Ríkisstjórnin með 31 prósent fylgi - VG fer í 20 prósent

Ný könnun Maskínu sýnir að stjórn­ar­flokk­arnir hafa tapað miklu fylgi á fáum dögum.

Maskína birtir nú í fyrsta sinn fylgis­tölur flokk­anna, á fyrsta heila degi nýrrar rík­is­stjórnar, og mælist hún með 31 pró­sent fylgi.

Píratar eru stærsti flokk­ur­inn, rösk­lega 34 pró­sent myndu kjósa þá ef kosn­ingar færu fram nú. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fengi ríf­lega 21 pró­sent atkvæða, Vinstri­hreyf­ingin - grænt fram­boð 20 pró­sent, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fengi 9-10 pró­sent, Sam­fylk­ingin rösk­lega 7 pró­sent og Björt fram­tíð rösk­lega 5 pró­sent.

Aðrir flokkar fengju minna. Rúmlega 8 pró­sent svar­enda myndu ekki kjósa, skila auðu, neita að svara eða segj­ast ekki vita hvaða flokk þeir myndu kjósa, sem er óvenju lágt.

Rúmur helm­ingur kjós­enda vill að kosið verði til Alþingis í vor, ríf­lega fjórð­ungur í haust og rösk­lega 23% vilja kjósa vorið 2017.

„Hærra hlut­fall kvenna en karla vill kosn­ingar nú í vor, yngra fólk fremur en eldra og meiri­hluti Reyk­vík­inga, en 38-48% ann­arra lands­manna. Eftir því sem tekjur lækka þeim mun meira er krafa um kosn­ingar í vor. Á milli 62% og 81% kjós­enda stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna vilja kosn­ingar í vor en 3-4% kjós­enda stjórn­ar­flokk­anna, en þeir vilja helst kosn­ingar að ári. Eftir því sem áhugi á atburðum síð­ustu daga eykst þeim mun lík­legra er fólk til að vilja kosn­ingar strax í vor,“ segir í til­kynn­ingu Maskínu.

Svar­endur voru 2438, koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er pan­el­hópur fólks sem er dreg­inn með til­viljun úr Þjóðskrá og svarar á net­inu. Svar­endur eru af báðum kynjum, alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18-75 ára. Gögnin eru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu sam­kvæmt Þjóðskrá og end­ur­spegla því þjóð­ina prýði­lega. Könnunin fór fram dag­ana 7.-8.apríl 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár