Tekst Biden að endurnýja kjarnorkusamkomulagið við Íran?

Banda­ríkja­stjórn vinnur nú að því að ganga aftur inn í kjarn­orku­sam­komu­lagið við Íran um leið Joe Biden reynir að gera utan­rík­is­stefn­una fag­legri. Spurn­ingin er hvort Banda­ríkin séu föst í gömlu fari sem muni verða Biden fjötur um fót.

Kona á gangi fyrir framan veggmynd í Teheran þar sem valdatafli Bandaríkjanna er mótmælt.
Kona á gangi fyrir framan vegg­mynd í Teheran þar sem valda­tafli Banda­ríkj­anna er mót­mælt. Mynd: EPA

Eftir valda­skiptin í Banda­ríkj­unum bíða nýs for­seta mörg krefj­andi verk­efni. Líklega er end­ur­nýjun aðildar Banda­ríkj­anna að Kjarn­orku­sam­komu­lag­inu við Íran, sem Donald Trump dró Banda­ríkin út úr árið 2018, með þeim flókn­ari. Formlega er sam­komu­lagið enn í gildi og hafa helstu þjóð­ar­leið­togar heims hvatt til þess að svo verði áfram. Yfirvöld í Íran segja bolt­ann vera hjá Banda­ríkja­mönnum, hafa kallað eftir afnámi við­skipta­þving­ana sem Trump-stjórnin end­ur­vakti, og sagst reiðu­búin til að leggja sitt af mörkum. Ný banda­rísk stjórn­völd hafa sagt að þá verði Íran umsvifa­laust að fylgja ákvæðum sam­komu­lags­ins í einu og öllu.

Kalt stríð um forystu í Mið-Austurlöndum – Arabar eða Persar?

Þrátt fyrir að Íranir hafi ekki farið með beinum ófriði gegn neinu nágranna­ríkja sinna í Mið-Aust­ur­löndum hefur hegðun þeirra verið ýmsum þyrnir í augum. Mik­il­vægur þáttur er langvar­andi og und­ir­liggj­andi valda­bar­átta á svæð­inu milli tveggja póla, Arabaríkja og hins pers­neska Írans. Það er öfl­ugt ríki að upp­lagi og hefur alla burði til að vera leið­andi ríki en hefur átt við ramman reip að draga vegna við­skipta­þving­ana und­an­farna ára­tugi. Að sama skapi hafa Íranir talið sig geta sam­einað múslima á svæð­inu.

[adspot]

Þetta hugn­ast fáum ríkjum Mið-Aust­ur­landa, síst af öllum Ísra­els­mönnum. Banda­ríkin eru tryggir banda­menn Ísraels og Banda­ríkja­menn fyr­ir­gefa jafn­framt seint að hafa verið hent öfugum út úr Íran í bylt­ing­unni árið 1979. Stuðn­ingur Írans við ýmsa hópa eins og Hamas og Hezbollah, sem skil­greindir eru sem hryðju­verka­sam­tök af Banda­ríkj­unum og fleiri vest­ur­veldum, auð­veldar ekki málin.

Trump-stjórnin sá sér leik á borði til að skerpa á þess­ari valda­bar­áttu og hefur stært sig af því að hafa tekið skref í átt til friðar í Mið-Aust­ur­löndum. Það hafi hún gert með því að sam­eina Arabaríkin gegn þeirri ógn og óstöð­ug­leika sem Íran hafi skapað, með til­burðum í átt að yfir­ráðum á svæð­inu og þróun kjarna­vopna.

Á hinn bóg­inn hefur verið bent á að þetta frið­ar­sam­komu­lag, sem Banda­ríkja­stjórn kaus að nefna Abraham-sam­komu­lagið, sé síst til þess fallið að koma á friði. Til að byrja með var eng­inn ófriður á milli Sam­ein­uðu Fursta­dæmanna, Barein og Ísrael. Enfremur er stór­vara­samt að safna Arabalöndum og Ísrael saman í lið, á þeim for­sendum að óvinir óvina þinna séu vinir þínir. Að ein­angra Íran og Palest­ínu-Araba gagn­vart þessu meinta frið­ar­banda­lagi, m.a. með vopn­væð­ingu Arabaríkja, skapar því meiri spennu og ójafn­vægi. Það kemur í veg fyrir að ríkin sjálf nái að þróa eðli­leg sam­skipti, án íhlut­unar, eins og Íranir hafa sjálfir kallað eftir.

Kjarnorkusamkomulagið frá 2015

Barack Obama hafði for­göngu um kjarn­orku­sam­komu­lagið sem sam­þykkt var árið 2015. Samkvæmt því skuld­bundu Íranir sig til að skera niður búnað til auðg­unar úrans, m.a. þannig að þeir gætu ekki fram­leitt hrá­efni sem nota má í kjarn­orku­vopn. Jafn­framt var áskilið að öll starf­semi í Íran sem byggði á frið­samri notkun kjarn­orku yrði að vera undir eft­ir­liti Alþjóða kjarn­orku­mála­stofn­un­ar­inn­ar (IAEA). Í stað­inn yrði við­skipta­þving­unum aflétt í áföng­um.

Almennt má segja að sam­komu­lagið hafi verið til hags­bóta fyrir alla aðila. Hvað sem fólki finnst um þá ógn sem stafar af Íran í Mið-Aust­ur­löndum eru flestir lík­lega á því að betra sé að hafa virkt sam­komu­lag í gildi þótt gallað kunni að vera. Tals­verðrar tor­tryggni gætti þó meðal helstu and­stæð­inga Írana og því var haldið fram að með sam­komu­lag­inu væri verið að gera þeim kleift að þróa kjarn­orku­vopn. Íranir full­yrtu á móti að auðgun þeirra á úrani væri ein­göngu til orku­fram­leiðslu.

Eftir að Banda­ríkja­menn sögðu sig frá sam­komu­lag­inu árið 2018 hafa Íranir brotið gegn mörgum ákvæðum þess. Íran er samt sem áður ennþá í sam­starfi við IAEA og veitir eft­ir­lits­mönnum aðgang sam­kvæmt einni aðhalds­söm­ustu eft­ir­lits­á­ætlun sem nokk­urt ríki hefur sætt.

Alþjóða­dóm­stóll­inn í Haag úrskurð­aði nýlega að hann gæti tekið fyrir mál sem Íran höfð­aði gegn Banda­ríkj­unum, í því skyni að binda enda á refsi­að­gerðir sem Trump-stjórnin setti aftur á árið 2018. Dómurinn hafði þá dæmt Íran í hag og Washington svarað með því að falla frá sam­komu­lag­inu.

Íranir vilja endurvekja samkomulagið

Nú þegar ljóst er að ný stjórn­völd í Washington eru opin fyrir því að ganga til samn­inga á ný hafa Íranir sett þrýst­ing á Banda­ríkja­stjórn til að bæta samn­ings­stöðu sína. Þeir hafa m.a. hótað að hindra kjarn­orku­eft­ir­lit í næsta mán­uði og auka enn frekar fram­leiðslu elds­neytis sem auðga mætti til smíði kjarn­orku­vopna. Áður höfðu þeir lagt hald á olíu­skip Suður-Kóreu­manna, banda­rísks banda­manns, og enn einn banda­rískur rík­is­borg­ari hefur verið hand­tek­inn sak­aður um njósnir.

Íranir hafa þó sýnt samn­ings­vilja og Mohammad Javad Zarif utan­rík­is­ráð­herra segir þá alltaf hafa tekið það skýrt fram að þeir séu opnir fyrir við­ræðum á heið­ar­legum grunni. Hann segir að það hafi verið Banda­ríkja­menn sem riftu sam­komu­lag­inu ein­hliða án nokk­urrar ástæðu og gagn­rýnir jafn­framt vest­ræna stjórn­mála­menn og sér­fræð­inga, sem verður tíð­rætt um að halda þurfi Íran í skefjum. Hann segir þessa aðila eiga að hætta að end­ur­óma gamla þreytta frasa og hafa í huga að Íran hefur lög­mætar áhyggjur af öryggi sínu og hafi rétt­indi og hags­muni – rétt eins og hvert annað full­valda ríki.

Andstaða á Bandaríkjaþingi

Demókratar hafa nú meiri­hluta í báðum deildum Banda­ríkja­þings svo form­lega ætti að vera hægt að koma mál­inu þar í gegn. Joe Biden hefur jafn­framt kallað eftir sam­stöðu þeirra Evr­ópu­ríkja sem að málum koma, ólíkt fyr­ir­renn­ara hans sem lék ein­leik í mál­inu.

Hin nýja stjórn í Washington hefur strax gert til­slak­anir til að sýna fram á sátta­vilja og losa um spennu í sam­skiptum ríkj­anna. M.a. var flug­móð­ur­skip­inu USS Nimitz siglt út úr Persaflóa þar sem það hafði verið um skeið. Málið er þó ekki ein­falt því margir þing­menn á Banda­ríkja­þingi hafa litið fyrra sam­komu­lag horn­auga og tals­verður stuðn­ingur er við harð­línu­stefnu gagn­vart Íran.

Jim Inhofe sem til­heyrir íhalds­samasta armi Repúblikana­flokks­ins segir þingið muni gera Biden erfitt fyrir. Hann segir fyrri samn­ing hálf­gerða gjöf til Írans­stjórnar – stjórnar sem styður hryðju­verka­sam­tök um allan heim, veiti Al-Qaeda skjól og hverrar stuðn­ings­menn hrópi á útrým­ingu og dauða Ísraels og Banda­ríkj­anna. Sam­komu­lagið aflétti meiri­háttar refsi­að­gerðum gegn Íran en tak­mark­aði aðeins kjarn­orku­starf­semi að hluta – og þær tak­mark­anir byrja að renna út árið 2025.

Hann segir að af þessum ástæðum hafi hann og margir sam­starfs­menn hans á þingi ein­dregið stutt Donald Trump, þegar hann dró Banda­ríkin út úr sam­komu­lag­inu árið 2018 eftir að við­ræður um lag­fær­ingar fóru út um þúfur.

Biden innleiðir fagmennsku – en dugar það til?

Joe Biden hefur tekið til hend­inni við að gera banda­ríska utan­rík­is­þjón­ustu fag­legri, leitað lið­sinnis stofn­ana og fræði­manna og skipað reynda sér­fræð­inga í mik­il­vægar stöður. Nýskip­aður utan­rík­is­ráð­herra, Antony Blinken, hefur mikla reynslu af diplómat­ískum sam­skiptum, starf­aði áður sem aðstoð­ar­ráð­herra undir stjórn Baracks Obama og gjör­þekkir m.a. samn­inga­ferlið við Íran.

Svo vitnað sé í alþjóða­fræð­ing­inn Stephen M. Walt segir hann hið vaska teymi fag­manna, sem Biden hefur nú skipað, vera hóp frjáls­lyndra alþjóða­sinna sem flestir séu hallir undir hinn banda­ríska „exceptionalisma“. Ein­hverjir þeirra kunni að vera brenndir af slæmri reynslu und­an­far­inna ára­tuga en þó virð­ist margir enn við sama hey­garðs­hornið. Þeir séu hlynntir fjöl­þjóð­legri þátt­töku, sér­stak­lega með hefð­bundnum banda­mönnum, en þeir telji einnig að það sé hlut­verk Banda­ríkj­anna að vera í for­ystu og banda­manna að fylgja þeim eftir.

Walt leggur til að gott væri að byrja á því að við­ur­kenna að ein­skauts-tíma­bil­inu (e. unipolar) með yfir­burðum Banda­ríkj­anna sé lokið og heim­ur­inn sé í því sem kalla mætti misvægt valda­á­stand. Þar séu Banda­ríkin og Kína tvö leið­andi veldi en önnur ríki einnig þátt­tak­endur með eigin hags­muni að veði. Í þessum marg­slungna skekkta heimi ættu allir að hafa ein­hverja mögu­leika en ekk­ert land geti fengið allt sem það vill.

[adspot]

Hann segir tíma til kom­inn að hverfa frá þeirri „allt eða ekk­ert“-stefnu sem hefur hamlað banda­rískum erind­rekstri í langan tíma. Allt of oft hafi nálgun Banda­ríkj­anna gagn­vart and­stæð­ingum (og stundum banda­mönnum) verið að setja fram óraun­hæfar kröfur og grípa síðan til refsi­að­gerða sé ekki farið að þeim. Þetta hafi verið raunin í mis­heppn­aðri „hámarks­þrýst­ings“-her­ferð gegn Íran.

Líklegt að Bandaríkin gangi aftur inn í samkomulagið

Hvernig sem tekst til með að upp­færa utan­rík­is­stefnu Banda­ríkj­anna og hverjar sem yfir­lýs­ing­arnar eru, er lík­legt að Banda­ríkin muni ganga aftur inn í sam­komu­lagið í ein­hverri mynd – upp­fært eða nýtt frá grunni. Það mun taka ein­hvern tíma fyrir ríkin að setj­ast að samn­inga­borð­inu, tíma sem þau munu vænt­an­lega nýta til að skapa sér betri samn­ings­stöðu.

Um leið og við sjáum harð­orðar yfir­lýs­ingar á báða bóga er jafn­framt athygl­is­vert að sjá inn á milli skila­boð um breytta stefnu. Það á t.d. við um að Banda­ríkin eru hætt stuðn­ingi við hern­að­ar­að­gerðir Sádi-Arabíu í Jemen, en þær hafa löngum haft á sér yfir­bragð proxí-stríðs milli Sáda og Íran. Þó almennum stuðn­ingi við Sáda verði haldið áfram felur þessi breyt­ing engu að síður í sér jákvæð skila­boð til Teheran.

Á þess­ari stundu er ekki ljóst hver næstu skref verða. Íranir hafa kvartað sáran undan þeim við­bótar þving­unum á olíu­við­skipti sem Trump-stjórnin beitti eftir að hún féll frá sam­komu­lag­inu 2018. Til að byrja með gæti ein leiðin til sátta verið að Banda­ríkin afléttu ein­hverjum þess­ara þving­ana, gegn því að Íran snúi til baka frá auk­inni fram­leiðslu á meira auðg­uðu úrani.

Hvað sem segja má um afskipti Banda­ríkj­anna af mál­efnum ann­arra ríkja er það sér­stakt fagn­að­ar­efni fyrir heims­byggð­ina að Banda­ríkin snúi aftur að samn­inga­borð­inu. Það er mik­il­vægt að þetta öfl­ug­asta ríki heims styðji á ný samn­ings­bundnar lausnir í milli­ríkja­deilum og fjöl­þjóð­lega nálgun á stærstu áskor­anir sam­tím­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár