AGS hættir viðræðum við Grikki og sendinefndin farin frá Brussel

Samn­inga­nefnd Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins við Grikki hefur verið send heim til Washington frá Brussel. Þetta er gert vegna þess að engar fram­farir hafa orðið í við­ræðum AGS og Evr­ópu­sam­bands­ins við Grikki und­an­farið, en við­ræð­urnar snúa að skil­yrðum sem Grikkir þurfa að upp­fylla til að fá áfram­hald­andi neyð­ar­lán frá AGS og ESB.

Tals­maður Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins greindi frá þessu fyrir skömmu og Bloomberg greinir frá. „Boltinn er mjög mikið hjá Grikkjum núna,“ sagði Gerry Rice við blaða­menn í Washington í dag. „Það er mik­ill ágrein­ingur á milli aðil­anna á flestum lyk­ilsviðum. Það hafa engar fram­farir orðið í því að minnka þennan ágrein­ing und­an­farið.“ Christine Lagarde, fram­kvæmda­stjóri AGS, mun funda með fjár­mála­ráð­herrum evru­svæð­is­ins í Lúx­em­borg þann 18. júní.

Grísk stjórn­völd hafa legið undir sífellt meiri gagn­rýni frá lán­ar­drottn­unum und­an­farið og þykir brott­för samn­inga­nefndar AGS benda enn frekar til þess að lán­ar­drottn­arnir séu að missa þol­in­mæði sína gagn­vart Grikkjum.


#IMF has major differences with #Greece...and European stocks do this.... pic.twitter.com/NYzHD4cKRU


— Mark Barton (@markbartontv) June 11, 2015

Fyrr í dag hafði þó gætt bjart­sýni um að sam­komu­lag væri að nálg­ast. Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, fund­aði með for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB, Jean-Claude Juncker, eftir hádegið. Í gær fund­aði hann með Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands, og Francois Hollande, for­seta Frakk­lands. Þau sögð­ust sam­mála um að nú yrði að koma auk­inn þungi í við­ræð­urnar, enda aðeins tutt­ugu dagar þangað til núver­andi sam­komu­lag Grikkja við lán­ar­drottna sína rennur út.

Donald Tusk, for­seti leið­toga­ráðs ESB, tjáði sig svo um við­ræð­urnar á blaða­manna­fundi í dag. Þar sagði hann að það væri nauð­syn­legt fyrir Evrópu að sam­komu­lag náist strax. „Það er aug­ljóst að við þurfum ákvarð­anir, ekki samn­inga­við­ræður. Grísk stjórn­völd þurfa að vera raun­særri. Það er ekki lengur tími til að halda áfram þessu fjár­hættu­spili. Dagurinn nálg­ast, ótt­ast ég, þegar ein­hver segir að leik­ur­inn sé búinn.“ Þetta þykja sterk skila­boð frá Tusk og óvenju­legt að hann tjái sig með þessum hætti. Hann sagði jafn­framt að fundur fjár­mála­ráð­herr­anna þann 18. júní verði algjör lyk­ilfundur. Á honum ætti að taka ákvarð­arnir um fram­haldið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár