Meirihluti íbúða í samþykktu deiliskipulagi er á nýjum uppbyggingarsvæðum

Flestar þær íbúðir sem heim­ilt var sam­kvæmt sam­þykktu deiliskipu­lagi að byggja í Reykja­vík­ur­borg þann 1. októ­ber, án þess að búið væri að gefa út bygg­ing­ar­leyfi, eru fyr­ir­hug­aðar á nýjum upp­bygg­ing­ar­svæðum í Voga­hverfi, Bryggju­hverfi og Skerja­firði.

Þann 1. október voru heimildir til þess að byggja rúmlega þrjúþúsund íbúðir á deiliskipulögðum lóðum hér og þar í Reykjavík.
Þann 1. októ­ber voru heim­ildir til þess að byggja rúm­lega þrjú­þús­und íbúðir á deiliskipu­lögðum lóðum hér og þar í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Þann 1. októ­ber síð­ast­lið­inn var búið að sam­þykkja deiliskipu­lag fyrir alls 3.104 íbúðir á ýmsum bygg­ing­ar­reitum í Reykja­vík­ur­borg, án þess að þar væri búið að úthluta bygg­ing­ar­leyfum.

Þar af voru 1.228 íbúðir sem hugs­aðar eru fyrir almennan markað á lóðum sem eru í eigu Reykja­vík­ur­borgar, 1.190 íbúðir skipu­lagðar á lóðum í eigu einka­að­ila sem ætla sér að byggja fyrir almennan markað. Til við­bótar voru 347 íbúðir skipu­lagðar á lóðum sem eru í eigu hús­næð­is­fé­laga og 339 íbúðir fyrir hús­næð­is­fé­lög skipu­lagðar á lóðum Reykja­vík­ur­borgar.

Þegar deiliskipu­lag hefur verið sam­þykkt geta eig­endur lóða sótt um bygg­ing­ar­leyfi og komið fram­kvæmdum af stað og lætur borgin þess getið, í upp­lýs­inga­bæk­lingi um hús­næð­is­upp­bygg­ingu sem sendur var inn á heim­ili borg­ar­búa á þriðju­dag, að hraði upp­bygg­ingar sé að nokkru leyti í höndum einka­að­ila, sem hafi meiri­hluta bygg­ing­ar­heim­ilda á sínum höndum.

Hluti þess­ara upp­bygg­ing­ar­verk­efna er sagður í start­hol­unum, en að sama skapi eru nokkur dæmi um að deiliskipu­lag á lóðum þar sem fram­kvæmdir voru ekki hafnar hafi verið sam­þykkt, jafn­vel árum saman, án þess að lóð­ar­hafar hafi ráð­ist í upp­bygg­ing­una sem fyr­ir­huguð er.

Rúmur helmingur á þremur nýjum uppbyggingarsvæðum

Þær fyr­ir­hug­uðu íbúðir sem sam­þykktar höfðu verið í deiliskipu­lagi þann 1. októ­ber, eru flestar á þremur nýjum upp­bygg­ing­ar­svæðum í borg­inni; Voga­byggð, Skerja­firði og í nýjum áfanga Bryggju­hverfis. Þetta eru sam­tals yfir 1.800 af þeim 3.109 íbúðum sem taldar eru upp fram í sam­taln­ingu borg­ar­innar.

Samkvæmt því sem fram kemur í sam­an­tekt borg­ar­innar eru flestar íbúð­irnar, alls 727, skipu­lagðar á því svæði sem kallað er Bryggju­hverfi III, eða sam­tals 210 íbúðir á tveimur reitum við Gjúka­bryggju og 517 íbúðir á öðrum reitum á því svæði.

Í Skerja­firði var svo í sumar sam­þykkt deiliskipu­lag fyrir alls 685 íbúðir, um helm­ingur undir íbúðir sem koma til með að fara á almennan markað en hinn helm­ing­ur­inn er á vegum hús­næð­is­fé­laga. Félags­stofnun stúd­enta, Bjarg íbúða­fé­lag og HOOS, sem ætla að byggja hag­kvæmt hús­næði fyrir ungt fólk og fyrstu kaup­endur, hafa þegar fengið vil­yrði fyrir lóðum í fyrsta áfanga upp­bygg­ing­ar­innar þar.

Í Voga­byggð, á reitum sem auð­kenndir eru með núm­er­unum I og II, eru svo sam­tals tæp­lega 400 íbúðir á deiliskipu­lagi sem ekki er enn búið að sækja um bygg­inga­leyfi fyrir, 254 í fjórum fyr­ir­hug­uðum fjöl­býl­is­húsum í Voga­byggð I og 142 í Voga­byggð II, en á því svæði eru nú þegar 620 íbúðir í bygg­ingu, sem er dágóður skerfur af þeim alls tæp­lega 2.698 sem borgin telur að hafi verið í bygg­ingu þann 1. októ­ber.

Stakir reitir innan um eldri byggð

Víða ann­ars­staðar í borg­inni er sam­þykkt deiliskipu­lag fyrir íbúða­upp­bygg­ingu í grónum hverfum. Við Háa­leiti­braut/Bolholt er til dæmis heim­ild fyrir bygg­ingu 47 íbúða á sömu lóð og höf­uð­stöðvar Sjálf­stæð­is­flokks­ins standa á. Flokk­ur­inn er sjálfur lóð­ar­hafi og fékk þann 19. októ­ber úthlut­uðu bygg­ing­ar­leyfi fyrir stein­steypt fjöl­býl­is­hús sem á að vera á 4-6 hæðum með bíla­kjall­ara, alls um 7.300 fer­metrar.

Þá er heim­ild til þess að byggja 110 íbúðir í Sigtúni, á svoköll­uðum Blóma­vals­reit sem stendur fyrir aftan Grand Hótel. Upp­bygg­ing­ar­á­formin þar eru á vegum Íslands­hót­ela. Deiliskipu­lagið fyrir lóð­ina var aug­lýst árið 2015 en síðan þá hefur verk­efnið lítið hreyfst.[links]

Eins og Kjarninn sagði nýlega frá von­ast for­svars­menn Íslands­hót­ela eftir því að upp­bygg­ing á reitnum hefj­ist snemma á næsta ári, en það er háð því hvernig fjár­mögn­un­ar­ferl­inu vindur fram. Stefnan er að byrja á að byggja íbúðir á því svæði sem stendur fjærst Grand Hótel á reitnum, en verkið er umfangs­mikið og verður unnið í áföngum.

Á reit við Sjó­manna­skól­ann ætlar félagið Vaxt­ar­hús að reisa um 60 íbúðir, sem byggðar verða sem hag­kvæmt hús­næði fyrir fyrstu kaup­endur. Við Snorra­braut 54 stendur síðan til að byggja 40 nýjar íbúðir, en sú upp­bygg­ing er á vegum Reir Verk ehf., sem er lóð­ar­hafi. Þá liggur fyrir sam­þykkt deiliskipu­lag vegna bygg­ingar tveggja nýrra húsa með sam­tals 43 íbúðum á horni Lauga­vegar og Vatns­stígs.

Hús­næð­is­upp­bygg­ing í Reykja­vík­ur­borg hefur verið tölu­vert í umræð­unni upp á síðkastið og lík­legt er að svo verði áfram, þar sem borg­ar­yf­ir­völd hyggj­ast fara yfir stöð­una á árlegum kynn­ing­ar­fundi í Ráð­hús­inu á föstu­dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár