Herra Óskar fer ekki í partí með hverjum sem er

„Það skiptir máli að ala á fjöl­breytni, því það er mik­il­vægt að heyra mis­mun­andi raddir og við­horf og kannski er árið í ár þar sem við komum því enn betur á fram­færi,“ sagði for­seti Aka­dem­í­unnar, eða “The Academy of Motion Picture Arts and Science” eins og það heitir á ensku, en sam­tökin standa fyrir Óskarnum á hverju ári. Cheryl Boone Isaacs varð árið 2013 fyrsti blökku­mað­ur­inn(!) og þriðja konan til að þjóna þessu emb­ætti hjá Aka­dem­í­unni, og hefur hún þurft að svara mik­illi gagn­rýni í ár vegna til­nefn­ing­anna.

En hvað veldur óánægj­unni? Það er aðal­lega tvennt.

Fyrst er hægt er að slá upp hashtagg­inu #OscarSoWhite á Twitter til að kom­ast að því hvers vegna fólk er ósátt:

Racism in Academy behind snubb­ing ‘Selma’ #OscarSoWhite all 20 nominations included no people of color #ReclaimMLK http://t.co/ZrZ5zlLBtw

— Terri Kay (@TKSFIAC) January 21, 2015

Academy Award Nominations spark Twitter backlash. #OscarSoWhite http://t.co/GYmRMUCL7C pic.twitter.com/0uoaDzMrL5 — Melissa Carr (@meliss604) January 15, 2015

Allir til­nefndir leik­arar eru hvítir. Það er að segja, öll þau 20 sem eru til­nefnd í ár sem leik­arar eða leikkonur í aðal- eða auka­hlut­verki, eru hvít. „Hvað er svo sem merki­legt við það?“ gætu ein­hverjir spurt. Kannski voru bara engir rómansk-amer­ískir eða svartir sem skör­uðu fram úr í ár? Það var nú blökku­kona sem fékk verð­laun sem besta leik­kona í auka­hlut­verki í fyrra og þá var myndin “12 years a slave” valin sem besta myndin (sem fjall­aði um frels­is­bar­áttu blökku­manna í Banda­ríkj­unum í gegnum sögu ein­stak­lings­ins Solomon Northup). Eða eins og Ellen sem kynnti athöfn­ina í fyrra sagði:


„Mögu­leiki númer eitt, “12 years a slave” vinnur sem besta myndin.


Mögu­leiki númer tvö, þið eruð öll ras­istar!“



Til þess að skilja valið er áhuga­vert að skoða hverjir veita verð­launin.


Vinn­ings­haf­arnir eru valdir af með­limum Aka­dem­í­unnar sem er kvik­mynda„fólk“ sem er til­nefnt sér­stak­lega af Aka­dem­í­unni og verður með­limir ævi­langt. Ekki hefur feng­ist stað­fest hverjir nákvæm­lega eru í hópnum en árið 2012 birt­ist grein í Los Angeles Times sem upp­lýsti að 94% af með­limum Aka­dem­í­unnar væru hvítir, 77% væru karl­kyns og aðeins um 14% væru undir 50 ára.


Önnur stór kvik­mynda­há­tíð vest­an­hafs er Golden Globe hátíðin og er hún alltaf haldin nokkuð fyrir Ósk­ars­há­tíð­ina. Hún er líka talin vera góður mæli­kvarði á hvað er verð­launa­hæft og eru sömu mynd­irnar, leik­stjór­arnir, og leik­arar oft til­nefnd á báðum hátíðum. Þeir sem standa á bak­við Golden Globe hátíð­ina eru erlendir Hollywood-frétta­rit­arar eða “The Hollywood Foreign Press Association” og ólíkt því sem ger­ist á Óskarnum er sjón­varps­efni líka verð­launað á Golden Globe verð­launa­há­tíð­inni.

Hvítasti Óskar frá 1998

Valið hjá Óskarnum hefur ekki verið svona hvítt síðan 1998 og end­ur­speglar það ákveðna til­hneig­ingu til að koma aðeins ákveðnum staðalí­myndum á fram­færi. Þetta val verður líka að skoða í stærra sam­hengi en í gegnum linsu kvik­mynda­iðn­að­ar­ins. Tölu­verður órói hefur verið í sam­skiptum kyn­þátta í Banda­ríkj­unum og ann­ars staðar und­an­farið, svo hvers vegna ætti þá ekki að vera ras­ismi í Hollywood? Í ár hefði einmitt verið kjörið tæki­færi til að veita myndum á borð við Selmu athygli, sem þrátt fyrir að segja frá sögu­legum atburði á sjö­unda ára­tugnum, á mjög vel við í þeim raun­veru­leika sem við búum við í dag. Selma er leik­stýrt af leik­stýrunni Ava DuVerney og fjallar um bar­áttu blökku­manna fyrir kosn­inga­rétti, og sögu­legri göngu jafn­rétt­is­sinna á sjö­unda ára­tugnum með Martin Luther King í far­ar­broddi. Myndin fær ein­ungis eina Ósk­ar­stil­nefn­ingu (besta myndin) á meðan hún vakti mikla athygli á Golden Globe. Algjör­lega er horft fram­hjá leik­urum og leikkonum sem þykja sýna afburða góða frammi­stöðu (und­ir­rituð hefur enn ekki séð mynd­ina en hlakkar til) og hefur snið­ganga Aka­dem­í­unnar gagn­vart leik­stýru mynd­ar­innar, DuVerney, verið harð­lega gagn­grýnt. Margir benda á að erfitt sé að skilja hvernig mynd geti verið í hópi bestu mynda árs­ins þegar leik­stjórar eru ekki til­nefnir sam­hliða, en skýr­ing­una gæti verið að finna í að 8 myndir eru til­nefndar í bestu mynd flokknum þegar aðrir flokkar hafa aðeins 5 til­nefn­ingar.


Einnig hefur verið talað um hvernig litað fólk er oft vit­laust nafn­greint á Instagram síðu Aka­dem­í­unnar sem er væg­ast sagt vand­ræða­legt. Það er ákveðið form af ras­isma að setja allt litað fólk í einn bás, og virð­ist þetta ger­ast oftar en fólk kærir sig um.


Hver er ástæðan fyrir því að DuVerney er ekki til­nefnd? Hún er jú kona. Og þá komum við að öðru máli sem varpar skugga á Ósk­arsverð­launa­há­tíð­ina. Og hér er sam­an­burð­ur­inn við Golden Globe í ár mjög áhuga­verður. Glöggir muna kannski eftir skýr­skotun Kate Blanchett í ójafn­vægi kvik­mynda­brans­ans þegar hún tók við Ósk­arsverð­launum fyrir leik í aðal­hlut­verki í fyrra:



Konur (og konur í Hollywood) fá ekki þá við­ur­kenn­ingu sem þær eiga skilið. Og nú fyrst er farið að ræða þetta á opin­berum vett­vangi. Var þetta eitt af aðal­skila­boðum Golden Globe hátíð­ar­innar í ár og er hún talin hafa verið sú allra fem­iníska til þessa.


Það er eflaust kynn­unum Amy Poehler og Tina Fey að hluta að þakka en augna­blikin voru mörg þar sem minnst var á bita­stæð hlut­verk kvenna í sjón­varpi eða fjöl­breyti­leika sjón­varps­þátta, og að það væri gott að sjá iðn­að­inn breyt­ast, það hafi verið kom­inn tími til. Einhvern veg­inn virð­ist sjón­varp vera að aðlag­ast betur kröfum áhorf­enda en kvik­mynda­iðn­að­ur­inn. Og ef maður vill líta á áhorf­endur sem neyt­endur er nóg af dæmum frá síð­asta ári þar sem konur hafa verið í aðal­hlut­verki (og það sem meiru skiptir, sem segja sögur frá sjón­ar­hóli kvenna líka) og hafa þær myndir grætt á tá og fingri. Því hefur verið slegið fram að kvik­myndir af þessu tagi (t.d. Hunger Games, Frozen, Gravity, The Heat, Philomena) jafn­vel þéni meira en hefð­bundnar myndir sagðar ein­ungis út frá sjón­ar­hóli karla. Eða eins og Maggie Gyl­len­haal sagði:



Það er nefni­lega bylt­ing­ar­kennt og merki um þróun að það séu svo margir sjón­varps­þættir sem tala um raun­veru­leika kvenna og um konur sem eitt­hvað annað og meira en bara mömmur, systur, kærustur, dætur eða konur aðal­per­són­anna. Að konur séu til í sínum eigin rétti og séu flóknar og fjöl­breyttar per­sónur er merki um fram­farir. Og loks­ins þorir fólk að tala um að þetta hefur vantað í Hollywood, í sjón­varpi, og í fjöl­miðlum fram til þessa. Og ekki bara konur. En það þýðir líka að það þurfi að skrifa þessi hlut­verk, fram­leiða þessa þætti og leik­stýra líka sögum sem eru sagðar frá sjón­ar­hóli kvenna. Geena Davis hefur und­an­farin ár barist fyrir því að breyta hug­ar­far­inu í Hollywood í gegnum sam­tökin sín “Geena Davis Institute on Gender in Media” með því að hvetja til fleiri kven­hlut­verka í kvik­myndum og að ekki eigi að ganga að því vísu að karl­menn hafi ekki áhuga á sögum kvenna (því sé nefni­lega ekki öfugt farið):



Það þarf að tala um þetta og breyta þessu hug­ar­fari. Sjón­varps­þættir hafa tekið af skarið, nú þarf kvik­mynda­iðn­að­ur­inn að fylgja eftir. En allt þarf líka að skoða út frá mark­aðs­legu sam­hengi. Eins og áður segir þéna myndir sem segja frá sögum kvenna (eða sögum kvenna og karla saman) jafn mikið ef ekki meira en hefð­bundnar Hollywood myndir með karl­menn í öllum aðal­hlut­verkum. Konur eru um helm­ingur bíó­gesta, af hverju ætti ekki að vera meira val fyrir alla? Það mætti færa rök fyrir því að ekki veitir af að gera fleiri myndir sem sagðar eru frá mis­mun­andi sjón­ar­hornum, til að hjálpa okkur að skilja betur hvert annað í stað­inn fyrir að vera hrædd við það óþekkta og það sem er öðru­vísi en við sjálf (það hafa konur gert að ein­hverju marki með því að setja sig í hug­ar­heim karl­manna lengi með góðum árangri og sama má segja um blökku­fólk).

„Jaðarhópum“ boðið á nokkurra ára fresti

Hvað ef verð­laun fyrir leik í aðal­hlut­verki væru kyn­laus? Hversu margar konur yrðu þá til­nefndar? Hvernig eiga konur að stefna að því að vinna sem leik­stjórar eða hand­rits­höf­undar ef þær eru frá upp­hafi skildar eftir úti í kuld­anum? Óskarinn virð­ist nota hópa eins og konur og blökku­fólk sem und­ir­hópa sem hægt er að taka með inn á milli og „tikka við“ eins og t.d. Kathryn Bigalow sem fékk Óskarinn fyrir bestu leik­stjórn – fyrst kvenna í 87 ára sögu Ósk­ars­ins, og gat því ómögu­lega verið til­nefnd aftur. Aðrar reglur virð­ast gilda fyrir karl­kyns leik­stjóra (Steven Spi­el­berg hefur verið til­nefndur sjö sinnum og unnið tvisvar) og eins er hægt að bera saman hvíta leik­ara í sam­an­burði við svarta/lit­aða leik­ara og leikkonur.


Herra Óskar er til í að bjóða „jað­ar­hóp­unum“ með í partí á nokk­urra ára fresti en vill helst bara leika við þá sem líkj­ast honum mest (hvítir karlar yfir sex­tugt). Við eigum á hættu að sjá bara við­horf ákveð­ins hóps og heyra raddir sem lýsa alltaf sama reynslu­heim­inum: reynslu­heimi hvítra karl­manna. Sem aftur elur á fáfræði og ótta við það óþekkta.


Sá reynslu­heimur getur verið mjög áhuga­verður, hann er bara ekki áhuga­verð­ari en reynslu­heimur rómansk-amer­ískra kvenna (Jane the Virgin), trans­fólks (Tran­sparent) eða bar­átta Martin Luther Kings fyrir jöfnum rétt­indum (Selma). Miðlar eins og kvik­myndir og sjón­varp eru full­komnir til þess að miðla öllum þessum ólíku sögum. Svo má spyrja sig af hverju kvik­mynda­iðn­að­ur­inn (og heim­ur­inn allur) hefur svona mik­inn áhuga á að vita hvaða kvik­myndir einslitur og þröng­sýnn hópur eins og Aka­dem­ían verð­launar á hverju ári? Verðlaun af þessu tagi eru mik­ill hluti af mark­aðs­setn­ingu kvik­mynda og skipta því veru­lega miklu máli. Þetta snýst ekki bara um við­ur­kenn­ing­una heldur líka um að að opna dyr fyrir sem flesta svo að mis­mun­andi sögur kom­ist að og að kvik­mynda­stúd­ióin séu með í þró­un­inni svo að sögu­menn nútím­ans séu sem fjöl­breyt­astir.


Tíminn er núna til að opna huga og hjörtu fyrir fjöl­breyti­leika plánet­unnar. Og kvik­myndir hafa þar mik­il­vægu hlut­verki að gegna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár