Tíu staðreyndir um stöðu íslensks efnahags

Pen­inga­mál Seðla­banka Íslands voru birt í gær. Þar er farið yfir stöð­una í efna­hags­málum íslensku þjóð­ar­innar á árinu 2016 og fram­tíð­ar­horfur.

  1. Seðla­banki Íslands áætlar að hag­vöxtur hafi verið sex pró­sent á árinu 2016. Hann var 4,1 pró­sent árið 2015, 1,9 pró­sent árið 2014, 3,6 pró­sent árið 2013, 1,3 pró­sent árið 2012 og 2,4 pró­sent árið 2011. Árið þar á undan, 2010, var hann nei­kvæður um 3,1 pró­sent. Hag­vöxtur í helstu við­skipta­löndum Íslands var 1,6 pró­sent í fyrra. Búist er við því að hag­vöxtur þeirra verði 1,7 pró­sent að með­al­tali í ár og 1,9 pró­sent árið 2019.
  2. Þrátt fyrir hækkun á olíu- og hrá­vöru­verðs eru horfur á að við­skipta­kjör íslensks þjóð­ar­bú­skapar batni enn frekar á árinu 2017.
  3. Áætlað er að útflutn­ingur hafi auk­ist um lið­lega tíu pró­sent á árinu 2016. Þar munar lang­mest um aukin umsvif í ferða­þjón­ustu, en Seðla­bank­inn áætlar að umsvif hennar hafi auk­ist um 37 pró­sent á árinu að raun­virði. Umfang ferða­þjón­ustu er nú fjór­falt meira í þjóð­ar­bú­skapnum en það var árið 2010.
  4. Íslenska krónan styrkt­ist um tólf pró­sent á árinu 2016. Helstu ástæður þess eru bætt við­skipta­kjör Íslands ann­ars vegar og ör vöxtur ferða­þjón­ustu hins vegar.
  5. Seðla­bank­inn býst við því að hún haldi áfram að styrkj­ast á ári og að geng­is­vísi­talan verði um 163 að með­al­tali. Hún er í dag 170 stig. Enn fremur býst Seðla­bank­inn við því að geng­is­vísi­talan fari í 152 stig árið 2019.
  6. Verð­bólga á Íslandi hefur nú verið undir verð­bólgu­mark­miðum í næstum þrjú ár. Hún er sem stendur 1,9 pró­sent, en verð­bólgu­mark­miðið er 2,5 pró­sent. Í Pen­inga­málum segir að verð­bólgu­horfur hafi batnað lít­il­lega frá síð­ustu spá Seðla­bank­ans þrátt fyrir meiri spennu í þjóð­ar­bú­skapnum. „Þær byggj­ast þó á þeirri for­sendu að kjara­samn­ingar á vinnu­mark­aði losni ekki á næst­unni. Um það ríkir hins vegar tölu­verð óvissa. Á móti inn­lendum verð­bólgu­þrýst­ingi vegur lítil alþjóð­leg verð­bólga, hækkun gengis krón­unnar á spá - tím­anum og aðhalds­söm pen­inga­stefna. Pen­inga­stefnan hefur skapað verð­bólgu­vænt­ingum kjöl­festu, haldið aftur af útlána­vexti og stuðlað að meiri sparn­aði en ella.“
  7. Seðla­bank­inn býst þó við því að verð­bólgan fari yfir verð­bólgu­mark­mið á árinu 2017. Í Pen­inga­málum segir að talið sé að verð­bólga verði um tvö pró­sent fram yfir mitt ár, en taki þá að þok­ast upp á við og verði komin í mark­mið á seinni hluta árs­ins. „Horfur eru á að verð­bólga fari tíma­bundið upp fyrir mark­miðið er líður á spá­tím­ann þegar áhrif geng­is­hækk­un­ar­innar taka að fjara út en að hún verði nálægt mark­mið­inu í lok spá­tím­ans.“
  8. Spennan á vinnu­mark­aði er mikil og störfum fjölgar hratt. Atvinnu­leysi er komið niður fyrir 3 pró­sent. Atvinnu­þátt­taka er jafn­framt orðin meiri en hún var mest á þenslu­tím­anum fyrir fjár­málakrepp­una en á móti vegur tölu­verður inn­flutn­ingur á erlendu vinnu­afli.
  9. Hrein gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans á árinu 2016 námu rúm­lega 360 millj­örðum króna. Það er um 40 pró­sent meira en árið á undan. Gjald­eyr­is­vara­forði bank­ans jókst um 163 millj­arða króna í fyrra og nam í árs­lok 815 millj­örðum króna. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri sagði á kynn­ing­ar­fundi í gær að bank­inn telji gjald­eyr­is­vara­forð­ann vera orð­inn nægj­an­lega stóran.
  10. Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans til­kynnti í gær­morgun að meg­in­vextir bank­ans, oft kall­aðir stýri­vextir, verði áfram fimm pró­sent. Þeir mynda gólf fyrir aðra óverð­tryggða vexti í land­inu. Vextir voru tví­vegis lækk­aði í fyrra, í ágúst um 0,5 pró­sent og aftur í des­em­ber um 0,25 pró­sent.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár