Halar nær allra nýfæddra grísa klipptir án deyfingar

Halar um 80 þúsund grísa sem fæðast á svínabúum á Íslandi árlega eru klippt án deyfingar. Starfs­menn búanna klippa halana en ekki dýra­læknar eins og lög gera ráð fyrir. Nokkrir eigendur svínabúa segja að halar séu klipptir með dýravernd í huga. ,,Allt skepnu­hald felur í sér einhverjar pyntingar,“ segir svína­bóndi sem telur að það verði engin svínabú eftir á Íslandi ef „reglu­farganið“ haldi áfram að íþyngja eigendum búanna.

Sársaukafull aðgerð
Sárs­auka­full aðgerð Samtök dýra­lækna í Evrópu (FVE) segja að grísir finni mikið til þegar klippt er af skottum þeirra. Aðgerðin geti valdið krónískum verkjum og sýk­ingum og stríði þar með gegn dýra­vel­ferð Mynd: World Animal Protection

Það eru tæp þrjátíu ár síðan Evrópu­sambandið bannaði það sem kallað er „kerfis­bundnar hala­klippingar“ á grísum. Þrátt fyrir það eru halar nær allra grísa á svínabúum í löndum sambandsins enn klipptir. 

Samtök dýralækna í Evrópu hafa hvatt til þess að þessum klippingum verði alfarið hætt þar sem þær séu sársauka­fullar, geti valdið krónískum verkjum og sýkingum og stríði þar með gegn dýra­velferð. Klippt er af hölum grísa til að koma í veg fyrir að þeir bíti í hala hvers annars á svínabúum. Samtökin segja að slík hegðun eigi sér síður stað á búum þar sem aðbúnaður svínanna sé góður. Grísir bíti í hala annarra grísa þegar aðstæður sem þeir lifa við séu slæmar því að þá verði þeir stressaðir og eirðar­lausir. Hægt sé að koma í veg fyrir þessi bit með því að gera umhverfi grísa betra því þó að hluti halans sé fjar­lægður sé ekki öruggt að dýrin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þvílíkir andlegir krypplingar
    0
  • Þorsteinn Bjarnason skrifaði
    Meiru svínin sumir af þessum svínabóndum😉
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Ég kaupi alltaf egg frá lausagönguhænum, ég myndi gjarnan kaupa svínakjöt frá bónda sem er til fyrirmyndar í dýravelferð á sínu búi, hann gæti haft verðið eitthvað hærra.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár