byrjun árs 1971. Þreyta var komin í Morrison og þótti hinum með­limum ekki ráð að hann færi frekar á svið eftir flutn­ing­inn árið áður. Eftir dauða Morrison sum­arið eftir hélt hljóm­sveitin áfram að búa til tón­list og koma fram. Bandið hætti form­lega tveimur árum seinna og tveimur plötum síðar en gaf þó út eina í við­bót árið 1978 eftir end­ur­komu.

Hér fyrir neðan má sjá frægan flutn­ing The Doors í Ed Sullivan-þætt­inum.

Handtekinn á sviði

Söngv­ar­inn Jim Morrison var frægur fyrir ögrandi sviðs­fram­komu og sér­stakan stíl sem á end­anum hafði ýmsar afleið­ingar í för með sér. Hann var til að mynda fyrsti tón­list­ar­mað­ur­inn til að verða hand­tek­inn á sviði í Banda­ríkj­unum í des­em­ber 1967 í New Haven í Connecticut. Hann hafði lent í deilum við lög­reglu­mann bak­sviðs fyrir tón­leik­ana sem varð til þess að þeim seink­aði. Þegar hann kom loks­ins á sviðið þá sagði hann tón­leika­gestum frá upp­á­kom­unni og hæddi lög­regl­una. Hann var hand­tek­inn og færður á lög­reglu­stöð­ina ásamt þremur blaða­mönnum. Ákærur voru þó felldar niður þremur vikum síðar vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum.

Morrison fædd­ist í Melbourne í Flór­ídafylki í Banda­ríkj­unum árið 1943. Þegar hann var fjög­urra ára gam­all varð hann fyrir djúpri lífs­reynslu þar sem tvennum sögum fer af atburða­rásinni. Hann greindi frá því að fjöl­skyldan hafði orðið vitni að bílslysi í eyði­mörk þar sem inn­fæddir Amer­ík­anar slös­uð­ust illa og dóu. Faðir hans lýsti atvik­inu þannig að þau hefðu keyrt fram hjá slys­stað og að þetta hafi í raun ekki verið eins alvar­legt og Morrison lýsti seinna. En hvað sem því líður þá hafði atvikið áhrif á ungan huga drengs­ins og tal­aði hann oft um það og vís­aði í í textum og við­tölum.

Las Nietzsche og Blake

Ungur las Morrison mikið og sank­aði að sér þekk­ingu í heim­speki og las ljóð og bók­menntir. Hann las meðal ann­ars Friedrich Nietzsche og William Blake. Hann fór í háskól­ann í Kali­forníu, UCLA, þar sem hann lagði stund á kvik­mynda­gerð. Hann útskrif­að­ist þaðan árið 1965 og er sagður hafa lifað bóhem­lífi þar sem hann samdi texta og ljóð þangað til hann hitti Ray Manzarek um sum­arið og hóf að semja lög og spila með The Doors. Hann missti sam­band við fjöl­skyldu sína á þessu tíma­bili en faðir hans leit svo á að hann hefði enga tón­list­ar­hæfi­leika og ætti því að snúa sér að öðru. Faðir hans sagði þó síðar að hann skildi af hverju son­ur­inn hefði hætt að tala við fjöl­skyld­una og að hann væri stoltur af honum.

Söngv­ar­inn og lista­mað­ur­inn var ekki við eina fjöl­ina felldur eins og gengur og ger­ist en ein kona stendur þó upp úr og er sögð hafa verið lífs­föru­nautur hans. Hún hét Pamela Courson og voru þau saman með hléum allt til dauða­dags Morrison en hún var með honum í París þegar hann dó úr hjarta­á­falli í júlí 1971. Hann var aðeins 27 ára gam­all og er því í hópi fjölda tón­lista­manna og kvenna sem féllu frá á þessu ald­ursári. Courson dó þremur árum síðar.

Hann hafði verði í mik­illi áfengis- og eit­ur­lyfja­neyslu síð­ustu árin og ekki er vitað nákvæm­lega hvað dró hann til dauða þrátt fyrir að á dán­ar­vott­orð­inu sé skýr­ingin sögð vera hjarta­á­fall. Hann var aldrei krufinn og því hafa ýmsar sam­sær­is­kenn­ingar sprottið upp um dán­ar­or­sök og dauða hans yfir­höfuð. Hann hvílir nú í kirkju­garð­inum Père Lachaise í París þar sem fjöl­margir aðrir lista­menn og frægir ein­stak­lingar eru einnig grafnir og þykir garð­ur­inn vin­sæll áfanga­staður fyrir ferða­menn.

Heldur áfram að heilla

Kvik­mynda­leik­stjór­inn Oliver Stone gerði kvik­mynd byggða á sögu hljóm­sveit­ar­innar sem nefn­ist ein­fald­lega The Doors. Val Kilmer fór með hlut­verk Jim Morrison og Meg Ryan lék lífs­föru­naut hans Pamelu Courson. Kilmer er sagður hafa lagt allt sitt í hlut­verkið en kvik­myndin fékk þó mis­jafna dóma.

En sama hvað fólki finnst um kvik­mynd­ina eða í raun um tón­list The Doors þá má með sanni segja að tón­list þeirra hafi valdið straum­hvörfum í banda­rískri rokk­sögu og áhrif þeirra má sjá víða. Ímynd þeirra sem villtir rokk­arar sem drukku og tóku sýru er sam­ofin tón­list þeirra og ekki þarf að hlusta lengi á tón­ana til að skilja af hverju nafn þeirra og verk hafa lifað eins lengi og raun ber vitni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár