Alls voru 137 Íslendingar með fjármagnstekjur yfir 100 milljónum króna á árinu 2016, 54 voru með yfir 200 milljónir króna í slíkar tekjur og 33 þénuðu yfir 300 milljónir króna á þann hátt. Alls voru fjármagnstekjur 22 einstaklinga yfir 400 milljónir króna á árinu 2016 og 16 voru með yfir hálfan milljarð króna í slíkar tekjur.
Sex Íslendingar þénuðu meira en milljarð króna í fjármagnstekjur á árinu 2016, þrír yfir tvo milljarða króna og tveir voru með yfir þrjá milljarða króna í fjármagnstekjur. Þetta er meðal þess sem kemur fram í gagnrunni sem unnin er upp úr skattskrám landsmanna og er aðgengilegur á vefnum Tekjur.is. Vefurinn fer í loftið í dag, föstudag, og hægt er að komast inn á hann á heimasíðu Kjarnans.
Þar birtast upplýsingar um alla Íslendinga sem eru 18 ára og eldri, og yngri en 100 ára, með sama hætti og þær birtast í skattskránni.
Þorri þeirra sem voru með hæstar fjármagnstekjur á árinu 2016 seldu hluti í fyrirtækjum sem þau áttu í á því ári.
Listinn sem ríkið birtir gefur ekki rétta mynd af tekjum
Einu sinni á ári birtir embætti ríkisskattstjóra lista yfir þá 40 einstaklinga sem greiða hæsta skatta hérlendis samkvæmt álagningaskrá. Á sama tíma eru þær skrár gerðar tímabundið aðgengilegar og nokkrir íslenskir fjölmiðlar ná í þær, búa til lista yfir tekjur einstaklinga eftir atvinnugreinum og selja forvitnum almenningi sem byggja á skránum.
Þær skattgreiðslur sem tilteknar eru í álagningarskrá gefa þó ekki alltaf raunsanna mynd af tekjum Íslendinga. Sumir sem greiða himinháa skatta hafa getað beðið þangað til eftir að álagningarskráin er birt og talið svo fram. Þannig hafa þeir sloppið við að lenda á útsendum lista ríkisskattstjóra, og að nöfn þeirra birtist í flestum fjölmiðlum landsins. Og í álagningaskránum kemur bara fram hverjar heildargreiðslur viðkomandi vegna opinberra gjalda voru. Þar er ekki hægt að sjá t.d. hversu mikið hver einstaklingar þénaði í launatekjur og hversu háar fjármagnstekjur þeirra voru. Það skiptir umtalsverðu máli í ljósi þess að staðgreiðsla skatta af launatekjum er á bilinu 36,94 til 46,24 prósent að útsvari meðtöldu en fjármagnstekjuskattur var 20 prósent þangað til um síðustu áramót þegar hann var hækkaður upp í 22 prósent.
Ef einstaklingur er með þorra tekna sinna í formi fjármagnstekna þá borgar hann mun minna hlutfall af tekjum sínum til ríkissjóðs en ef hann er með þær í formi launatekna.
Tekjur.is
Upplýsingar um það hvernig tekjur fólks skiptast, og tæmandi upplýsingar um hverjir borga hvað í skatta, er hins vegar hægt að finna í svokallaðri skattskrá. Í vor var skattskráin fyrir árið 2017 gerð opinber. Í henni er að finna niðurbrot á öllum skattgreiðslum einstaklinga – tekjuskatt, útsvar og fjármagnstekjuskatt – vegna ársins 2016. Því er um eldri upplýsingar að ræða en t.d. þær sem hægt var að lesa um í síðasta Tekjublaðið Frjálsrar verslunar, en ítarlegri þar sem þær sýna hvernig tekjur viðkomandi hafði.
Þessum upplýsingum hefur vefurinn Tekjur.is safnað saman og gert aðgengilegar á stafrænu formi. Vefurinn fer í loftið í dag og hægt er að komast inn á hann á heimasíðu Kjarnans.
Þar birtast upplýsingar um alla Íslendinga sem eru 18 ára og eldri, og yngri en 100 ára, með sama hætti og þær birtast í skattskránni.
Salan á Ögurvík hafði mikil áhrif
Á vefnum má sjá að tveir einstaklingar voru með yfir þrjá milljarða króna í fjármagnstekjur á árinu 2016. Þau eru Sigurður Þ K Þorsteinsson og María Bjarnadóttir. Fjármagnstekjur þeirra beggja á árinu 2016 voru tæplega 3,2 milljarðar króna. Hvorugt þeirra var á listanum yfir hæstu greiðendur opinberra gjalda sem ríkisskattstjóri sendi á fjölmiðla í lok júní 2017.
Makar Sigurðar og Maríu eru systkinin Margrét og Hjörtur Gíslabörn. Þau voru, ásamt bróður sínum Hermanni, stærstu eigendur útgerðarfyrirtækisins Ögurvíkur um margra ára skeið. Hvert þeirra átti 31,25 prósent hlut.
Á árinu 2016 seldu systkinin Ögurvík til Brims en kaupverðið var trúnaðarmál. Fjármagnstekjurnar eru tilkomnar vegna þeirrar sölu, en athygli vekur að það eru makar systkinanna sem telja þær fram, ekki seljendurnir sjálfir. Ástæða þess er sú að fjármagnstekjur eru taldar hjá því hjóna sem hærri launatekjur hefur.
Hermann er þó ekki á meðal tekjuhæstu landsmanna á árinu 2016, samkvæmt gagnagrunninum. Þar er hins vegar Brynjólfur Gunnar Halldórsson, sem átti þau 6,24 prósent í Ögurvík sem systkinin áttu ekki. Fjármagnstekjur hans vegna ársins 2016 voru um 624 milljónir króna sem skiluðu honum í ellefta sæti yfir þá sem voru með mestar tekjur á Íslandi á því ári. Þrír af þeim sem sátu í ellefu efstu sætunum eru því þar vegna sölunnar á útgerðarfyrirtækinu Ögurvík.
Uppistaðan hjá þeim efstu söluhagnaður
Sá sem krýndur var skattakóngur 2016 af ríkisskattstjóra var Gísli J. Friðjónsson, fyrrverandi eigandi og forstjóri Hópbíla. Hann hafði selt framtakssjóðnum Horni III, stýrt af Landsbréfum, sjóðstýringarfyrirtæki Landsbankans, fyrirtækið sitt á því ári. Samkvæmt gagnagrunninum námu árstekjur Gísla 2016 rúmlega 2,8 milljörðum króna. Þær voru nánast allar tilkomnar vegna fjármagnstekna þar sem mánaðarlaun hans voru um 876 þúsund krónur á mánuði.
Einar Friðrik Sigurðsson og Ármann Einarsson voru báðir á meðal eigenda útgerðarfyrirtækisins Auðbjargar, sem selt var til Skinneyjar Þinganess á árinu 2016. Einar Friðrik var með rúmlega 1,9 milljarða króna í fjármagnstekjur vegna þeirrar sölu og Ármann fékk um 794 milljónir króna í sinn hlut vegna hennar. Þetta gerði þá að fjórða og sjöunda tekjuhæsta Íslendingnum á árinu 2016.
Það vekur raunar athygli að þorri tekjuhæsta fólks landsins gefur upp mjög lágar launatekjur í flestu eðlilegu samhengi. Sá sem situr til dæmis í níunda sæti yfir tekjuhæstu landsmenn ársins 2016, Grímur Garðarsson, var með 52.789 krónur á mánuði í laun en 744 milljónir króna í fjármagnstekjur.

Eini einstaklingurinn á topp tíu yfir tekjuhæstu landsmennina sem gefur upp laun sem eru yfir einni milljón króna er Guðmundur Kristjánsson, oftast kenndur við Brim en í dag forstjóri og aðaleigandi HB Granda. Hann var með launatekjur upp á 2.830 þúsund krónur á mánuði á árinu 2016 en þénaði fjármagnstekjur upp á tæplega 1,1 milljarð króna á því ári. Fyrirtæki Guðmundar, sem þá hét Brim en heitir nú Útgerðarfélag Reykjavíkur, var auðvitað kaupandinn að Ögurvík, viðskiptum sem skilaði þeim sem sitja í efstu sætum tekjulistans. Áhrif Guðmundar á tekjur Íslendinga eru því veruleg.
Borga mun lægra hlutfall í skatt en launafólk
Athyglisvert er að skoða hversu stóran hluta af tekjum sínum þeir sem hafa mestar tekjur á Íslandi greiða í skatt. Gagnagrunnurinn sýnir að 33 efstu borguðu á bilinu 20-21 prósent í skatt, enda meginuppistaðan í tekjum þeirra fjármagnstekjur sem greiddur er lægri skattur af.
Sá sem er með hæstar launatekjur á Íslandi er Valur Ragnarsson, forstjóri Medis. Skattskráin sýnir að hann var með um 24,5 milljónir króna á mánuði á árinu 2016, eða 295 milljónir króna í laun á ársgrundvelli. Valur var hins vegar með litlar fjármagnstekjur miðað við umfang tekna hans, eða 5,8 milljónir króna á öllu árinu 2016. Hann greiddi 45 prósent allra tekna sinna í skatt.
Það gerði Ársæll Hafsteinsson, einn helsti stjórnandi gamla Landsbankans, líka en hann var með 23,1 milljón króna á mánuði í laun á árinu 2016 og engar fjármagnstekjur. Alls greiddi Ársæll 46 prósent tekna sinna í skatt.
Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, var í 18. sæti yfir hæstu greiðendur opinberra gjalda á Íslandi samkvæmt álagningarskránni sem ríkisskattstjóri birti í fyrrasumar. Samkvæmt skattskránni er hann hins vegar í 50 .sæti yfir tekjuhæsta fólk landsins, enda meginþorri tekna hans, sem voru 19,3 milljónir króna á mánuði, launatekjur. Róbert greiddi því 45 prósent af öllu sem hann aflaði í opinber gjöld á árinu 2016.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.





























Athugasemdir