Eitt ár frá voðaverkunum í Kaupmannahöfn

Í dag er nákvæm­lega eitt ár síðan Omar Abdel Hamid El- Hussein, tutt­ugu og tveggja ára Dani, sonur palen­stínskra inn­flytj­enda, kom að sam­komu­hús­inu Krudttønden á Aust­ur­brú í Kaup­manna­höfn, um klukkan 15.30 síð­degis á laug­ar­degi. Þar stóð yfir fundur um mál­frelsi og meðal ræðu­manna var sænski teikn­ar­inn Lars Vilks, sem hafði teiknað umdeildar skop­myndir af Múhameð spá­manni í hunds­líki. Talið er full­víst að til­gangur Omars Hussein, sem var vopn­aður hríð­skotariffli, hafi verið að ráða teiknar­ann af dögum.

Í and­dyri sam­komu­húss­ins, innan við stóra glugga, voru vopn­aðir verðir og lög­reglu­þjónar, en fyrir utan húsið var sænski leik­stjór­inn Finn Nörgaard, sem hafði brugðið sér út af fund­inum. Óljóst er hvort orða­skipti áttu sér stað milli hans og Omars Hussein sem hleypti af skoti, eða skotum sem urðu leik­stjór­anum að bana. Omar Hussein særði jafn­framt tvo líf­verði og lög­reglu­þjón en lagði síðan á flótta. Mikil og fjöl­menn leit hófst strax og var allt lög­reglu­lið Norður-Sjálands kallað út og her­inn tók einnig þátt í leit­inni. Fljót­lega komst lög­reglan að því Omar Hussein, sem lög­reglan þekkti til, hafði komið við í tveimur húsum á Norð­ur­brú en svo virt­ist sem jörðin hefði síðan gleypt hann.

Spennuþrungið andrúmsloft

Lög­reglan ótt­að­ist að Omar Hussein myndi láta til skarar skríða ann­ars staðar í borg­inni og stórt svæði í og við mið­borg Kaup­manna­hafnar var nán­ast lokað og almenn­ingur hvattur til að halda sig heima. Lögregla og her­menn voru hvar­vetna á ferli í mið­borg­inni og kröfðu þá sem voru á ferli um skil­ríki. Enginn vissi hvar Omar Hussein var nið­ur­kom­inn. Leið svo fram yfir mið­nætti.

Tilræðið í Krystalgade

Í sam­komu-og bæna­húsi gyð­inga við Krystal­gade, í gamla háskóla­hverf­inu, var haldin veisla þetta laug­ar­dags­kvöld. Þar voru um átta­tíu manns, full­orðnir og börn. Tveir lög­reglu­þjónar stóðu vörð innan við hliðið að hús­inu og einn sjálf­boða­liði, Dan Uzan 37 ára. Skömmu eftir mið­nætti kom maður, sem virt­ist reik­ull í spori, eftir Krystal­gade. Þegar hann nálg­að­ist sam­komu- og bæna­húsið dró hann upp byssu og skaut Dan Uzan til bana en lagði svo á flótta.

Þrátt fyrir ara­grúa lög­reglu- og her­manna í nágrenn­inu tókst mann­inum, sem síðar kom í ljós að var Omar Hussein, að kom­ast undan. Ekki er með vissu vitað um ferðir hans fyrr en snemma á sunnu­dags­morgn­inum. Þá kom hann að húsi, sem lög­reglan fylgd­ist með, á Norð­ur­brú og þegar löreglu­þjónn kall­aði til hans svar­aði hann með skot­hríð en féll sjálfur fyrir skotum lög­reglu­manna.

Þaulskipulagt og undirbúið

Tilræðin í Kaup­manna­höfn fyrir réttu ári voru í kjöl­farið eitt helsta umfjöll­un­ar­efni danskra fjöl­miðla vikum saman. Umfangs­mikil lög­reglu­rann­sókn hófst þegar í stað og henni er ekki lokið. Fimm ungir menn sem lög­reglan telur að hafi verið í vit­orði með, og aðstoðað Omar Hussein með ýmsum hætti voru hand­teknir skömmu eftir að voða­verkin voru framin, fjórir þeirra sitja enn inni en þeim fimmta hefur verið sleppt. Fátt hefur enn sem komið er verið látið uppi um hvern þátt fjór­menn­ing­arnir eru taldir hafa átt í til­ræð­unum. Lög­reglan telur aug­ljóst að Omar Hussein hafi skipu­lagt og und­ir­búið til­ræðin vand­lega. Hann skipti um föt eftir til­ræðið við Krudttønden en þar bar hann áber­andi húfu, rauða á lit­inn.

Fólk, sem síðar kom í ljós að hafði séð hann skammt frá sam­komu- og bæna­hús­inu við Krystal­gade, sagði við yfir­heyrslur að það hefði ekki grunað að þetta væri til­ræð­is­mað­ur­inn, fatn­að­ur­inn var ekki sá sami og sést hafði á myndum úr eft­ir­lits­mynda­vélum og sjón­varps­stöðvar höfðu sýnt. Þá hefur komið fram að eftir til­ræðið á Krudttønden fór Omar Hussein á net­kaffi­húsið PowerPlay á Nør­rebr­ogade.

Þar lét hann „íslamska bræður sína” (eins og lög­regla orðar það) hafa pen­inga sem hann var með. Sagði þeim að hann þyrfti ekki á þeim að halda því að hann væri á leið í Paradís. Sagði jafn­framt að ef lög­reglan kæmi skyldu þeir leggj­ast á gólfið, hann myndi „sjá um lög­regl­una”. Sér­fræð­ingur í hryðju­verka­rann­sóknum telur að orð Omars Hussein um Paradís bendi til að honum hafi verið ljóst að líf hans væri brátt á enda. Árásin á sam­komu- og bæna­húsið í Krystal­gade tengd­ist yfir­lýstu hatri hans á gyð­ingum. Jafn­framt hafði hann lýst yfir að hann vildi fara til Sýrlands og berj­ast með liðs­mönnum íslamska rík­is­ins. Ekki er vitað til að hann hafði starfað með erlendum sam­tökum

Árið 2013 fékk Omar Hussein fang­elsi­dóm fyrir að stinga mann með hnífi. Fang­els­is­mála­ráð, sem fylgist með föngum í dönskum fang­elsum hafði greint lög­regl­unni frá öfga­fullum við­horfum hans til gyð­inga. Auk áður­nefnds dóms hafði hann nokkrum sinnum kom­ist í kast við lögin og hlotið dóma.

Hryðjuverk og ofstæki fá ekki að stjórna samfélaginu

Á frétta­manna­fundi sem Helle Thorning-Schmidt for­sæt­is­ráð­herra hélt á sunn­dags­morgn­inum 15. febr­úar lagði hún áherslu á að þeir hörmu­legu atburðir sem átt hefðu sér stað og hefðu kostað tvo menn lífið, auk ógæfu­manns­ins unga, myndu ekki breyta dönsku sam­fé­lagi. „Við látum ekki hryðju­verk og ofstæki stjórna okkar góða sam­fé­lagi. Við látum ekki kúga okkur með þeim hætti” sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann.

Ódæð­is­verkin vöktu heims­at­hygli. Dönsku þjóð­inni og aðstand­endum þeirra sem lét­ust bár­ust sam­úð­ar­kveðjur hvaðanæva úr heim­inum. Aðeins rúmur mán­uður var lið­inn frá hryðju­verk­unum í París (þar lét­ust sautján auk þriggja til­ræð­is­manna) sem Al-Qaeda sam­tökin lýstu sig síðar ábyrg fyrir. Að mati lög­regl­unnar benti ekk­ert til að nein tengsl væru milli þeirra voða­verka og til­ræð­anna í Kaup­manna­höfn.

Ýmislegt hefur breyst

Þrátt fyrir yfir­lýs­ingar for­sæt­is­ráð­herr­ans fyrr­ver­andi hefur ýmis­legt breyst. Alls kyns eft­ir­lit hefur stór­auk­ist, í versl­unum, bönkum og á járn­braut­ar­stöðvum, svo fátt eitt sé nefnt. Þótt almennum borg­urum þyki það (sam­kvæmt könn­unum) ágætt, og finni til öryggis við að vita hvar­vetna af stór­auk­inni örygg­is­gæslu, telja það flestir jafn­framt miður að slíkt skuli vera nauð­syn­legt. Eft­ir­lits­mynda­vélum, sem þó voru margar fyrir, hefur fjölgað og í mið­borg Kaup­manna­hafnar fer varla nokkur maður hænu­fet öðru­vísi en að hann sjá­ist að minnsta kosti á einni slíkri mynda­vél, oft­ast þó mörgum. Almenn­ingur er líka, að sögn lög­regl­unnar, mun meira á verði gagn­vart öllu því sem grun­sam­legt má telj­ast, t.d. pokum og pinklum sem skildir hafa verið eftir „hist og her” eins og einn yfir­maður lög­regl­unnar komst að orði.

Lögreglan alltof fáliðuð

Mikið hefur mætt á dönsku lög­regl­unni á þeim tólf mán­uðum sem liðnir eru frá til­ræð­unum. Aukið eft­ir­lit af öllu tagi kallar á stór­auk­inn mann­skap og strax varð ljóst að lög­reglan í Kaup­manna­höfn, sem hefur mátt sæta stór­auknum nið­ur­skurði á síð­ustu árum, réð ekki við þau verk­efni sem henni voru ætluð. Lög­reglu­lið frá öðrum lands­hlutum var fengið til aðstoðar, með ærnum til­kostn­aði. Þótt lög­reglu­þjónar hafi sinnt kall­inu og „látið sig hafa það” eins og for­maður félags þeirra orð­aði það í við­tali í dag­blað­inu Berl­ingske í gær gengur slíkt ekki til lengdar. „Menn þola ein­fald­lega ekki álagið enda hefur veik­inda­dögum fjölgað," sagði hann. Sól­ar­hrings örygg­is­gæsla er við sam­komu- og bæna­hús gyð­inga í Kaup­manna­höfn, við dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­ili gyð­inga, Gyð­inga­safnið á Hall­ar­hólm­anum í Kaup­manna­höfn og víða ann­ars staðar. Ofan á þetta hefur svo bæst landamæra­gæslan sem krefst mik­ils mann­afla.

Mörgum spurningum ósvarað

Dönsku þjóð­inni var mjög brugðið eftir atburð­ina í febr­úar 2015. Spurt er: hvað er það sem verður til þess að ungt fólk grípur til slíkra örþrifa­ráða? Hefur danskt sam­fé­lag brugð­ist ungu fólki af erlendu bergi brotið sem svo leið­ist út á ógæfu­brautir? Er það skóla­kerfið sem stendur í vegi fyrir því að ungt fólk geti fótað sig? Eru það for­dómar inn­fæddra Dana sem koma í veg fyrir að fjöl­mörg ung­menni af erlendum upp­runa ná ekki að sam­lag­ast sam­fé­lag­inu, fá ekki vinnu, detta út úr skóla og sjá enga fram­tíð. Spurn­ing­arnar eru margar og við þeim engin ein­hlít svör.

Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra sagði fyrir nokkrum dögum á frétta­manna­fundi að ljóst væri að stjórn­völdum hefði að mestu leyti mis­tek­ist að sjá til þess að fólk sem hingað flytti frá öðrum löndum, og með annan bak­grunn, aðlag­að­ist sam­fé­lag­inu. „Þessu verður að breyta,” sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann. Margir stjórn­mála­menn hafa tekið undir orð hans. Engin ein­föld lausn er til og atburðir und­an­far­inna mán­aða þar sem flótta­fólk flykk­ist til Evrópu eykur enn á vand­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár