Píratar með 43 prósent fylgi – Hrun hjá stjórnarflokkunum

Frá mótmælunum á Austurvelli á mánudag þar sem krafist var afsagnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra.
Frá mót­mæl­unum á Aust­ur­velli á mánu­dag þar sem kraf­ist var afsagnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór

Píratar mæl­ast nú með 43 pró­sent fylgi en stjórn­ar­flokk­arnir tveir, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, tapa sam­tals ell­efu pró­sentu­stigum af fylgi á milli kann­anna. Þetta kemur fram í könnun Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis sem birt var í dag. Könnunin var gerð dag­anna 4. og 5. apríl.

Fylgi Pírata er það mesta sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er eftir sem áður næst stærsti flokkur lands­ins og mælist með 21,6 pró­sent fylgi. Það lækkar þó mikið á milli kann­anna miðla 365, en í síð­ustu könnun fékk flokk­ur­inn sam­tals 27,6 pró­sent fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er orð­inn næst minnsti flokkur lands­ins, en 7,9 pró­sent lands­manna segja að þeir myndu kjósa flokk frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Fylgi hans hrynur úr 12,8 pró­sentum á milli kann­anna. Samtals mælist því fylgi við sitj­andi valda­flokka undir 30 pró­sent. Í síð­ustu kosn­ingum fengu þeir sam­tals 51,1 pró­sent atkvæða sem dugði til að fá 38 þing­menn og góðan meiri­hluta á Alþingi.

[adspot]

Þær for­dæma­lausu aðstæður sem eru uppi í íslensku sam­fé­lagi í kjöl­far opin­ber­unar á aflandseignum íslenskra ráða­manna og stærstu mót­mæla Íslands­sög­unnar á mánu­dag, eru ekki að skila öðrum stjórn­ar­and­stöðu­flokkum en Pírötum mik­illi aukn­ingu á fylgi. Vinstri græn mæl­ast með 11,2 pró­sent og Sam­fylk­ingin með 10,2 pró­sent. Einungis 3,8 pró­sent segja að þeir myndu kjósa Bjarta fram­tíð.

Þá sögð­ust 15,5 pró­sent ekki ætla að kjósa eða skila auðu, 14 pró­sent sögð­ust vera óákveðið en 13,9 pró­sent svör­uðu ekki.

Tæp 70 prósent vilja að Bjarni víki

Í könn­un­inni var einnig spurt hvort að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætti að segja af sér ráð­herra­emb­ætti vegna tengsla sinna við aflands­fé­lag. Alls vilja 69 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar að Bjarni víki en 31 pró­sent ekki. Þá vildu 63 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu að Ólöf Nordal, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, myndi víkja vegna tengsla sinna við aflands­fé­lag en 37 pró­sent að hún myndi sitja áfram.

Hringt var í 1.052 í könn­un­inni­þangað til náð­ist í 800 svar­endur og var svar­hlut­fall því 76,1 pró­sent. Þátt­tak­endur voru valdir með lag­skiptu slembi­úr­taki úr þjóð­skrá. 56,6 pró­sent tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár