Búið að handtaka tvo vegna morðsins á Nemtsov

Tveir menn hafa verið hand­teknir í tengslum við morðið á rúss­neska stjórn­ar­and­stæð­ingnum Boris Nemtsov, að sögn Alex­ander Bortnikov, yfir­manns rúss­nesku örygg­is­lög­regl­unnar FSB.

Menn­irnir heita Anzor Gubashev og Zaur Dadayev þeir eru báðir frá Kákasus-hér­aði að sögn lög­regl­unnar. Bortnikov greindi frá þessu í sjón­varpi í dag, sem þykir merki um að lög­reglan vilji koma þeim skila­boðum á fram­færi við almenn­ing að hún taki morð­rann­sókn­ina mjög alvar­lega.

Að sögn rúss­neskra fjöl­miðla fannst bíll­inn sem not­aður var við morðið og var hægt að bera kennsl á menn­ina með sönn­un­ar­gögnum sem fund­ust í bílnum, sem og með því að skoða sím­tala­skrár. Þá segja fjöl­miðlar að myndir úr örygg­is­mynda­vélum hefðu verið nægi­lega skýrar til að hægt væri að bera kennsl á menn­ina tvo þar.

Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti hefur for­dæmt morðið á Nemtsov opin­ber­lega og sagð­ist ætla að fylgja rann­sókn þess eftir sjálfur. Margir halda því þó fram að stjórn­völd í Rúss­landi beri í raun ábyrgð á morð­inu, meðal ann­ars stjórn­ar­and­stöðu­leið­tog­inn Alexei Navalny.

Stjórn­ar­and­stæð­ingar hafa sagt að ekki sé nóg að finna og ákæra þessa tvo menn, heldur þurfi að finna þann eða þá sem skipu­lögðu morðið á Nemtsov.

Nemtsov var myrtur á föstu­dags­kvöldi fyrir rúmri viku en hafði skipu­lagt mót­mæli gegn stjórn­völdum tveimur dögum síðar. Mótmælin urðu að 50 þús­und manna minn­ing­ar­at­höfn um hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár