Greiða háar fjárhæðir til að fá að vernda regnskóg

Þeir fá hvorki timbur, jarð­efni né upp­skeru af fjár­fest­ingu sinni. Það eina sem þeir fá fyrir að setja 1 millj­arð banda­ríkja­dala í verk­efnið er heiður og virð­ing og von­andi bjart­ari fram­tíð fyrir sig og sína.

Amazon-frumskógurinn er stærsti regnskógur veraldar.
Amazon-frum­skóg­ur­inn er stærsti regn­skógur ver­aldar. Mynd: EPA

Norðmenn hafa í um tólf ár unnið að og nú hleypt af stokk­unum áætlun sem hefur það að mark­miði að fyr­ir­tæki og jafn­vel ríki geti greitt fyrir að regn­skógar fái að standa óhreyfðir. Áætlunin hefur verið unnin innan norskra ráðu­neyta og er hugsuð sem ný leið í bar­átt­unni við lofts­lags­vánna. Banda­ríkin og Bretland eru þegar orðin þátt­tak­endur sem og fjöldi fyr­ir­tækja á borð við Amazon, Airbnb, lyfja­fyr­ir­tækið GSK.

Í frétt norska rík­is­sjón­varps­insum málið segir að þeir sem vilji taka þátt þurfi að skuld­binda sig til að greiða að minnsta kosti einn millj­arð banda­ríkja­dala, um 125 millj­arða króna. Með fénu er ákveðið svæði í regn­skógi varið og þannig dregið úr losun 100 millj­óna tonna af koltví­sýr­ing út and­rúms­loftið.

Erna Solberg, for­sæt­is­ráð­herra Noregs, sagði í dag, er verk­efn­inu var form­lega hleypt af stað, að um sögu­legt augna­blik væri að ræða sem Norðmenn gætu verið stoltir af. Hún sagði verk­efnið hafa áhrif á heims­mæli­kvarða í bar­átt­unni við hlýnun jarðar af manna völdum. Bæði skuld­binda þátt­tak­endur í verk­efn­inu sig til að draga úr eigin losun og einnig að tryggja vernd regn­skóga.

Umhverf­is­ráð­herra Noregs segir verk­efnið ekki eiga að virka sem synda­af­lausn fyrir þá sem menga mikið. Með því að ger­ast aðili að regn­skóga­verk­efn­inu þurfi þátt­tak­endur að upp­fylla strong skil­yrði og mun þriðji aðili votta að þeir fari að þeim. Þau ríki sem taka þátt geta t.d. ekki verndað regn­skóg á einum stað en stuðlað að eyð­ingu hans ann­ars staðar, segir umhverf­is­ráð­herr­ann Sveinung Rotevatn. Hinir tveir þættir verk­efn­is­ins þurfi að fara saman; að draga úr eigin losun og vernda sam­tímis regn­skóg. Þá verður því þannig farið að landið þar sem regn­skóg­inn er að finna fær frá­drátt í los­un­ar­bók­hald sitt – ekki ríkið eða fyr­ir­tækið sem greiðir fyrir vernd­ina.

Ráð­herr­arnir vona að verk­efnið veki áhuga fleiri landa og fyr­ir­tækja sem ákveði svo að taka þátt.

Eyðing regn­skóga heims­ins jókst um 12 pró­sent milli áranna 2019 og 2020. Samtals voru um tíu millj­ónir hekt­ara regn­skóga hita­belt­is­ins felldir eða ruddir í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár