Danski herinn orðinn hálfgerður þykjustuher

Fjár­veit­ingar til danska hers­ins hafa á síð­ustu árum minnkað svo mikið að hann er orð­inn hálf­gerður sýnd­ar­her sem væri alls ófær um haf­ast nokkuð að ef þess gerð­ist þörf. Þetta er álit margra danskra hern­að­ar­sér­fræð­inga.

Umræður um her­inn og hlut­verk hans tengj­ast því að 9. apríl voru liðin 75 ár síðan Þjóð­verjar her­námu Danmörku. Í hugum margra Dana er 9. apríl 1940 einn dap­ur­leg­asti dagur í sögu lands­ins og um allt land blakta fánar í hálfa stöng þennan dag á ári hverju. Danskir fjöl­miðlar hafa eytt miklu púðri í að minn­ast þess­ara tíma­móta, dag­blöðin hafa rifjað upp atburði dags­ins og aðdrag­anda þess að Þjóð­verjar réð­ust inn í landið, rætt við fólk sem man þennan tíma og svo fram­vegis. Það er reyndar ekki nýtt að um her­inn sé fjallað í fjöl­miðlum en á und­an­förnum árum hefur sú umfjöllun und­an­tekn­inga­lítið snú­ist um nið­ur­skurð og meiri nið­ur­skurð.

Aldrei aftur (dag eins og) 9. apríl


„Aldrig mere en 9. april“ er setn­ing sem víða sést og heyr­ist þessa dag­ana í dönskum fjöl­miðlum. Þessi stutta setn­ing varð eins­konar sam­ein­ing­ar­tákn dönsku þjóð­ar­innar eftir að síð­ari heims­styrj­öld­inni lauk. Lýsti í senn von og þeim ásetn­ingi að danski her­inn yrði ekki fram­vegis jafn van­bú­inn og raun bar vitni þegar Þjóð­verjar réð­ust inn í landið aðfara­nótt 9. apríl 1940.

Eins og kunn­ugt er var fátt um varnir hjá Dönum sem gáfust upp, nán­ast bar­áttu­laust, enda við ofurefli að etja. 16 danskir her­menn féllu og 23 særð­ust. Allar götur síðan hefur það verið nán­ast óþrjót­andi umræðu­efni dönsku þjóð­ar­innar hvort það hafi verið rétt ákvörðun að gef­ast strax upp fyrir Þjóð­verjum, hvort danska stjórnin hafi verið of sam­vinnu­fús við her­námsliðið. Margir töldu þá og telja enn að danska stjórnin og kóng­ur­inn, Kristján X, hafi verið Þjóð­verjum allt of leiði­töm og gert allt til að þókn­ast stríðs­herr­unum. Hernámið hafi verið nið­ur­læg­ing.

[quote font="0" align="right"]Margir hafa velt fyrir sér ástæðum þess að gyð­ingum í Danmörku tókst nær öllum að flýja yfir til Sví­þjóðar og bjarga þannig lífi sínu.[/quote]

Aðrir segja að stjórnin, með kóng­inn (kon­ung Íslands og Dan­merkur) hafi haldið vel á spil­unum og gert það eina rétta í erf­iðri aðstöðu. Kóng­ur­inn bjó áfram á Amal­íu­borg og reið dag­lega á hesti sínum um götur borg­ar­innar, vildi þannig sýna þegnum sínum að öllu væri óhætt og hann óbug­aður þrátt fyrir her­námið.

Margir hafa velt fyrir sér ástæðum þess að gyð­ingum í Danmörku tókst nær öllum að flýja yfir til Sví­þjóðar og bjarga þannig lífi sínu. Sumir sagn­fræð­ingar halda því fram að „sam­vinnu­vilji“ danskra stjórn­valda hafi þarna ráðið miklu og þýska her­stjórnin látið það „leka út“ hvað til stæði og þannig gef­ist ráð­rúm til að koma gyð­ingum úr landi. Ekki hefur tek­ist að færa óyggj­andi sönnur á hvort eitt­hvað sé hæft í þessu. Danska and­spyrnu­hreyf­ingin var bæði fámenn og mátt­lítil en lét þó meira að sér kveða undir lok stríðs­ins.

Allir voru sammála um að styrkja herinn


Eftir að stríð­inu lauk, og raunar fyrr, var almenn sam­staða meðal danskra þing­manna, og almenn­ings, um nauð­syn þess að efla her­inn, sagan frá 9. apríl 1940 mætti ekki end­ur­taka sig. Flestum var ljóst að Danmörk yrði aldrei stór­veldi á hern­að­ar­svið­inu, til þess væri landið allt of fámennt. Ein­hvers­konar hern­að­ar­sam­starf var lausnin í augum flestra.

[quote font="0" align="right"]Á kalda­stríðs­ár­unum átti sér stað mikil upp­bygg­ing innan danska hers­ins, það mætti skiln­ingi þjóð­ar­innar, 9. apríl 1940 var enn í fersku minni.[/quote]

Sumir töldu að náin sam­vinna Norð­ur­land­anna væri rétta leiðin, sá mögu­leiki var aldrei raun­hæfur vegna hlut­leys­is­stefnu Svía, komm­ún­istar vildu sam­vinnu við Rússa en flestir höll­uð­ust að nán­ari sam­vinnu við Banda­ríkin. Danir voru meðal stofn­enda Sam­ein­uðu þjóð­anna 1945 og þegar Atl­ants­hafs­banda­lagið, NATO, varð til árið 1949 voru Danir (og Íslend­ingar) í hópi þeirra ríkja sem tóku þátt í stofnun þess. Danir vörðu miklu fé til að efla her­inn og þátt­takan í NATO styrkti stöðu þeirra gagn­vart Rússum, sem margir van­treystu. Á kalda­stríðs­ár­unum átti sér stað mikil upp­bygg­ing innan danska hers­ins, það mætti skiln­ingi þjóð­ar­innar, 9. apríl 1940 var enn í fersku minni. Eftir að kalda stríð­inu lauk var dregið úr fjár­veit­ingum til hers­ins, breyttar aðstæður var ástæðan.

Herinn í löngum og ströngum megrunarkúr


Danskur hern­að­ar­sér­fræð­ingur lét þau orð falla í nýlegu blaða­við­tali að danski her­inn væri búinn að „vera í megrun síðan kalda stríð­inu lauk og slíkan megr­un­ar­kúr þolir eng­inn. Orðinn hálf­gerður þykjustu­her.“ Þótt orðin hljómi eins og þau séu sögð í hálf­kær­ingi er þó mikil alvara í þeim fólgin að margra mati, ekki síst innan hers­ins.

Einn af yfir­mönnum hers­ins lét svo um mælt að her­inn væri dálítið eins og sviss­neskur ostur, göt­óttur. Þegar hann var beð­inn að útskýra orð sín sagði hann að þótt ýmis­legt væri gott hjá hernum væri hann alltof fámennur, ekki síst í ljósi þess að danskt her­lið er enn til staðar í Afganistan og Írak. Grunn­menntun her­manna hafi verið skorin niður og tækja­bún­aður hers­ins bæði lít­ill og úreltur.

Fyrr­ver­andi yfir­maður í hernum sagði að mörg Afr­íku­ríki byggju yfir betri loft­vörnum með sínar gömlu rúss­nesku loft­varna­byssur. „Í Danmörku verðum við að láta nægja að hrópa á óvin­inn þegar hann nálg­ast í loft­inu, loft­varna­vopn eigum við engin.“ Á launa­skrá hers­ins eru átján þús­und manns en eig­in­legir her­menn eru rúm­lega sex þús­und.

NATO hefur líka áhyggjur


Í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske, og birt var 9. apríl, sagði Anders Fogh Rasmus­sen fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri NATO það mikið áhyggju­efni hvað Evr­ópu­ríkin í Atl­ants­hafs­banda­lag­inu hefðu tak­mark­aðan skiln­ing á nauð­syn þess að verja fé til her­mála. Banda­ríkin gætu ekki enda­laust dregið hest­inn og staðið að mestu leyti undir útgjöldum NATO, eins og nú er raunin.

[caption id="attachment_25630" align="alignnone" width="758"] Anders Fogh Rasmus­sen, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur og fram­kvæmda­stjóri NATO. Mynd: EPA[/caption]

Anders Fogh Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur og framkvæmdastjóri Nato. Mynd: EPA
Anders Fogh Rasmus­sen, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur og fram­kvæmda­stjóri Nato. Mynd: EPA

Samkvæmt sam­komu­lagi sem gert var á danska þing­inu heldur nið­ur­skurður til hers­ins áfram til árs­ins 2017. Af þessu hafa margir áhyggjur, ekki síst í ljósi ástands­ins í Úkraínu og hern­að­ar­brölts Rússa. Ýmsir úr hópi þing­manna, meðal ann­ars Lars Lökke Rasmus­sen for­maður Venstre, hafa sagt að ljóst sé að her­inn sé kom­inn í þá stöðu að ekki verði lengra gengið í nið­ur­skurði. Hvort eitt­hvað breyt­ist í þeim efnum eftir kosn­ingar í sumar eða haust er ómögu­legt að segja til um.

Unga fólkið hefur mikinn áhuga á sögunni


Nokkuð hefur verið um það rætt hér í Danmörku að nú sé heims­styrj­öldin síð­ari orðin það fjar­læg að unga kyn­slóðin hafi lík­lega tak­mark­aðan eða lít­inn áhuga fyrir henni. Kannanir sýna að þetta er alrangt. Unga fólkið er mjög áhuga­samt um þennan tíma, kenn­arar segja að nem­endur þyrsti í að vita sem mest um her­námið og stríðs­árin, tölur frá bóka­söfnum segja sömu sögu.

Mennta­skóla­nemi sem eitt blað­anna ræddi við hitti kannski naglann á höf­uðið þegar blaða­maður sagði að það væru rétt að verða sjö­tíu ár síðan stríð­inu lauk, það væri nú orðið dálítið langt síðan. „Langt?“ spurði strákur „afi er 78 ára, hann er í fullu fjöri og bara ekk­ert gam­all.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár