Obama frestar brottför hersins frá Afganistan - stríðið orðið að kosningamáli

Barack Obama Banda­ríkja­for­seti hefur form­lega til­kynnt að banda­ríski her­inn verði áfram með við­veru í Afganistan árið 2017 þótt dregið verði úr fjöld­anum. Þannig er end­an­lega úti um lof­orð hans um að binda endi á stríðið í Afganistan á meðan hann er for­seti. Hann seg­ist samt sem áður ekki styðja hug­mynd­ina um „enda­laust stríð“.

Áætlanir höfðu verið uppi um að draga til baka allt her­lið nema mjög fámennt lið tengt sendi­ráði Banda­ríkj­anna í Afganistan fyrir lok næsta árs. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að 5.500 manna her­lið verði áfram í land­inu, en her­liðið telur tæp­lega tíu þús­und nú.

Búist hafði verið við þessu, og fjöl­miðlar raunar greint frá því að þetta stæði lík­lega til. Til­kynn­ingin kemur í kjöl­far sóknar tali­bana í land­inu, meðal ann­ars náðu þeir tíma­bundnum yfir­ráðum yfir Kunduz seint í sept­em­ber. Þegar Kunduz féll í hendur tali­bana var það skellur fyrir afgönsk stjórn­völd og banda­ríska her­inn sömu­leiðis. Á meðan á umsátri um Kunduz stóð sprengdu Banda­ríkja­menn spít­ala Lækna án landamæra, með þeim afleið­ingum að tíu sjúk­lingar á spít­al­anum og tólf starfs­menn Lækna án landamæra létu lífið. Banda­ríkja­menn hafa beðist afsök­unar á því en Læknar án landamæra vilja fá óháða rann­sókn á því hvernig þetta gerð­ist. Afganski stjórn­ar­her­inn náði Kunduz aftur á þriðju­dag­inn.

Banda­rísk stjórn­völd hafa einnig lýst yfir áhyggjum af því að Íslamska ríkið færi sig upp á skaftið í Afganistan og fái til liðs við sig tali­bana.

Með þess­ari til­kynn­ingu Obama í dag virð­ist ljóst að við­vera Banda­ríkja­hers í Afganistan er orðin að kosn­inga­máli fyrir for­seta­kosn­ing­arnar á næsta ári. Eins og Guardian bendir á verður næsti for­seti sá þriðji til þess að hafa yfir­um­sjón með stríð­inu í Afganistan. Þangað til nú hefur Afganistan ekki verið áber­andi í kosn­inga­bar­átt­unni, og var til dæmis ekk­ert rætt í fyrstu kapp­ræðum demókrata og mjög stutt­lega í tvennum kapp­ræðum repúblik­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár