Íran og kjarnorkumálin

Sam­komu­lag stór­veld­anna við Íran um kjarn­orku­á­ætlun þeirra er nú í sjón­máli eftir ára­tuga deilur. Hver er staða máls­ins, hverjar eru lík­urnar á að sam­komu­lagið kom­ist í höfn og hver er bak­grunnur þess­ara deilna? - Myndin sem vest­ur­landa­búar fá gjarnan af Íran er að þeir séu að víg­bú­ast með kjarn­orku­vopnum, m.a. til þess að geta að þurrkað Ísrael út af kort­inu, en er það alveg svo?

Nú rétt fyrir páska var mik­ils­verðum áfanga náð þegar und­ir­rituð var yfir­lýs­ing um ramma nefnds sam­komu­lags. Áætlanir Írana um nýt­ingu kjarn­orku hafa lengi verið þyrnir í augum heims­byggð­ar­innar. Hafa Banda­ríkja­menn og Sam­ein­uðu þjóð­irnar m.a. beitt Íran við­skipta­þving­unum svo þeir falli frá áformum sínum.

Rétt er að hafa í huga að jafn­framt því sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa sam­þykkt stranga sátt­mála um hvernig skuli staðið að þróun kjarn­orku í heim­inum, er einnig við­ur­kenndur óum­deil­an­legur réttur hvers ríkis til að þróa og nýta kjarn­orku í frið­sam­legum til­gangi. En um hvað snýst sam­komu­lagið, hvers vegna er þetta svona mikið mál, og af hverju eiga ríki heims, sér í lagi Banda­ríkja­menn og Ísrael, erfitt með að horfa upp á Írana þróa kjarn­orku?

[caption id="attachment_25108" align="alignnone" width="640"] Gríð­ar­leg fagn­að­ar­læti brut­ust út í Íran þegar sam­komu­lagið var í höfn. Við­skipta­þving­anir hafa enda leikið landið og íbúa þess grátt.[/caption]

Um kjarnorkuáætlun Írans


Hér verður ekki farið út í smá­at­riði en sam­kvæmt banda­rískum stjórn­völdum er nýund­ir­ritað ramma­sam­komu­lag í megin dráttum þannig: Íranir skuld­binda sig til að skera niður búnað til auðg­unar úrans um tvo þriðju; Þunga­vatns­verk­smiðjum breytt þannig að þær geti ekki fram­leitt auðgað úran sem nota má í kjarn­orku­vopn; Öll starf­semi sem snýr að kjarn­orku í Íran mun verða undir eft­ir­liti Alþjóða kjarn­orku­mála­stofn­un­ar­innar; og þess í stað verður við­skipta­þving­unum á Íran aflétt í áföngum.

Utan­rík­is­ráð­herra Íran dró að ein­hverju leyti úr ofan­greindu og sagði ekki alls­kostar rétt farið með. Hann sagði einnig ekki vera þörf á að leggja of nákvæm­lega út frá núver­andi ramma­sam­komu­lagi eins og málin stæðu – menn væru ánægðir með nið­ur­stöð­una nú og það skipti mestu máli. Samkvæmt þessu er því of snemmt að full­yrða nokkuð um hvor end­an­legt sam­komu­lag muni nást. Þó virð­ist gæta mik­illar bjart­sýni ef marka má yfir­lýs­ingar Forseta Banda­ríkj­anna, Barack Obama, sem hafði for­göngu um sam­komu­lagið, sem og almenn við­brögð í Íran. Engan skyldi undra að stjórn­völd í Ísrael finna sam­komu­lag­inu allt til for­áttu og segja það færa Íran nær því að koma sér upp kjarna­vopnum.

Harð­línu­öfl í Íran hafa auk þess gagn­rýnt sam­komu­lagið og sagt það vera til marks um und­ir­lægju­hátt gagn­vart vest­rænum ríkjum. Bæði Obama og John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, leggja þó áherslu á að sam­komu­lagið byggi á gríð­ar­legri vinnu og trú­verð­ugu fram­lagi allra aðila, ekki ein­hverri ósk­hyggju. Kerry segir að það væri ábyrgð­ar­laust af þing­mönnum á Banda­ríkja­þingi að láta póli­tíska stund­ar­hags­muni skyggja á stað­reyndir og trufla lang­tíma hags­muni.

Á það ber að líta að Íranir eru engir nýgræð­ingar í þróun kjarn­orku, en hún hófst um miðjan sjö­unda ára­tug­inn, með full­tingi Banda­ríkja­manna—og voru þeir komnir vel á veg þegar bylt­ingin var gerð árið 1979.

Mik­il­vægur þáttur sem gott er að hafa í huga þegar fjallað er um kjarn­orku­mál er það sem kallað hefur verið „nuclear exeptionalism“ upp á ensku. Það má útleggja þannig að kjarn­orka og allt sem henni teng­ist njóti svo mik­illar sér­stöðu - sé svo óvenju­legt og mik­il­feng­legt - að um hana verði að gilda önnur lög­mál og for­sendur en hefð­bundn­ari hluti og tækni. Á ein­hvern hátt er því hægt að halda kjarn­orku utan þess sem venju­lega er rætt, fyr­ir­bærið verður dul­ar­fullt, óljóst og óút­skýr­an­legt—sem gerir erfitt fyrir með að henda reiður á hvað er rétt og rangt eða við­eig­andi. Þetta á bæði við um orð­ræðu innan við­kom­andi ríkja sem og á alþjóða­vett­vangi.

Auðvelt er því fyrir þá sem nú ráða yfir kjarna­vopnum að nota slíkar hug­myndir eða skýr­ingar - og sér­stöðu kjarn­orkunnar - sem áróð­urstæki, m.a. til að koma í veg fyrir að „óæski­leg“ ríki kom­ist yfir tækn­ina, eins og sýndi sig ber­lega í aðdrag­anda inn­rásar Banda­ríkja­manna í Írak. Þá tókst Bush stjórn­inni að telja umheim­inum trú um að mikil hætta staf­aði af Írak, m.a. af því að þeir hefðu jú keypt ein­hver reið­innar bísn af úran frá Afríku! - Athugið orða­lagið, Afríka er heilt meg­in­land, en kannski bara nógu myrk og óljós til að þjóna til­gangi sínum sem ímynd illra afla í heim­inum— meira þurfti í raun ekki til, til­gangnum var náð.

[caption id="attachment_25107" align="alignnone" width="640"] Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, hafði for­göngu um sam­komu­lagið við Írani. Hann á hins vegar enn eftir að koma því í gegnum banda­ríska þingið, þar sem Repúblík­anar eru með meiri­hluta í báðum deildum. Það gæti orðið ein­manna­leg veg­ferð fyrir for­set­ann.[/caption]

Mið-austurlönd - Ísrael


Hluti af deil­unni við Íran snýst um þá ógn sem sem til­tekin ríki, sér í lagi Ísrael og Sádi-Arabía - og þar með Banda­ríkja­menn - hafa af mögu­legum yfir­burðum Íran í Mið-aust­ur­löndum. Það þarf ekki að fjöl­yrða um það flókna ástand sem þar ríkir, en myndin sem við fáum hér á vest­ur­löndum er oft tals­vert ein­víð og hlut­dræg. Ef við förum þá leið að ganga út frá trú og fylgj­endum til­tek­inna trú­ar­bragða sem ein­hvers­konar reglu um tengsl óvina og vina, lendum við fljót­lega í ógöngum.

Hvernig eigum við að fá botn í málin þegar Íranir, sem eru shía-múslimar, styðja Hamas á Gaza sem eru súnni-múslimar? Síðan styðja þeir einnig bar­áttu Íraskra Shia-múslima með þar­lendum súnni-flokki gegn ISIS, með full­tingi Banda­ríkja­manna. – Hverjir eru þá vinir hvers? – það er aug­ljóst að svona við­mið eru nán­ast gagns­laus vilji maður skilja ástandið.

Það sem ræður gjarnan, þegar betur er skoðað, eru við­skipta­hags­munir sem byggja á ýmsum þáttum eins og góðum sam­göngum, snurðu­lausri orku-öflun og við­skiptum milli ríkja. Rann­sóknir hafa m.a. leitt í ljós að Íranir hafa fremur látið þessa efna­hags­legu þætti ráða í sam­skiptum við nágranna­ríki, en hvort þar fari trú­bræður þeirra við völd.

Á sama hátt gæti verið vara­samt að hlusta á þá sem hæst láta um hætt­una af samn­ingum við Íran því það eru gjarnan öfl sem hagn­ast á spennu­á­standi. Þeir sem vilja halda völdum, t.a.m. Ísraelsk stjórn­völd, er tals­verður hagur í að til sé óvinur eins og Íran og vilja því magna upp hætt­una af kjarn­orku­á­ætl­unum þeirra. Þetta á sér­stak­lega við um Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísaels, sem hefur til fjölda ára varað við því að Íranir séu um það bil að verða til­búnir með kjarn­orku­vopn.

[caption id="attachment_25106" align="alignnone" width="640"] Hassan Rowhani, for­seti Íran, segir að sam­komu­lagið um kjarn­orku­vinnslu Írana sé nýr kafli í alþjóða­sam­skiptum lands­ins. Nú sé runnið upp tíma­bil virð­ingar og sam­vinnu við umheim­inn.[/caption]

Íran – yfirlýsingar, utanríkisstefna og samskipti við Bandaríkin


Þegar grannt er skoðað hafa Banda­ríkja­menn ekki lagt fram nein hald­bær rök um hvers vegna Íranir megi ekki halda áfram að þróa kjarn­orku önnur en þau að það gæti haft hræði­legar afleið­ingar. Þó hefur verið nefnt að þar sem landið búi yfir svo miklum auð­lindum af jarð­efna­elds­neyti þurfi það ekki á kjarn­orkunni að halda. Á móti hafa Íranir svarað að ríki eins og Rússland og Bretland búi yfir kjarn­orku en séu jafn­framt auðug af jarð­efna­elds­neyti.

En eru Íranir ekki her­skáir múslimar sem stefna að yfir­ráðum í Mið-aust­ur­löndum og er til­búnir til að beita til þess þeim með­ölum sem til þarf? - Skemmst er að minn­ast háværra yfir­lýs­inga fyrr­ver­andi for­seta Íran, Mahmoud Ahma­di­nejad, um Ísrael, en síend­ur­teknar bein­línis rang­túlk­anir á orðum hans, gáfu til kynna að Íranir stefndu að því að þurrka Ísrael út af landa­kort­inu — lík­ast til með kjarn­orku­sprengju, eða hvernig þurrkar maður ann­ars lönd út?

Auk þess að vera bein­línis ósönn voru harka­leg ummæli Ahma­di­nejads langt í frá að end­ur­spegla utan­rík­is­stefnu Írans á þessum tíma. Það er einnig alþekkt í alþjóða­sam­skiptum að harð­orðar yfir­lýs­ingar er gjarnan ætlað að höfða til ákveð­inna stuðn­ings­hópa inn­an­lands, og þurfa ekki að vera í sam­ræmi við raun­veru­lega stefnu við­kom­andi ríkis.

Það er þó full ástæða fyrir ríki heims að hafa var­ann á sér og kannski bjart­sýni að ætla að ekki geti stafað nein ógn frá Íran. Aya­tollah Ali Khamenei, sem fer fyrir hinum trú­ar­lega armi stjórn­valda, hefur haft í frammi mjög hörð ummæli um Ísrael, sem túlka má ógn­andi. Stjórn­ar­hættir Íran eru einnig langt í frá að vera til fyr­ir­myndar og þar eru fjöl­mörg dæmi um mann­rétt­inda­brot. Ýmislegt bendir þó til þess að Íranir vilji leggja sitt af mörkum til að koma á stöð­ug­leika á svæð­inu, þ.e. séu ekki endi­lega til­búnir til þess að hleypa öllu í bál og brand með ein­leik, eins og td. að koma sér upp kjarna­vopnum í óþökk ann­arra ríkja. Jafn­framt er rétt að hafa í huga að Íran hefur aldrei í nútíma­sögu sinni staðið fyrir árás á grann­ríki sín. Hefur Íran þar frekar verið fórn­ar­lamb, sam­an­ber árás Írak á Íran á níunda ára­tugnum.

Þó það hljómi ótrú­lega hafa Íranir sýnt umtals­verðan sátta­vilja í gegnum árin, sér í lagi áður en hinn her­skái Ahma­di­nejad konmst til valda árið 2005, á meðan Banda­rísk stjórn­völd virt­ust skella við skolla­eyrum. Til eru opin­ber gögn um að hátt­settur emb­ætt­is­maður Írans­stjórnar hafi boðið fram 500 milljón doll­ara fram­lag Írans í sjóð til end­ur­bygg­ingar í Afganistan, eftir inn­rás­ina 2002—sem Íranir hafa að mestu staðið við. Því boði svör­uðu Banda­ríkja­menn með því að skil­greina Íran, ásamt Írak og N-Kóreu, sem hluta öxul­veldis hins illa. Að sama skapi buðu Íranir Banda­ríkja­mönnum aðstoð við þjálfa hinn nýja Afganska her, og hafa einnig lagt sitt af mörkum í bar­átt­unni við öfgasinnuð öfl eins og ISIS.

Sam­komu­lag við Íran snýst um tals­vert meira en bara hvort þeir geti búið til sprengju. Þó það henti ein­hverjum að halda Íran niðri og útmála það sem óvin - öxul­veldi hins illa - er einnig mikið í húfi að þar geti þró­ast eðli­legt sam­fé­lag. Færa má fyrir því rök að með aðgerðum sem byggja á við­skipta­þving­unum sé ein­ungis verið að bera efni í bál­köst harð­línu­manna innan Íran og gefa öfga­fullum öflum aukið vægi.

Með til­slök­unum sem lúta að því að styrkja lýð­ræð­is­öfl í Íran væru meiri líkur á því að til valda kæmust hóf­sam­ari stjórn­völd sem tryggðu betra jafn­vægi á svæð­inu. Á það hefur verið bent að banda­ríkja­menn eigi í raun mun meiri sam­leið með hinum pers­nesku Írönum en banda­mönnum sínum í Saudi Arabíu, hvað sem líður harð­línu­öflum klerka­stjórn­ar­innar sem nú fer með völd. Hér er því haldið fram að banda­rísk stjórn­völd séu jafn­vel farin að átta sig á því að Íran hefur þrátt fyrir allt verið með stöðugri aðilum í Mið-aust­ur­löndum, sem jafn­vel er hægt að stóla á til að bregð­ast við öfga­öflum og við­halda stöð­ug­leika. Verstu öfga­öfl Ísla­mista í Mið-aust­ur­löndum eiga auk þess mun frekar rætur í Wahabisma Sádí-Arabíu, ef út í það er farið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár