Hefur ríkisstjórnin slegið met í að svara fyrirspurnum?

Umræður sköp­uð­ust um fyr­ir­spurnir og svör í þing­inu í síð­ustu viku. Bjarni Bene­dikts­son taldi met hafa verið slegið í bæði fyr­ir­spurnum og svörum hjá þess­ari rík­is­stjórn. Kjarninn ákvað að sann­reyna það.

Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson, forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar.
Sigurður Ingi Jóhanns­son og Bjarni Bene­dikts­son, for­svars­menn rík­is­stjórn­ar­innar. Mynd: Birgir Þór

„Ég geri ekki ráð fyrir að margir sem gegnt hafa ráð­herra­emb­ætti hafi svarað jafn mörgum fyr­ir­spurnum og sá sem hér stendur. Reyndar hefur stjórn­ar­and­staðan sett sér­stakt met í því að leggja fyr­ir­spurnir fyrir ráð­herrana. Þeim hefur verið svarað í áður óþekktum mæli. Ekki liggja fyrir jafn mörg svör eftir fyrri rík­is­stjórnir og eftir þessa rík­is­stjórn. Það eru bara ekki dæmi um annað eins.“

Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra á þingi í síð­ustu viku, þegar þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar höfðu kvartað yfir því að Bjarni hafi ann­ars vegar svarað skrif­legri fyr­ir­spurn frá Krist­jáni Möller um Borg­un­ar­málið með ófull­nægj­andi hætti, og hins vegar að fyr­ir­spurn Krist­jáns til munn­legs svars frá Bjarna hafi ekki verið sett á dag­skrá þó óskað hafi verið eftir því þann 26. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Er það rétt hjá Bjarna að met hafi verið sett í því að leggja fram fyr­ir­spurnir og er það rétt að fyr­ir­spurnum hafi verið svarað í áður óþekktum mæli? Kjarninn ákvað að kanna málið.

Hafa svarað 69% fyrirspurna

Á þessu kjör­tíma­bili, með rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks, hafa verið lagðar fram 1156 fyr­ir­spurnir til munn­legs og skrif­legs svars til ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar og for­seta Alþingis. Af þessum 1156 hefur sléttum 800 fyr­ir­spurnum verið svarað. Það er ríf­lega 69% svar­hlut­fall við fyr­ir­spurnum.

Á síð­asta kjör­tíma­bili, þegar Sam­fylk­ing og Vinstri græn voru í rík­is­stjórn, voru lagðar fram 1607 fyr­ir­spurnir til ráð­herra og for­seta. Þar af var 1068 fyr­ir­spurnum svarað, eða ríf­lega 66% allra fyr­ir­spurna. Ef tekið er mið af stöð­unni á sama tíma á síð­asta kjör­tíma­bili, það er fram til 26. apríl á þriðja þing­vetr­inum, fer svar­hlut­fallið niður í tæp­lega 62%. Þá eru fyr­ir­spurn­irnar 1275 og svörin 788. Í þessum útreikn­ingum er þingið vorið 2009, þegar Vinstri græn og Sam­fylk­ingin skip­uðu minni­hluta­stjórn, talið með þessu kjör­tíma­bili þar sem ummæli Bjarna snér­ust um rík­is­stjórnir en ekki hrein kjör­tíma­bil. Minni­hluta­stjórnin er því sama rík­is­stjórn og sú sem tók svo við sem meiri­hluta­stjórn eftir kosn­ingar 2009.

Hefur farið miklu lægra

Annað stutt kjör­tíma­bil var milli 2007 og 2009, þegar Sjálf­stæð­is­flokkur og Sam­fylk­ing mynd­uðu rík­is­stjórn. Á þessu tíma­bili voru lagðar fram 478 fyr­ir­spurnir og 209 þeirra var svarað, eða tæp­lega 44% fyr­ir­spurna.

Milli áranna 2003 og 2007 starf­aði rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks. Á því kjör­tíma­bili voru lagðar fram 1851 fyr­ir­spurnir, og 822 þeirra var svarað. Þetta er 44% svar­hlut­fall. Rík­is­stjórn sömu flokka svar­aði 47% fyr­ir­spurna kjör­tíma­bilið 1999-2003, þegar 638 af 1359 fyr­ir­spurnum var svarað. Kjör­tíma­bilin þar á undan var svar­hlut­fallið 52% 1995-1999 og 38% 1991-1995.

Nið­ur­staðan er því sú að svar­hlut­fall rík­is­stjórn­ar­innar við fyr­ir­spurnum á þessu kjör­tíma­bili er vissu­lega hærra en þeirra rík­is­stjórna sem á undan henni fóru. Í hreinum fjölda svara hefur þessi rík­is­stjórn nauman vinn­ing sé miðað við 26. apríl, hefur svarað 800 fyr­ir­spurnum á meðan síð­asta rík­is­stjórn hafði á sama tíma kjör­tíma­bils svarað 788. Þá verður aftur að hafa í huga að á því kjör­tíma­bili er vor­þingið 2009 talið með. Hins vegar höfðu fleiri fyr­ir­spurnir verið lagðar fyrir ráð­herra síð­ustu rík­is­stjórnar á sama tíma á síð­asta kjör­tíma­bili, það er til og með 26. apríl árið 2012. Þá höfðu 1275 fyr­ir­spurnir verið lagðar fyrir ráð­herra og for­seta þings­ins, en nú eru þær sem fyrr segir 1156 tals­ins. Það hefur því ekki verið sett sér­stakt met í fyr­ir­spurnum á þessu kjör­tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár