Persónuvernd bannar birtingu Tekjur.is á upplýsingum úr skattskrá

Stjórn Per­sónu­verndar hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að það megi ekki birta upp­lýs­ingar úr skatt­skrá lands­manna, þar sem bæði launa- og fjár­magnstekjur eru aðgengi­legar, raf­rænt á vefnum. Tekjur.is hefur verið lokað.

Stjórn Per­sónu­verndar komst í gær að þeirri nið­ur­stöðu að óheim­ilt sé að halda úti staf­ræna gagna­grunn­inum Tekjur.is þar sem upp­lýs­ingar úr skatt­skrá eru gerðar aðgengi­legar. Rekstr­ar­fé­lag gagna­grunns­ins hefur verið gert að eyða gagna­grunn­inum og öðrum upp­lýs­ingum úr skatt­skrá sem félagið hefur undir höndum. Fær það frest til þess til 5. des­em­ber næst­kom­andi. Þetta kemur fram í ákvörðun stjórnar sem birt var í morgun.

Tekjur.is hafa orðið taf­ar­laust við ákvörðun Per­sónu­verndar og hefur síð­unni nú þegar verið lokað.

Vefurinn Tekjur.is opn­aði 12. októ­ber síð­ast­lið­inn. Þar var hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um launa- og fjár­magnstekjur allra full­orð­inna Íslend­inga eins og þær birt­ust í skatt­skrá rík­is­skatt­stjóra 2017. Upp­lýs­ing­arnar sýndu því tekjur allra lands­manna á árinu 2016. Hægt var ein­fald­lega að fletta þeim ein­stak­lingi upp sem við­kom­andi hefur áhuga á að vita hvað var með í tekjur á árinu.

Skatt­skrá lands­manna er opin­ber og aðgengi­leg á prenti í tvær vikur á hverju ári. Sú birt­ing er á grund­velli 98. gr. laga um tekju­skatt nr. 90/2003. Þar segir meðal ann­ars að skatt­skrá skuli liggja frammi á „hent­ugum stað“ í tvær vikur á ári. Síðar í sömu máls­grein seg­ir: „Heimil er opin­ber birt­ing á þeim upp­lýs­ingum um álagða skatta, sem fram koma í skatt­skrá, svo og útgáfa þeirra upp­lýs­inga í heild eða að hluta.“

Samkvæmt nið­ur­stöðu stjórnar Per­sónu­verndar má hins vegar ekki setja þær opin­beru upp­lýs­ingar fram með raf­rænum og aðgengi­legum hætti.

Tæmandi upplýsingar um tekjur

Einu sinni á ári birtir emb­ætti rík­is­skatt­stjóra lista yfir þá 40 ein­stak­linga sem greiða hæsta skatta hér­lendis sam­kvæmt álagn­inga­skrá. Á sama tíma eru þær skrár gerðar tíma­bundið aðgengi­legar og nokkrir íslenskir fjöl­miðlar ná í þær, búa til lista yfir tekjur ein­stak­linga eftir atvinnu­greinum og selja for­vitnum almenn­ingi sem byggja á skránum.

Þær upp­lýs­ingar, sem emb­ætti rík­is­skatt­stjóra velur að birta með þessum hætti, gefa þó ekki raunsanna mynd af tekjum Íslend­inga.

Sumir sem greiða him­in­háa skatta hafa getað beðið þangað til eftir að álagn­ing­ar­skráin er birt og talið svo fram. Þannig hafa þeir sloppið við að lenda á útsendum lista rík­is­skatt­stjóra, og að nöfn þeirra birt­ist í flestum fjöl­miðlum lands­ins. Og í álagn­inga­skránum kemur bara fram hverjar heild­ar­greiðslur við­kom­andi vegna opin­berra gjalda voru. Þar er ekki hægt að sjá t.d. hversu mikið hver ein­stak­lingar þén­aði í launa­tekjur og hversu háar fjár­magnstekjur þeirra voru. Það skiptir umtals­verðu máli í ljósi þess að stað­greiðsla skatta af launa­tekjum er á bil­inu 36,94 til 46,24 pró­sent að útsvari með­töldu en fjár­magnstekju­skattur var 20 pró­sent þangað til um síð­ustu ára­mót þegar hann var hækk­aður upp í 22 pró­sent.

Ef ein­stak­lingur er með þorra tekna sinna í formi fjár­magnstekna þá borgar hann mun minna hlut­fall af tekjum sínum til rík­is­sjóðs en ef hann er með þær í formi launa­tekna.

Upp­lýs­ingar um það hvernig tekjur fólks skipt­ast, og tæm­andi upp­lýs­ingar um hverjir borga hvað í skatta, er hins vegar hægt að finna í áður­nefndri skatt­skrá. Þeirri sem myndar gagna­grunn Tekjur.is sem stjórn Per­sónu­verndar hefur nú úrskurðað að stand­ist ekki lög.

Ákvörðunin kom á óvart

Ingvar Smári Birg­is­son, for­maður Sam­bands ungra sjálf­stæð­is­manna, gerði þann 15. októ­ber síð­ast­lið­inn kröfu um að lög­bann yrði sett á Tekjur.is. Því var hafnað. Auk þess barst form­leg kvörtun borist Per­sónu­vernd frá almanna­tengl­inum Björg­vini Guð­munds­syni, einum eig­anda KOM almanna­tengsla, vegna máls­ins. Á grund­velli þeirrar kvört­unar, og ann­arra sam­bæri­legra, hóf Per­sónu­vernd skoðun á mál­inu sem lauk með fyrr­greindum hætti í gær.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Vil­hjálmi H. Vil­hjálms­syni, lög­manni Tekjur.is, segir að ákvörðun Per­sónu­verndar hafi komið veru­lega á óvart, enda séu ein­ungis birtar upp­lýs­ingar á síð­unni sem þegar séu opin­berar og almenn­ingur geti nálg­ast hjá Rík­is­skatt­stjóra. „Í ákvörð­un­inni er horft fram­hjá þeirri stað­reynd, sem og þeim laga­á­kvæðum sem til­greina að útgáfa upp­lýs­inga úr skatt­skrá sé heimil, í heild eða að hluta. Stjórn Per­sónu­verndar túlkar skatta­lög með þeim hætti að ein­göngu sé heim­ilt að gefa skatt­skrána út á pappír en ekki raf­rænt sem er óraun­hæft þar sem skatt­skráin er u.þ.b. 6.700 blað­síður.

Sú túlkun stjórnar Per­sónu­verndar að gagna­grunnar falli ekki undir fjöl­miðlun er áhyggju­efni og er var­huga­verð fyrir stöðu tján­ing­ar­frels­ins og frjálsrar fjöl­miðl­unar í land­inu. Í því sam­bandi er rétt að minna á að fram­kvæmda­valdið skipar meiri­hluta stjórnar Per­sónu­verndar án til­nefn­ingar.

Tekjur.is vill þakka almenn­ingi fyrir góðar við­tökur og gagn­lega umræðu um tekju­skipt­ingu og skatt­lagn­ingu í sam­fé­lag­inu. Tekjur.is telur ákvörðun stjórnar Per­sónu­verndar í and­stöðu við lög og mun í fram­hald­inu skoða rétt­ar­stöðu sína.“

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um helstu nið­ur­stöð­urnar sem hægt var að nálg­ast á Tekjur.is í frétta­skýr­ingu sem birt­ist 12. októ­ber síð­ast­lið­inn. Hana er hægt að lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár